Búin að vera á leiðinni í 3-4 ár, hvorki meira né minna að gera aftur mitt eigið sushi. Hjónin urðu óvænt ein heima á fallegu laugardagskvöldi, kosningakvöldi. Þá hafði ég enga afsökun og þetta er afraksturinn. Ég var bara nokkuð sátt. Mæli með rauðrófubitanum. En ekki hvað, sagði konan sem elskar rauðrófur.
Showing posts with label Svolítið sparí. Show all posts
Showing posts with label Svolítið sparí. Show all posts
Sunday, October 21, 2012
Sunday, October 14, 2012
Ravíólí með sætum kartöflum, sýrópi, chili og pekanhnetum.
Vá, mér finnst eins og síðasta færsla hafi verið gerð fyrir nokkrum vikum en hún er síðan í maí. Fyrr en varir verða komin jól.
Vorum með aukabarn í gistiheimsókn svo ákveðið var að láta grislingana borða pizzu og svo gera pasta fyrir okkur sem var borðað á spænskum tíma, þ.e. seint.
Einhvern tíma sá ég að hlynsíróp var notað með pasta og alltaf langað að prófa. Eftirfarandi er afraksturinn, dálítið öðruvísi pastaréttur, fljótlegur og fjarska góður.
- Ravíólí með 4 osta fyllingu, 2 pakkar.
- 100 g smjör
- 2-3 msk hlynssíróp
- 1-2 tsk chiliflögur
- 1/2 sæt kartafla, skorin þunnt
- Rifinn börkur af hálfri sítrónu
- 1 dl pekanhnetur.
- Steinselja
- Sjávarsalt og svartur pipar
Setjið ofninn á 200° og látið kartöflurnar inn þegar hann er orðinn heitur, í 10-15 mín. Setjið pastað út í sjóðandi vatn og sjóðið samkvæmt upplýsingum. Látið smjörið í pott, þegar það er farið að krauma, látið þá sýróp og chili útí. Ristið pekanhneturnar á pönnu. Hellið vatninu af pastanu og látið svo aftur í pottinn, skellið smá smjörklípu útí, rífið sítrónuna yfir og hrærið varlega í. Látið pasta og sætar kartöflur á diska, hellið sírópssósu yfir, stráið yfir steinselju, salti og pipar og svo nokkrum pekanhnetum. Það gæti verið gott að vera með paramesan yfir en sjálf átti ég hann ekki til. Einn pakki af pasta(íslensk tegund, keypt í Hagkaup) hefði nú alveg dugað fyrir okkur hjónin en ég notaði 2 og við fengum okkur tvisvar...jamm, borðaði yfir mig. Ef manni finnst þetta of sætt, þá bætið endilega við öllu eða einhverju af eftirtöldu: chili/sítrónuberki/salti/steinselju.
Thursday, May 17, 2012
Pasta með eggaldin, þistilhjörtum og svörtum ólífum
Mikið var notalegt að fá svona helgi þar sem ekkert er planað. Ég skal viðurkenna að ég verð samt dálítið óróleg og vil þá helst plana eitthvað en veit að það er gott að slaka stundum á og hlaða batteríin.
Ég elska pasta eins og svo margir aðrir og hér er einföld uppskrif og það er svona dásamlega "ríkt"bragð af sósunni og ekki verra að eiga rauðan dreitil með.
Pasta með eggaldin, þistilhjörtum og svörtum ólífum
Fyrir 3-4
Fyrir 3-4
- 1 stór rauðlaukur
- 2-3 msk ólífuolía
- 2-3 hvítlauksrif
- 2 msk sítrónusafi
- 1 eggaldin
- 600 ml passata
- 2 tsk púðursykur (örugglega fínt líka með agave)
- 2 msk tómatpure
- 400 g þistilhjörtu
- 1 lítil krukka svartar ólífur, 115 g
- Nokkrar kalamatri ólífur úr borðinu í Hagkaup.
- Salt og pipar
- Eitthvað gott pasta
Skerið rauðlauk og pressið/skerið hvítlauk, skellið á pönnuna. Ég skar eggaldinið í svona hálfgerðar ræmur/báta, sem sagt skerið hann í helming, svo skera lengjur og skipta þeim svo í tvennt eða þrennt ef eggaldinið er langt. Látið á pönnuna, hellið sítrónusafa yfir og leyfið að malla í ca. 5 mín eða þangað til eggaldinið tekur á sig lit, brúnast. Hellið yfir passata, tomatpure og púðursykri, hrærið, fáið svo upp suðu og leyfið svo að malla í 20 mín á lágum hita.
Látið pastað út í sjóðandi vatn. Ég notaði í þetta skiptið heilhveiti pappardelle en ég held að ég mæli frekar með spaghettí þótt það sé reyndar alltaf gaman að nota fleiri pastategundir.
Hellið af þistihjörtunum og skerið í aðeins smærri bita, látið útí ásamt ólífunum. Saltið og piprið vel. Látið malla í 5-10 mín. Hellið af pastanum, skellið smjörklípu/olífuolíu yfir það. Ég stráði svo steinselju yfir sósuna en ef þið eigið eða fáið ferska basiliku þá myndi ég frekar nota hana.
Monday, April 9, 2012
Smalabaka a la grænmetis..
Fjölskyldan ákvað að skella sér á Aldrei fór ég suður á Ísafirði yfir páskana. Gistum á Suðureyri, svo huggulegt og ásamt því að sækja hátíðina góðu þá skelltum við okkur m.a. í kaffi á Þingeyri, börn og eiginmaður skelltur sér til Bolungarvíkur, Diljá vinkona átti afmæli, ég átti afmæli og við hittum fullt af skemmtilegu fólki. Takk fyrir okkur og vonandi áttu allir gleðilega páska. Í einhverju af fjölmörgum samtölum helgarinnar var talað um Shepards pie eða smalaböku. Ákvað að útbúa grænmetisútgáfu.
Skoðaði netið í hugmyndaleit og má segja að þessi sé upp úr þremur útgáfum, þ.e. mér leist ágætlega á hluta af hverri og blandaði svo saman í mína eigin útgáfu. Þetta var bara mjög gott og hressandi að fá sér grænmeti og linsubaunir eftir pizzur, samlokur og annað hressandi fyrir vestan.
Smalabaka a la grænmetis..
- 2 dl grænar linsur
- 3 stórar kartöflur
- 1 dl nýmjólk eða rjómi.
- 1/2 laukur
- 1 hvítlauksrif
- 1/2 dallur sveppir (svona eins og fást í búðum)
- 1/2 lítið brokkólíhöfuð, skorið frekar smátt.
- 1 tsk oregano
- 1 tsk salvia
- 1/4 tsk múskat
- 2 msk tómatpaste
- Salt og pipar
Lét svo linsur í sigti, svo aftur í pottinn þegar vatn var runnið af. Steikti í smá smjöri og ólífuolíu laukinn, hvítlauk, svo eftir smá stund brokkolíið og sveppina þangað til sveppirnir hafa mýkst. Hellti svo þessari blöndu saman við linsurnar, bætti kryddinu út í (oregano, salvíu og tómatpaste), einnig slatta af salti og pipar. Smakkið endilega blönduna, á að smakkast góð svona eintóm.
Hellið vatni af kartöflum, skellið smjörklípu út í, lét örugglega um 2 msk. Helli múskat í. Hrærið rólega í og hellti svo 1 dl af nýmjólk út í , hrærði svo með þeytara þangað til silkimjúkt. Kannski ég láti líka örlítinn sykur eða smá agave næst út í hræruna, svo gott að fá sætt á móti söltu.
Skellið svo linsublöndunni í olíusmurt form, jafnið út, látið svo kartöflumúsina yfir. Ég ákvað að nota svona sprautupoka til að fá fallega toppa. Hafið inni í ofni í 20-30 mínútur eða þangað til kartöflumúsin/topparnir taka á sig brúnan lit. Ég reif smá paramesan yfir. Gott að bera fram með góðu salati.
Labels:
Baunir og linsur,
Svolítið sparí,
Ýmislegt
Thursday, January 26, 2012
Innbakaður grænmetishleifur með púrtvínssósu
Fann loks fína mynd af innbakaða hleifnum góða sem ég geri yfirleitt á Gamlárskvöld og um páska. Geri hleifinn líka stundum fyrir góða gesti, kannski dálítið til að sýna fram á að það er líka hægt að gera sparílegan mat með klassísku meðlæti eins og fólk td. fær sér með læri, hrygg og svo um jól. Hef prófað hnetusósu og sveppasósu með en þessi sósa er líka skemmtileg viðbót. Hvernig væri að prófa svona "steik" um helgina.
Innbakaður grænmetishleifur með púrtvínssósu
- 450gr kjúklingabaunir (ca 2 dósir, án vökvans)
- 1 tsk þurrger
- 150 gr saxaðir valhnetukjarnar
- 150 gr brauðrasp (ég nota bara úr pakka)
- 1 laukur, smátt skorinn
- 100 gr sveppir
- 50 gr gular baunir
- 2 - 3 msk púrtvín eða sherrí (ég nota púrt)
- 2 msk grænmetissoð (ég hef reyndar notað um 4msk, annars svo þurrt)
- 1 msk ferskur koríander
- salt og pipar
- 225 smjördeig, í Nóatúni/Hagkaup hef ég fengið það í heilu lagi
- 1 egg
- 2 msk mjólk
- 2 msk matarolía, td. rapsolía
- 1 púrra, þunnt sneidd
- 8 msk púrt (má nota sherri)
- 3 dl grænmetissoð
Blandið saman í matvinnsluvél, baunum, geri, valhnetum og brauðraspi, í 30-60 sek. Brúnið lauk og sveppi á stórri pönnu eða í potti, í 3-4 mín. Bætið út í baunablöndunni á pönnuna og svo einnig maís og hvítlauk. Bætið út í víni, soði og kóríander, blandið öllu saman. Takið af hellu og látið kólna. Breiðið út smjördeigið, myndið hleif úr blöndunni og þjappið henni vel saman, leggið hana inni í smjördegið og lokið undir, bleytið gjarnan þar sem þið lokið smjördeginu. Stingið göt í deigið. Blandið eggi og mjólk, penslið hleifinn og skellið inn í 200 gráðu heitan ofn og bakið í um 30-40 mín eða þar til deigið hefur tekið á sig fallegan lit. Til að gera sósuna, hitið olíuna í potti, brúnið púrru í um 5 mín. Bætið í víni g soði, fáið upp suðu og látið svo "simmer"(hvað er orðið) í 5 mínútur.
Berið fram með dásamlegu meðlæti og njótið!
Berið fram með dásamlegu meðlæti og njótið!
Sunday, January 22, 2012
Polenta á fennikubeði.
Polenta er ósjaldan á mínum borðum. Ég átti fenniku (fennel) í ískápnum en fyrir jól steikti ég fenniku í smjöri, sírópi, salti og pipar og hafði ofan á beðinu grillaðan halloumi og fannst mér það smakkast vel saman. Í þetta skiptið átti ég ekki ostinn góða og ákvað því að útbúa polentu "medalíur". Eins eru rauðrófur mikið notaðar á heimilinu og tilvalið að rífa niður ferska rófu með. Þetta var sem aðalréttur hjá okkur en uppskriftin ætti að duga sem forréttur fyrir 4 en þá mætti kannski bæta annari rauðrófu við en ég notaði reyndar litla. Gerði þetta síðustu helgi og vona að ég muni þetta rétt
Polenta á fennikubeði
- 7 dl vatn
- 2 dl polentugrjón
- 1 grænmetisteningur
- 1-2 dl rifinn ostur, má sleppa
- 1 dl paramesan, helst ekki sleppa
- Rifinn börkur af hálfri sítrónu
- 2 fennikur
- Síróp
- 1 rauðrófa
- 1 fersk fíkja, má sleppa
- Smjör til steikingar
- Balsamikedik
- Salt og pipar
Setjið vatn og tening í pott, fáið upp suðu, takið pottinn aðeins af hellunni og hellið polentu út í og hrærið hratt með písk, passa að ekki myndist kögglar, látið aftur á helluna sem ætti að vera á miðlungshita og hrærið endalaust, það skvettist stundum upp úr pottinum svo ég tek pottinn oft aðeins af og læt á. Þegar þetta er orðið að mjúkri hræru, skellið þá ostinum út í og hrærið niður. Látið svo hræruna í olíusmurt form, ég notaði form sem er ca. 20cm x 15 en getið líka notað bökuform og bara að reyna að hafa þykktina ca. 1 1/2 - 2 cm. Látið formið inn í ískáp.
Skerið af efri og neðri hluta fennikunnar, stundum þarf að henda ysta lagi,skerið í strimla, skolið og þurrkið. Steikið í smjöri, þegar þetta verður pínu glært, skellið þá 1-2 msk af sírópi, getið notað agave en ég notað hlynssíróp (maple). Ég saltaði og pipraði aðeins.
Afhýðið rauðrófuna, ekki vitlaust að nota lítinn plastpoka eða eitthvað til að halda við svo rauði liturinn festist ekki á fingrunum. Notið rifjárn og rífið, helst ekki of fínt. Geymið í skál og mig minnir að ég hafi skvett smá sítrónu yfir.
Takið polentu út úr ískáp. Ég á svona "sívalinga" sem ég keypti í Kokku sem ég nota stundum við matargerð. Notaði þann minni sem er ca. eins og bolli að þvermáli. Notaði eins og form og skar út nokkar "medalíur". Held að það sé alveg hægt að nota bolla til að skera út en annars bara skera í ferninga, ekkert verra. Steikti svo litlu polentubitana upp úr lítilli olíu. Lét sívalinginn á diskana og lét steiktu fennikuna ofan í, svona til að það myndi mynda hringlaga beð (alveg hægt að gera bara fríhendis og gera með höndum). Lét svo polentubita ofan á beðin, lét svo sívaling aftur ofan á polentu, fenniku ofan í og svo aftur polentubita yfir. Látið 1-2 tsk af balsamic yfir rauðrófuna og hrærið í. Ég lét svo sívalinginn við hliðina á "turninum" og hellti rauðrófunni ofan í. Átti ferska fíkju og lét þannig bát efst. Drukkum spánskt rauðvín með og allir mjög sáttir eða já, við bæði, hjónin.
Skerið af efri og neðri hluta fennikunnar, stundum þarf að henda ysta lagi,skerið í strimla, skolið og þurrkið. Steikið í smjöri, þegar þetta verður pínu glært, skellið þá 1-2 msk af sírópi, getið notað agave en ég notað hlynssíróp (maple). Ég saltaði og pipraði aðeins.
Afhýðið rauðrófuna, ekki vitlaust að nota lítinn plastpoka eða eitthvað til að halda við svo rauði liturinn festist ekki á fingrunum. Notið rifjárn og rífið, helst ekki of fínt. Geymið í skál og mig minnir að ég hafi skvett smá sítrónu yfir.
Takið polentu út úr ískáp. Ég á svona "sívalinga" sem ég keypti í Kokku sem ég nota stundum við matargerð. Notaði þann minni sem er ca. eins og bolli að þvermáli. Notaði eins og form og skar út nokkar "medalíur". Held að það sé alveg hægt að nota bolla til að skera út en annars bara skera í ferninga, ekkert verra. Steikti svo litlu polentubitana upp úr lítilli olíu. Lét sívalinginn á diskana og lét steiktu fennikuna ofan í, svona til að það myndi mynda hringlaga beð (alveg hægt að gera bara fríhendis og gera með höndum). Lét svo polentubita ofan á beðin, lét svo sívaling aftur ofan á polentu, fenniku ofan í og svo aftur polentubita yfir. Látið 1-2 tsk af balsamic yfir rauðrófuna og hrærið í. Ég lét svo sívalinginn við hliðina á "turninum" og hellti rauðrófunni ofan í. Átti ferska fíkju og lét þannig bát efst. Drukkum spánskt rauðvín með og allir mjög sáttir eða já, við bæði, hjónin.
Sunday, August 30, 2009
Rauðlauks-og fetaferningar og Satay núðlur
Rauðlauks- og fetaferningar
- 1 smjördeigsrúlla (eða plötur í rauðu pökkkunum)
- 1 stór rauðlaukur
- 2 msk púðursykur
- 2 msk balsamic edik
- 1 lítil krukka svartar ólífur, skornar í helminga
- Handfylli af basiliku, rifin
Satay núðlur
- 1 pakki eggjanúðlur
- 4 msk hnetusmjör
- 4 msk sweet chili sósa
- 1 dl kókosmjólk
- 1 dl grænmetissoð (ég notaði hálfan tening í sjóðandi vatn)
- 3 msk soya sósa
- 2 msk sesamolía
- 3 msk rifin engiferrót
- 1 lítið brokkólíhöfuð
- 1 rauð paprika
- 1 pakki grænar baunir( man ekki hvað þær heita, langar og hálfmánalaga)
- 1 dós babymaís, skorin á lengdina ( ég notaði reyndar ekki alla dósina á endanum)
- 3 hvítlauksrif, fínskorinn
- lúkufylli af basilikunni (líka í forréttinum, gaman að skipta út kóríander og spara spara)
- smá salt
Saturday, August 29, 2009
Sætkartöflu- og aspas hreiður
Sætkartöflu- og aspas hreiður
- Filodeig (fæst í betri stórmörkuðum)
- Sæt kartafla
- Ferskur aspas
- Sítrónusafi
- Smjör
- Timjan
- Salt og pipar
Sunday, April 12, 2009
Ítölsk páskabaka
Jæja, enn og aftur komnir páskar. Ég held voða mikið upp á páskana. Birtan er yfirleitt svo falleg á þessum tíma, týpískt gluggaveður má segja. Hef átt afmæli stundum á páskadag, m.a. á tvítugsafmælinu sem er mér eftirminnilegt. Ákváðum loks að láta verða af því að fara á hina frábæru hátíð, Aldrei fór ég suður. Ætluðum öll fjölskyldan að fara. För var frestað á skírdag þegar Saga var veik. Og enn var hún veik á föstudeginum svo við hjónin flugum vestur og hún í góðum höndum tengdó. Í stuttu máli, urðum líka fárveik og ég sá lítið meira en hótelherbergið og við snerum tilbaka daginn eftir. Hér kemur uppskrift af páskaböku frá Piedmont héraði á N-Ítalíu. Gerði þessa á skírdag og telst því til páskamats. Þetta tekur smá tíma en höfum við tíma til að horfa á sjónvarp eða hanga í tölvunni, þá höfum við nú örugglega smá tíma í matseld um páskana. (Talað beint frá sjónvarps- og tölvuglápandi frúnni)
Ítölsk Páskabaka
- 85 g klettasalat
- 1 laukur, saxaður
- 2 hvítlauksrif, söxuð
- 200 g arborio risotto grjón
- 7 dl grænmetissoð
- 1 1/4 dl hvítvín (má sleppa)
- 50 g rifinn paramesan
- 120 g frosnar grænar baunir
- 2 tómatar, skornir í teninga
- 4 egg, vispuð
- 3 msk marjoram, saxað
- 55 g brauðrasp
Hitið ca. 2 msk af ólífuolíu á pönnu og léttsteikið laukinn og hvítlaukinn í 4-5mín. Skellið grjónunum útí, leyfið grjónunum að verða "gegnsæ" og byrjið þá að hella yfir vökvanum, koll af kolli og leyfið vökvanum að gufa upp áður en meiru er hellt yfir, muna að hræra vel. Látið svo vínið yfir þegar á líður (ef vín er ekki notað þá nota bara aðeins meira soð)
Þegar risottoið virðist tilbúið, þá bæta út í osti, baunum, klettasalati, tómötum, eggjum og 2 msk af marjoram. Saltið og piprið vel og hrærið öllu vel saman.
Látið í djúpt kökuform sem búið er að smyrja með smjöri og þjappið blöndunni í formið. Stráið brauðraspinu og 1 msk af marjoram yfir.
Bakið í 180 C í 30-40 mín eða þangað til raspið verður gullið. Berið fram með góðu salati.
Thursday, February 7, 2008
Rauðrófuklattar með kóríander rjóma
Finnst pínu erfitt að venjast því að sækja ekki Sögu mína þar sem ég er að vinna til kl. 17 og stundum lengur, en þetta er allt að koma og vá hvað helgarnar verða heilagar, maður kann svo sannarlega að meta þær. Fórum í helgarferð til London, litla fjölskyldan, mamma mín, Freyja og Gauti. Það var mjög fínt og sól alla dagana spillti ekki fyrir.
Héldum smá matarboð í janúar, gerði þessa klatta í forrétt í fyrsta skipti og ekki það síðasta. Mjög auðvelt! Mæli með að nota plasthanska, nota þá yfirleitt þegar ég nota rauðrófur því þær lita svo mikið. (það er örugglega hægt líka að nota gulrætur í stað rauðrófa) Í aðalrétt buðum við upp á hina góðu Kasjúw paellu, uppskriftin hérna.
Rauðrófuklattar með kóríander rjóma
- 1 stór rauðrófa, ca 75gr
- 2 kartöflur
- 1/2 gulur laukur
- 1 egg
- 1 krm salt
- Olía til steikingar
- 1 dós sýrður rjómi
- 3-6 msk hakkaður kóríander
- smá salt
Gera: Flysjið rauðrófur og kartöflur og takið utan af lauk, rífið gróft í skál. Bætið út í eggi og salti, fletjið út í 4-6 klatta, kreistið úr sem mestan vökva ef hann hefur myndast, skellið á pönnu og steikið á meðalhita í ca. 3 mín. hvora hlið. Berið gjarnan fram á salatbeði (spínat, ruccola) og skellið slettu af kóríanderrjóma ofan á.
Leyfi myndum af tilraunasushigerð að fljóta með, ég get reynt að setja inn uppskrift ef einhver hefur áhuga? Er engin sérfræðingur í þessu.
Thursday, November 22, 2007
Matarboð á Skúló
Boðið var upp á innbakaðann kjúklingabaunahleif (synd að ég tók engar nærmyndir, verð að segja að sá sem var gerður núna var fallegri og betri en þeir sem ég hef gert áður, maður aðlagar víst að sér réttina), boðið var upp á púrtvínssósu og hnetusósu með, Sara sæta kom með sætar kartöflur/gulrætur gums, Dill og Mill komu með geggjað salat, svo voru auðvitað strengjabaunir, ferskur aspar og annað gómsætt með. Við vorum öll svo södd og litla eldhúsið í rúúuust svo ég komst aldrei í að gera eftirréttinn, það verður bara næst:) Svo verð ég að fara að standa mig í uppskriftunum og segi næst smá frá Frakklandsferðinni.
Saturday, June 9, 2007
Risotto Primavera
Eldar minn varð þrítugur þann 29.maí. Það var ekki fyrr en núna um helgina að það var haldið upp á það með fjölskyldunni og svo næstu helgi með vinum.
En auðvitað var eldaður góður matur handa afmælisbarninu og þar sem Eldar er mjög hrifin af risotto, þá ákvað ég að gera nýja uppskrift sem mig hafði lengi langað til að prófa. Vá, sé ekki eftir því, þetta var rosalegt!! Smá vinna en svo þess virði! Fólki vex oft í augum hversu mikið getur verið í grænmetisréttum, en látið það ekki hræða ykkur og þetta er í raun ekki dýrt miðað við að þetta er veislumatur, getið keypt flest í bónus og svo endað td. í Hagkaup en það er æðislegt að skoða og versla grænmeti og ávexti þar!
Risotto Primavera
fyrir 4-6
- 225 gr ferskur aspas
- 4 msk ólífuolía
- 175 g strengjabaunir, skornar í ca 2,5cm bita
- 175 gr kúrbítur, skorið í fjórðunga (velja mjóan)
- 1 laukur, fínt skorin
- 2 hvítlauksrif, fínt skorin
- 350 gr arborio eða carnaroli hrísgrjón
- 1,5 l grænmetissoð
- 4 vorlaukar, skornir á lengdina, ca. 2, 5 cm
- salt og pipar
- 4 msk smjör
- 115 gr paramesan
- 2 msk graslaukur, saxaður
- 2 msk rifin basilika (ég notaði rauða basiliku sem ég fékk í hagkaup, mjög smart)
- vorlaukur til að skreyta með
Skerið endana af aspasnum, skerið svo í helming eða þrjá bita, fer eftir stærð.
Hitið 2 msk af ólífuolíu á stórri pönnu eða í potti og fáið upp háan hita. Skellið út á aspasnum, baununum og kúrbítnum og snöggsteikið í 3-4 mínútur eða þangað til komin er fallegur ljósgrænn litur og grænmetið hefur mýkst. Setjið til hliðar.
Hitið restina af olíunni í stórum potti á miðlungshita. Látið laukinn út í og mýkið í 1 mín.
Bætið hvítlauk út í og eldið í 30 sek. Bætið svo út í grjónum og eldið og hrærið í ca 2 mín eða þangað til grjónin verða hálf gegnsæ og ötuð í olíu.
Hellið yfir um 1/6 (250 ml) af soðinu, hrærið stanslaust þangað til vökvinn er gufaður upp og bætið þá alltaf útí ca. 1 dl af soðinu, látið gufa upp og svona koll af kolli, aldrei láta grjónin verða alveg"þurr". Þetta tekur um 20-25 mín.
Bætið út í grænmetinu og eigið þá eftir örlítið af soðinu og eldið í um 2 mín. Kryddið með salti og pipar. Hrærið út í paramesan, graslauk og basil.
Takið af hitanum og látið standa í 1 mínútu, berið svo strax fram og endilega skreyta með vorlauk og basiliku.
Verði ykkur að góðu!
Wednesday, April 11, 2007
Innbakaður Páskahleifur með púrtvínssósu
Vaknaði snemma á páskadag til að búa til "páskahleifinn" Í "matarbibilínunni" okkar (1000 Vegetarian recipes) heitir þessi hátíðlegi réttur, "Chick pea Roast" Ég prófaði þetta síðastliðið gamlárskvöld og þetta sló alveg í gegn. Er orðin dálítið þreytt á hnetusteik.
Við fórum svo með hleifinn til tengdó þar sem við borðuðum með þeim, en tengdamamma mín er frábær kokkur. Fengum mozarella ost og salat í forrétt, þau gæddu sér á fínum lambahrygg og svo fengum við æðislegan berja/súkkulaði/rjóma rétt í eftirrétt. Þær myndir eru teknar á litlu vélina og urðu bara ekki fínar, hún er ekki alveg að gera sig svo Eldar segir að hér eftir verði ég bara að taka stærri vélina með! Þetta er smá vinna en alveg þess virði, ótrúlega gott og fallegt.
Innbakaður Páskahleifur með púrtvínssósu
fyrir 6
- 450gr kjúklingabaunir (ca 2 dósir, án vökvans)
- 1 tsk þurrger
- 150 gr saxaðir valhnetukjarnar
- 150 gr brauðrasp (ég nota bara úr pakka)
- 1 laukur, smátt skorinn
- 100 gr sveppir
- 50 gr gular baunir
- 2 - 3 msk púrtvín eða sherrí (ég nota púrt)
- 2 msk grænmetissoð (ég hef reyndar notað um 4msk, annars svo þurrt)
- 1 msk ferskur koríander
- salt og pipar
- 225 smjördeig, í Nóatúni hef ég fengið það í heilu lagi
- 1 egg
- 2 msk mjólk
- 2 msk matarolía, td. rapsolía
- 1 púrra, þunnt sneidd
- 8 msk púrt (má nota sherri)
- 3 dl grænmetissoð
Subscribe to:
Posts (Atom)


