Showing posts with label Salöt. Show all posts
Showing posts with label Salöt. Show all posts

Friday, October 22, 2010

Grillað romaine salad með ofnbakaðri rauðrófu


Á mánudögum langar mann stundum í eitthvað hollt og gott (þó ekki alltaf).
Stóðst ekki mátið að kaupa íslenskt Romaine salat, aldrei keypt slíkt og leit svo girnilega út í búðinni. Átti rauðrófu og smá kínóa (quinoa) og þetta varð afraksturinn:

1 romaine salathöfuð
1 rauðrófa
1 dl kínóa
2 dl vatn
1/2 sítróna
1 tsk timjan
1 hvítlauksrif
1-2 tsk balsamic edik
Smá fetaostur
Smá parmesan (má sleppa)
Ólífuolía
salt & pipar


Hitið ofninn upp í 200°. Afhýðið rauðrófu og skerið í litla teninga. Látið olíu í botninn á eldföstu móti, ég nota úr stáli en ekki td. hvítt, vegna lits úr rófunni.  Látið rófurnar á fatið, látið salt og pipar og svo timjan, muna að mylja það yfir til að fá meira bragð. Hrærið í svo olía og krydd dreifist. Ég skar hvítlauksrifið í tvennt og lét þau á sitthvorn staðinn í mótinu og tók þau svo í lok eldunnar og svo er örugglega líka gott að kremja það og dreifa yfir. Hitið í 20- 40 mín, fer eiginlega eftir smekk hvernig maður vill hafa rófuna, meira harða eða ekki. Ef maður vill fá hana enn mýkri þá mæli ég með að maður sjóði rófuna í smá tíma áður en þetta fer í ofn.
Hitið kínóa í botninum á potti í smá tíma áður en vatnið fer yfir, það dregur fram "hnetukeim/mjúkt bragð", hellið svo vatni yfir, fáið upp suðu og látið svo standa og draga í sig vökvann.

Ég hitaði svo salatið í smá olíu á grillpönnu, en alveg hægt að gera á grilli í ofni eða bara á venjulegri pönnu. Ég sá til að það væri smá olía báðum megin og kreisti einnig smá sítrónu yfir og smá salt og pipar. Tók rófurnar út og blandaði þeim út í pottinn með kínóa, lét þá smá sítrónuskvettu, balsamic, salt og pipar og hrærði saman þangað til að kínóað hefur fengið á sig fallegan bleikan/vínrauðan lit.  Lét smá paramesan yfir salatið og smá feta sem ég átti.
Fannst þetta mjög gott, gæti verið gott líka að hafa rauðlauk með rófunni inni í ofni og eins nota jafnvel gráðost í stað feta yfir salatið. Ef maður fílar ekki balsamic þá mætti líka nota tamari/soya. Bætið við góðu brauði með ef maður vill hafa máltíðina matmeiri.

Monday, April 23, 2007

Foreldradinner




Á laugardagskvöldið fyrir viku síðan fengum við hingað góða gesti, hina nýbökuðu foreldra, Bjarka og Laufey og litla kút, sem er alveg yndislegur, hvað skyldi hann eiga að heita? (Eldar/Eva= Elvar?)
Borðuðum með smá hléum (krílin þurfa líka sinn mat), salat, risotto og svo frábæran eftirrétt sem þau komu með, ber, makkarónur og hvítt súkkulaði í ofni, borið fram með ís, namm!!!
Þetta var ótrúlega gaman og svo fyndið eitthvað að vera þarna saman, foreldrarnir, haha. Nú verðum við að fara að haga okkur.

Salat með gráðosti
fyrir 4
  • Smá ruccola á hvern disk
  • 4-5 tómatsneiðar, raðað ofan á ruccolað
  • 1 tsk af litlum kapers á hvern disk
  • Rífið smá gráðost yfir hvern disk
  • Rífið eða klippið yfir hvern disk ferska basiliku
  • 3-5 grænar ólífur (helst fylltar með möndlu) á hvern disk
  • saltflögur/sjávarsalt, pipar og skvettu af balsamic edik, já, á hvern disk:)

Sveppa og valhnetu risotto
fyrir 4

  • 4 fínhakkaðir skallottulaukar (eða 2 litlir gulir)
  • 4 hvítlauksrif, fínt hökkuð eða marin
  • ca 300 gr sveppir (hægt að nota blöndu, td. shiitake)
  • Smá klípa af smjöri og smá ólífuolía að steikja upp úr
  • 6 dl aborio ris (risotto ris)
  • 12 dl grænmetissoð (sjóðandi vatn og 2 teningar)
  • 4-6 dl hvítvín (má sleppa og nota meira soð en þó betra með víni)
  • 3-4 dl rifinn paramesanostur
  • 3-4 dl hakkaðar valhnetur
  • Nýmalaður svartur pipar

Steikið lauk, hvítlauk og sveppi, án þess að það taki á sig lit, bætið út í rísi og steikið í smástund þannig að rísið verði næstum gegnsætt. Hellið soðinu yfir, smá og smá í einu og hrærið mikið.

Þegar vökvinn er farin, þá bætið meira út í, líka víni í bland við soðið. Hrærið alltaf í. Takið af eldavélinni eftir ca. 20-30 mín. Hrærið ostinum útí. (Rísið á að vera orðið "kremkennt" þegar ostinum er bætt í)


Bætið út í valhnetunum og bragðbætið með piparnum. (geymið nokkrar valhnetur til að skreyta ofan á , dreifið yfir smá osti og jafnvel smá steinselju)