Showing posts with label Forréttir. Show all posts
Showing posts with label Forréttir. Show all posts

Sunday, January 22, 2012

Polenta á fennikubeði.


Polenta er ósjaldan á mínum borðum. Ég átti fenniku (fennel) í ískápnum en fyrir jól steikti ég fenniku í smjöri, sírópi, salti og pipar og hafði ofan á beðinu grillaðan halloumi og fannst mér það smakkast vel saman. Í þetta skiptið átti ég ekki ostinn góða og ákvað því að útbúa polentu "medalíur". Eins eru rauðrófur mikið notaðar á heimilinu og tilvalið að rífa niður ferska rófu með. Þetta var sem aðalréttur hjá okkur en uppskriftin ætti að duga sem forréttur fyrir 4 en þá mætti kannski bæta annari rauðrófu við en ég notaði reyndar litla. Gerði þetta síðustu helgi og vona að ég muni þetta rétt

Polenta á fennikubeði
  • 7 dl vatn
  • 2 dl polentugrjón
  • 1 grænmetisteningur
  • 1-2 dl rifinn ostur, má sleppa
  • 1 dl paramesan, helst ekki sleppa
  • Rifinn börkur af hálfri sítrónu
  • 2 fennikur
  • Síróp
  • 1 rauðrófa
  • 1 fersk fíkja, má sleppa
  • Smjör til steikingar
  • Balsamikedik
  • Salt og pipar

Setjið vatn og tening í pott, fáið upp suðu, takið pottinn aðeins af hellunni og hellið polentu út í og hrærið hratt með písk, passa að ekki myndist kögglar, látið aftur á helluna sem ætti að vera á miðlungshita og hrærið endalaust, það skvettist stundum upp úr pottinum svo ég tek pottinn oft aðeins af og læt á. Þegar þetta er orðið að mjúkri hræru, skellið þá ostinum út í og hrærið niður. Látið svo hræruna í olíusmurt form, ég notaði form sem er ca. 20cm x 15 en getið líka notað bökuform og bara að reyna að hafa þykktina ca. 1 1/2 - 2 cm. Látið formið inn í ískáp.

Skerið af efri og neðri hluta fennikunnar, stundum þarf að henda ysta lagi,skerið í strimla, skolið og þurrkið. Steikið í smjöri, þegar þetta verður pínu glært, skellið þá 1-2 msk af sírópi, getið notað agave en ég notað hlynssíróp (maple). Ég saltaði og pipraði aðeins.

Afhýðið rauðrófuna, ekki vitlaust að nota lítinn plastpoka eða eitthvað til að halda við svo rauði liturinn festist ekki á fingrunum. Notið rifjárn og rífið, helst ekki of fínt. Geymið í skál og mig minnir að ég hafi skvett smá sítrónu yfir.

Takið polentu út úr ískáp. Ég á svona "sívalinga" sem ég keypti í Kokku sem ég nota stundum við matargerð. Notaði þann minni sem er ca. eins og bolli að þvermáli. Notaði eins og form og skar út nokkar "medalíur". Held að það sé alveg hægt að nota bolla til að skera út en annars bara skera í ferninga, ekkert verra. Steikti svo litlu polentubitana upp úr lítilli olíu. Lét sívalinginn á diskana og lét steiktu fennikuna ofan í, svona til að það myndi mynda hringlaga beð (alveg hægt að gera bara fríhendis og gera með höndum). Lét svo polentubita ofan á beðin, lét svo sívaling aftur ofan á polentu, fenniku ofan í og svo aftur polentubita yfir. Látið 1-2 tsk af balsamic yfir rauðrófuna og hrærið í. Ég lét svo sívalinginn við hliðina á "turninum" og hellti rauðrófunni ofan í. Átti ferska fíkju og lét þannig bát efst. Drukkum spánskt rauðvín með og allir mjög sáttir eða já, við bæði, hjónin.

Friday, October 22, 2010

Grillað romaine salad með ofnbakaðri rauðrófu


Á mánudögum langar mann stundum í eitthvað hollt og gott (þó ekki alltaf).
Stóðst ekki mátið að kaupa íslenskt Romaine salat, aldrei keypt slíkt og leit svo girnilega út í búðinni. Átti rauðrófu og smá kínóa (quinoa) og þetta varð afraksturinn:

1 romaine salathöfuð
1 rauðrófa
1 dl kínóa
2 dl vatn
1/2 sítróna
1 tsk timjan
1 hvítlauksrif
1-2 tsk balsamic edik
Smá fetaostur
Smá parmesan (má sleppa)
Ólífuolía
salt & pipar


Hitið ofninn upp í 200°. Afhýðið rauðrófu og skerið í litla teninga. Látið olíu í botninn á eldföstu móti, ég nota úr stáli en ekki td. hvítt, vegna lits úr rófunni.  Látið rófurnar á fatið, látið salt og pipar og svo timjan, muna að mylja það yfir til að fá meira bragð. Hrærið í svo olía og krydd dreifist. Ég skar hvítlauksrifið í tvennt og lét þau á sitthvorn staðinn í mótinu og tók þau svo í lok eldunnar og svo er örugglega líka gott að kremja það og dreifa yfir. Hitið í 20- 40 mín, fer eiginlega eftir smekk hvernig maður vill hafa rófuna, meira harða eða ekki. Ef maður vill fá hana enn mýkri þá mæli ég með að maður sjóði rófuna í smá tíma áður en þetta fer í ofn.
Hitið kínóa í botninum á potti í smá tíma áður en vatnið fer yfir, það dregur fram "hnetukeim/mjúkt bragð", hellið svo vatni yfir, fáið upp suðu og látið svo standa og draga í sig vökvann.

Ég hitaði svo salatið í smá olíu á grillpönnu, en alveg hægt að gera á grilli í ofni eða bara á venjulegri pönnu. Ég sá til að það væri smá olía báðum megin og kreisti einnig smá sítrónu yfir og smá salt og pipar. Tók rófurnar út og blandaði þeim út í pottinn með kínóa, lét þá smá sítrónuskvettu, balsamic, salt og pipar og hrærði saman þangað til að kínóað hefur fengið á sig fallegan bleikan/vínrauðan lit.  Lét smá paramesan yfir salatið og smá feta sem ég átti.
Fannst þetta mjög gott, gæti verið gott líka að hafa rauðlauk með rófunni inni í ofni og eins nota jafnvel gráðost í stað feta yfir salatið. Ef maður fílar ekki balsamic þá mætti líka nota tamari/soya. Bætið við góðu brauði með ef maður vill hafa máltíðina matmeiri.

Sunday, August 30, 2009

Rauðlauks-og fetaferningar og Satay núðlur



Fyrst var grislingunum gefið að borða svo þeir fullorðnu gætu borðað næstum ótruflaðir inni í stofu. Laufey alltaf jafn fyndin

Fengum okkar kæru vini, Bjarka, Laufey og Hrafnkel Núma í mat. Sá síðasnefndi og heimasætan Saga eru miklir mátar og missa sig alveg þegar þau hittast. Bjó til tvo fremur fljótlega rétti sem er nauðsynlegt á föstudögum þegar allir eru pínu þreyttir eftir vinnu og leikskóla. Báðar uppskriftir eru studdar við uppskriftir úr bók sem Barclay vinur minn gaf mér og heitir 101 Veggie dishes..

Rauðlauks- og fetaferningar


  • 1 smjördeigsrúlla (eða plötur í rauðu pökkkunum)
  • 1 stór rauðlaukur
  • 2 msk púðursykur
  • 2 msk balsamic edik
  • 1 lítil krukka svartar ólífur, skornar í helminga
  • Handfylli af basiliku, rifin
Gera: Látið smjördeigið þiðna. Stillið ofnin á 180 gráður. Stráið smá hveiti yfir og rúllið það út og látið á bökunarplötu, með bökunarpappír. Skerið laukinn niður í ræmur, steikið hann á pönnu, ég notaði ólífuolíu en hefði jafnvel notað smjör ef ég hefði átt það. Stráið smá salti yfir og steikið í ca. 5 mínútur. Hellið þá púðursykri yfir, hrærið og hellið svo balsamic edikinu yfir, leyfið þessu að malla í ca. 5 mín í viðbót eða þangað til þetta er svona pínu eins og síróp. Takið af pönnunni og leyfið að kólna aðeins. Stráið jafnt ólífunum yfir smjördeigið og svo fetaostinum, dreifið svo yfir laukblöndunni. Bakið í ofninum í ca. 15-20 mínútur eða þangað til deigið hefur lyft sér og tekið lit. Takið út og skerið í ferninga, stráið svo basilikunni yfir. Over & out

Satay núðlur

  • 1 pakki eggjanúðlur
  • 4 msk hnetusmjör
  • 4 msk sweet chili sósa
  • 1 dl kókosmjólk
  • 1 dl grænmetissoð (ég notaði hálfan tening í sjóðandi vatn)
  • 3 msk soya sósa
  • 2 msk sesamolía
  • 3 msk rifin engiferrót
  • 1 lítið brokkólíhöfuð
  • 1 rauð paprika
  • 1 pakki grænar baunir( man ekki hvað þær heita, langar og hálfmánalaga)
  • 1 dós babymaís, skorin á lengdina ( ég notaði reyndar ekki alla dósina á endanum)
  • 3 hvítlauksrif, fínskorinn
  • lúkufylli af basilikunni (líka í forréttinum, gaman að skipta út kóríander og spara spara)
  • smá salt
Gera: Blandið saman hnetusmjöri, chillisósu, kókosmjólk, soði og soya, hrærið saman þangað til þannig að allt blandist saman. Hellið sjóðandi vatni yfir núðlurnar og látið nuðlurnar losna í sundur, hellið svo vatninu af. . Hitið sesamolíuna á wokpönnu eða annarri pönnu. Snöggsteikið brokkólí, papriku, maís og engiferið. Bætið svo grænu baununum og hvítlauk út í. Steikið í ca. 2 mínútur, hellið þá sósunni yfir og látið suðu koma upp. Blandið núðlum útí. Stráið basilikunni yfir og berið fram. Fínt að bera fram chilimauk/krydd/sweetchili fyrir þá sem vilja meira spicy. Einnig smart að leggja lime sneið á hvern disk fyrir þá sem vilja smá sítrus bragð.

Saturday, August 29, 2009

Sætkartöflu- og aspas hreiður

Fengum góðan vin okkar, Aðalstein Rúnar í mat. Þennan forrétt bjó ég til í snatri og bara bullaði eitthvað. Útkoman var bara nokkuð góð. Og ekki verra að sötra mojito með. Þar sem ég hef verið vægast sagt löt, sjá færslu fyrir neðan, þá man ég svona nokkurn veginn hvað ég gerði.
Sætkartöflu- og aspas hreiður
  • Filodeig (fæst í betri stórmörkuðum)
  • Sæt kartafla
  • Ferskur aspas
  • Sítrónusafi
  • Smjör
  • Timjan
  • Salt og pipar
Skerið sætu kartöfluna í teninga og látið út í sjóðandi saltað vatn svo hún mýkist aðeins en ekki of mikið. Það sem margir ekki vita er að sæt kartafla er í raun úr rófuætt og þess vegna þarf hún mun minni suðutíma en td. venjulega kartafla. Látið aspasinn í sjóðandi vatn í ca. 3-5 mín. Þerrið kartöflur og aspas. Ég hafði aldrei unnið með filodeig, það er þynnra en smjördeig og þarf mjög stuttan tíma í ofni. Ég skar og reif það í ferninga sem ég svo lét ofan í muffinsstálform, það er að segja, bjó til sex hreiður og skellti því svo inn í ofn. Á meðan lét ég smá smjör á heita pönnu, skellti kartöflum og aspas á í stutta stund, kryddaði með salti, pipar, timjan og smá sítrónusafa. Mér fannst timjan gera mikið fyrir bragðið. Það stóð svo til að láta þetta ofan í "hreiðrin" og aftur inn í ofn en þau voru orðin dökk og stökk svo ég lét fyllingu í hvert hreiður og bar strax fram á beði spínatblaða. Úr varð hin fínasti forréttur.

Thursday, November 20, 2008

Huggulegt matarboð

Sósan er eiginlega enn fallegri í "alvöru", meira bleik

Þarna sitjum við, ég hálfskrítin á svip og kannski ekki besta myndin en fær að fylgja með:)

Fennikan góða, þetta er í raun mjög einfaldur og góður forréttur

Jæja, þá er komið að því, Rauðrófu pasta rétturinn góði! Fengum Helgu Kristínu, Alla og Hrefnu mágkonu í heimsókn. Fengum reyndar aukaheimsókn en það er önnur saga. Það er ekkert leyndarmál að ég elska rauðrófur svo hér kemur ein góð uppskrift, tekin úr bók sem heitir "Grænmetisréttir af gnægtarborði jarðar", bók sem einhver góður gaf mér fyrir löööngu síðan, örugglega 15 árum síðan og hún var alltaf ofan í einhverjum kassa, beið örugglega eftir að ég gerðist grænmetisæta. Eldar fór í fyrra í Kolaportið þar sem bókin var á söluborðinu. Ég gluggaði í hana og bjargaði henni frá sölu, enda "gnægtir" af góðum uppskriftum! Í henni fann ég líka fínan forrétt þar sem aðalhráefnið er fennika, á myndinni lítur hann reyndar pínu út eins og hálf akurhæna eða eitthvað en látið ekki myndina blekkja. Voila!

Rauðrófupasta

handa 4
  • 225 g soðnar rauðrófur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 msk sítrónusafi
  • 3 dl rjómi
  • 1 tsk balsamedik
  • 1 tsk dijon sinnep
  • sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
  • 400 g pasta (ég notaði tagliatelle)
  • 1 msk ólífuolía
Gera: Setjið rauðrófurnar, hvítlaukinn, sítrónusafann og helminginn af rjómanum í matvinnsluvél eða blandara og gerið úr því jafnt mauk. Setjið blönduna í meðalststóran pott, hellið afganginum af rjómanum ´út í og hitið við lágan hita. Látið þetta hitna vel í um 8-10 mínútur en ekki sjóða. Bætið við balsamediki, sinnepi, salti og mikið af pipar. Hrærið vel og hafið lágan hita. Sjóðið pastað. Látið renna af pastanu í sigti, látið aftur í pottinn, hellið yfir olíunni og hrærið. Deilið pastanu á diska og svo sósu yfir, ekki verra að strá ferskri kryddjurt yfir. Yummie (þá má jafnvel láta aðeins meira dijon ef maður er sjúkur í dijon eins og ég)
p.s. svona á "krepputímum" þá er ég að spá í að prófa rauðrófur í krukku, ath bara að þær eru bæði súraðar og sætar svo kannski þarf að breyta eitthvað hlutföllum á öðru. Einnig nota ég yfirleitt matreiðslurjóma í stað venjulegs

Bökuð fennika
  • 900 g fennikuhnýði (keypti í Hagkaup, ekki eins dýrt og ég hélt en þetta var fyrir "kreppu"
  • 50 g smjör
  • 1/2 tsk múskat
  • salt og nýmalaður svartur pipar
  • 50 g nýrifinn paramesan ostur

Hitið ofninn í 200, Hreinsið fennikuna, fleygið öllum sködduðum blöðum, skerið fíngerðu blöðin af (líta pínu út eins og dill). Skerið "hnýðin" þversum eða í tvennt og sjóðið í léttsöltuðu vatni þar til þau eru mjúk, í ca. 10-15 mín. Látið renna vel af þeim. Smyrjið grunnt ofnfast fat. Setjið fennikuna í fatið og stráið á hana múskati, salti og pipar. Setjið afganginn af smjörinu ofan á í. í klípum o gstráið paramesan ostinum efst. Bakið í miðjum ofni þar til rétturinn er orðinn gullbrúnn, í um 10 mínútur. Setjið fíngerðu fennikublöðin yfir og berið fram

Thursday, February 7, 2008

Rauðrófuklattar með kóríander rjóma

Jamm, ný uppskrift, enda tími til kominn. Og gleðilegt ár og allt það. Andleysið hefur verið í meiralagi og hreinlega engir aukakraftar í matreiðslu og bloggskrif. Janúar var pínu þungur svona fyrir sálartetrið en finn að maður er allur að koma til með hækkandi sól. Byrjaði í nýju starfi í byrjun janúar, kynningarfulltrúi að gera ýmislegt í Hinu Húsinu og ég kann bara mjög vel við mig. Það var smá breyting að byrja í fullu starfi eftir að hafa verið í verkefnavinnu og ráðið sér og sínum tíma sjálf.
Finnst pínu erfitt að venjast því að sækja ekki Sögu mína þar sem ég er að vinna til kl. 17 og stundum lengur, en þetta er allt að koma og vá hvað helgarnar verða heilagar, maður kann svo sannarlega að meta þær.
Fórum í helgarferð til London, litla fjölskyldan, mamma mín, Freyja og Gauti. Það var mjög fínt og sól alla dagana spillti ekki fyrir.

Héldum smá matarboð í janúar, gerði þessa klatta í forrétt í fyrsta skipti og ekki það síðasta.
Mjög auðvelt! Mæli með að nota plasthanska, nota þá yfirleitt þegar ég nota rauðrófur því þær lita svo mikið. (það er örugglega hægt líka að nota gulrætur í stað rauðrófa) Í aðalrétt buðum við upp á hina góðu Kasjúw paellu, uppskriftin hérna.

Rauðrófuklattar með kóríander rjóma
  • 1 stór rauðrófa, ca 75gr
  • 2 kartöflur
  • 1/2 gulur laukur
  • 1 egg
  • 1 krm salt
  • Olía til steikingar
Kóríanderrjómi

  • 1 dós sýrður rjómi
  • 3-6 msk hakkaður kóríander
  • smá salt
Gott að gera blanda þessu saman og leyfa að standa í kæli í smá tíma. Endilega bragðbætið með smá hvítlauk eða piparrót
Gera: Flysjið rauðrófur og kartöflur og takið utan af lauk, rífið gróft í skál. Bætið út í eggi og salti, fletjið út í 4-6 klatta, kreistið úr sem mestan vökva ef hann hefur myndast, skellið á pönnu og steikið á meðalhita í ca. 3 mín. hvora hlið. Berið gjarnan fram á salatbeði (spínat, ruccola) og skellið slettu af kóríanderrjóma ofan á.

Leyfi myndum af tilraunasushigerð að fljóta með, ég get reynt að setja inn uppskrift ef einhver hefur áhuga? Er engin sérfræðingur í þessu.







Wednesday, April 11, 2007

Föstudagurinn Langi





Hélt áfram að þrífa í dag, í dag voru það neðri eldhússkáparnir, uss, þeir voru ógeð.
Ætlaði að elda lime risottóið vinsæla fyrir Karlottu systir og Kidda kærasta hennar. Við skulum segja að við systur erum ekki beint með sama matsmekk, hún og pabbi eru mikið fyrir kjötið og grænmeti er eitthvað auka. En svo átti ég ekkert risotto og þá voru góð ráð dýr. Ég var líka orðin þreytt og pirruð eftir þrifin í eldhúsinu og átti erfitt með að ákveða hvað átti að elda.

Ákvað að gera
polentu með strengjabaunum í forrétt, og nota sætu kartöflurnar sem áttu að fara í ofninn í pottrétt. Þetta var tilraunastarfsemi sem bar góða raun og systa vildi uppskriftina, það er sko hrós.

Ég er búin að prófa mig áfram með polentu og ég mæli með að þú/þið prófið þetta, slær alltaf í gegn, mun auðveldara en maður heldur, ótrúlega gott og pínu öðruvísi. Líka gott með ferskum aspas, asísku wok, eða bara eitt og sér....það munu örugglega koma fleiri uppskriftir með þessum smáu gulu grjónum

Polenta með strengjabaunum fyrir 4

  • 1 l grænmetissoð (2 teningar og vatn)
  • 4 dl polentugrjón
  • 1 dl paramesan
  • salt og pipar
  • 1 laukur, smátt skorin
  • 100-200gr strengjabaunir, ofan á
Mýkið laukinn í 2-3 mín, hellið svo polentagrjónunum yfir og þar á eftir soðinu,hrærið og fáið upp suðu. Látið sjóða í ca 2 mín og takið svo af hellunni. Látið blönduna yfir í smurt form með góðum köntum og þrýstið þannig að hún verði þétt, þykktin ætti að vera uþb 2-4 cm, þarf ekki að vera svo nákvæmt og maður prófar sig áfram.
Látið blönduna standa í 10 mín á borði, jafnvel við glugga og svo inn í ísskáp í minnst 30 mín en má vera mun lengur.

Takið út og myndið jafna ferninga 10cm x 10cm(ég gerði hálfa uppskrift í þetta skiptið þar sem þetta var forréttur en annars geri ég heila)
Skellið ferningana á pönnu, ég nota grillpönnu með örlitlu non-stick sprayi eða notið örlitla olíu sem þið dreifið með td. smá eldhúsrúllupappír (má líka grilla á grind í ofni)
Grillið eða steikið bitana í ca. 5-10 mín, fallegt að fá rendur á bitana.

Látið baunirnar í sjóðandi, saltað vatn í ca. 5 mín. Hellið af vatni, látið í skál, hellið yfir skvettu af ólífuolíu, smá sítrónusafa, sjávarsalti og nýmöluðum pipar, namm!

Skellið polentubitanum á disk, raðið baununum ofan á, stráið smá paramesan yfir og gerið jafnvel rönd af balsamic edik í kringum (tókst reyndar ekkert of vel hjá mér, sjá mynd)

Verði ykkur að góðu!!

"Sætar kartöflur" pottréttur fyrir 4

  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 3 sætar kartöflur
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • 1/2 dós eða lítil dós af kókosmjólk
  • 1 grænmetisteningur, leystur upp í örlitlu af sjóðandi vatni
  • Ferskur kóríander til að strá yfir (má sleppa)
Kryddin eru svona ca hjá mér þar sem ég mældi ekkert:
  • 1 msk paprikuduft
  • 1 - 2 tsk cumin
  • 1/2 tsk kanill
  • 1/2 tsk carry
  • 1/2 tsk cayenne pipar
  • 1/2 tsk chilipipar
  • salt og pipar
Berið fram með hrísgrjónum og salati. Gott er að hafa hreina jógúrt með smá hvítlauk, salti, pipar, sítrónusafa og steinselju)