Showing posts with label Hollt og gott. Show all posts
Showing posts with label Hollt og gott. Show all posts

Monday, May 4, 2009

Engiferyndi


Átti kóríander og engifer og langaði að nota það. Átti engar núðlur, langaði í eitthvað létt og mjög fljótlegt. Þetta varð útkoman og ég held að ég sé ekki að gleyma neinu, hafði svo sem ekki ætlað þetta síðunni en fannst þetta bara svo gott og ekki verra að 5 mín tók að gera þetta. Það er nauðsynlegt að eiga strengjabaunir eða hvað þær nú heita í frystinum, ég nota þær endalaust.

Engiferyndi

Sorry, hér verða engin hlutföll uppgefin, bara man þau ekki en maður fær alla vega hugmynd um hvernig maður gerir þennan ofureinfalda og létta rétt.
Skellti sesamlíuolíu á pönnuna, svo lauknum og á eftir því hvítlauknum, lét malla í smá stund. Skellti svo frosnu baununum út í og reif svo engiferið yfir, lét malla stutta stund í viðbót áður en ég bætti við kjúklingabaununum og lét malla örlítið lengur. Stráði kóríander yfir og kreisti svo yfir smá lime. Það er svo auðvitað tilvalið að hafa þetta með núðlum eða grjónum með en ég vildi þetta svona létt þetta skiptið.

Wednesday, April 15, 2009

Spínat- og skyr tortillur á tómatbeði

Hrefna mágkona mín passar stundum Sögu fyrir okkur. Þá reynir maður nú helst að gefa henni gott í gogginn svo að hún vilji koma sem oftast. Ekki nóg með að þessi uppskrift sé ljúfeng, þá er hún bara nokkuð holl. Mig minnti að ég væri þegar búin að gefa hana upp, geri þetta reglulega, en eftir að hafa rennt í gegnum þær uppskriftir sem komnar eru, þá sé ég að ég minnist á hana í október 2007 að ég hafi eldað þetta handa Karlottu systir og mág minn þegar þau pössuðu einmitt. Um leið og ég renndi yfir þá tók ég eftir hversu fáa eftirrétti ég hef gefið upp, en þeir hafa og eru alltaf mín veika hlið. Segjum það áskorun héðan í frá!

"Pössunartortillur" með spínati og skyri á tómatbeði

  • 1 rauðlaukur, skorin
  • 1-2 hvítlauksrif, kraminn
  • 500 g ferskt spínat, 250 g frosið.
  • 150 g. hreint skyr
  • 100 g rjómaostur
  • 1/2-1 tsk múskat
  • 1/2 - 1 dós nýrnabaunir
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 4 msk sýrður rjómi (má sleppa)
  • 4 tsk paramesan ostur
  • salt og pipar
  • 6-8 heilhveititortilllur eða bara venjulegar
Steikið lauka í olíu í 2-3 mín á háum hita, lækkið svo hitann, sér í lagi ef notað er fryst spínat, hrærið og snúið því við þangað til það er farið að losna í sundur, það gæti þurft að hella auka vökva í burtu, ef ferskt er notað þá bara steikja þangað til að það hefur mýkst og minnkað. Bætið svo út í baunum, skyri og rjómaosti, kryddið með salti, pipar og múskati.

Smyrjið eldfast mót með ólífuolíu, hellið tómötunum útí, saltið, piprið og notið jafnvel chayenne pipar eða chili pipar. Skiptið fyllingunni á pönnukökurnar, rúllið upp og látið "sárið"
snúa niður. Bakið í ca. 15 mín á 200∘

Takið út og skellið smá sýrðum rjóma og paramesan á hverja tortillu. Ég bar þetta svo fram með brúnum grjónum og góðu salati.

Monday, October 27, 2008

Hirsi tacos





Jæja, spurning um að vera með nýja uppskrift á 3 mánaða fresti. Ég er með nokkrar í biðstöðu og nú ætla ég að vera aðeins duglegri því mér finnst þetta svo skemmtilegt, ja að laga mat en löt að blogga. Ekki er verra að flestar uppskriftana á blogginu eru ódýrar eða í ódýrari kantinum og það er algjör goðsögn að það sé endilega dýrt að vera grænmetisæta.

Var víst löngu búin að lofa að láta þessa inn því hún bara klikkar ekki, holl og alls ekki dýr(er í bókinni Vego sem var fyrsta grænmetisuppskriftabók okkar Eldars). Hirsi er járn- og steinefnaríkt og grænu linsurnar eru einnig mjög járnríkar.
Eins og ég hef oft sagt áður þá látið ekki innihaldslistann hræða ykkur því þegar þið hafið gert þennan rétt einu sinni, þá verður ekki aftur snúið og þá getur maður líka leikið sér aðeins með hann.

Hirsi tacos
  • 2dl soðið hirsi (ég giska á að það sé 1 og 1/2 dl ósoðið)
  • 2dl soðnar grænar linsur ( sama hér myndi ég giska)
  • 4dl vatn
  • 2 dl nýrnabaunir ( skellið bara öllu útí ef þið notið úr dós svo engu sé hent)
  • 1 rauð paprika
  • grænar baunir
  • 1 gulur laukur
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 1 gulrót
  • 1 tómatur
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • olía
  • salt og pipar
  • tacoskeljar
  • Avacado (ég bý til guacamole, má sleppa)
  • rifinn ostur
  • 1stk chili (ef Saga er ekki með, annars kryddar maður bara sjálfur eftirá)

Gera:
Sjóðið hirsi og linsur í vatninu, hakkið smátt lauk, hvítlauk, gulrót og papriku, léttsteikið í olíu. Bætið svo út í hirsiblöndunni og nýrnabaunum og hellið svo hökkuðu tómötunum útí og blandið öllu saman. Leyfið þessu að malla í ca. 10 mínútur. Hitið tacoskeljarnar í ofni. Bætið svo út í grænu baununum og kryddið með salti og pipar og berið fram í skeljunum ásamt avacado eða guacomole, og rifnum osti.

Ég tek svo yfirleitt allt fram sem til er: feferoni (þetta græna á myndunum, fæst í ýmsum betri búðum), fetaost, jalapenos, grænar ólfur, salat og bara allt sem manni dettur í hug

Maður getur að sjálfsögðu notað annars konar grjón/korn, rauðar linsur, maísbaunir í stað grænna bauna, annað grænmeti, frosið grænmeti og mjúkar tortillur. Nú eða borða þetta bara sem pottrétt.