Showing posts with label Ýmislegt. Show all posts
Showing posts with label Ýmislegt. Show all posts

Monday, April 9, 2012

Smalabaka a la grænmetis..




Fjölskyldan ákvað að skella sér á Aldrei fór ég suður á Ísafirði yfir páskana. Gistum á Suðureyri, svo huggulegt og ásamt því að sækja hátíðina góðu þá skelltum við okkur m.a. í kaffi á Þingeyri, börn og eiginmaður skelltur sér til Bolungarvíkur, Diljá vinkona átti afmæli, ég átti afmæli og við hittum fullt af skemmtilegu fólki. Takk fyrir okkur og vonandi áttu allir gleðilega páska. Í einhverju af fjölmörgum samtölum helgarinnar var talað um Shepards pie eða smalaböku. Ákvað að útbúa grænmetisútgáfu.

Skoðaði netið í hugmyndaleit og má segja að þessi sé upp úr þremur útgáfum, þ.e. mér leist ágætlega á hluta af hverri og blandaði svo saman í mína eigin útgáfu. Þetta var bara mjög gott og hressandi að fá sér grænmeti og linsubaunir eftir pizzur, samlokur og annað hressandi fyrir vestan.


Smalabaka a la grænmetis
..
  • 2 dl grænar linsur
  • 3 stórar kartöflur
  • 1 dl nýmjólk eða rjómi.
  • 1/2 laukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 1/2 dallur sveppir (svona eins og fást í búðum)
  • 1/2 lítið brokkólíhöfuð, skorið frekar smátt.
  • 1 tsk oregano
  • 1 tsk salvia
  • 1/4 tsk múskat
  • 2 msk tómatpaste
  • Salt og pipar
Skolið linsurnar og látið í potn, hellið yfir 5,6 dl af vatni yfir, fáið upp suðu og látið svo malla í 30-40 mínútur, þess vegna mikilvægt að byrja á þessu. Skrælið og skerið kartöflur í meðal bita, fáið upp suðu, ætli þetta taki ekki um 10 mínútur, passa bara að þær verði ekki of mjúkar. Látið ofninn á 200 gráður.

Lét svo linsur í sigti, svo aftur í pottinn þegar vatn var runnið af. Steikti í smá smjöri og ólífuolíu laukinn, hvítlauk, svo eftir smá stund brokkolíið og sveppina þangað til sveppirnir hafa mýkst.
Hellti svo þessari blöndu saman við linsurnar, bætti kryddinu út í (oregano, salvíu og tómatpaste), einnig slatta af salti og pipar. Smakkið endilega blönduna, á að smakkast góð svona eintóm.

Hellið vatni af kartöflum, skellið smjörklípu út í, lét örugglega um 2 msk. Helli múskat í. Hrærið rólega í og hellti svo 1 dl af nýmjólk út í , hrærði svo með þeytara þangað til silkimjúkt. Kannski ég láti líka örlítinn sykur eða smá agave næst út í hræruna, svo gott að fá sætt á móti söltu.
Skellið svo linsublöndunni í olíusmurt form, jafnið út, látið svo kartöflumúsina yfir. Ég ákvað að nota svona sprautupoka til að fá fallega toppa. Hafið inni í ofni í 20-30 mínútur eða þangað til kartöflumúsin/topparnir taka á sig brúnan lit. Ég reif smá paramesan yfir. Gott að bera fram með góðu salati.

Tuesday, October 27, 2009

Indverskur gulróta og rauðrófuréttur

Hafði með heimabúna raita, pitubrauð sem ég læt inn í ofn með smá olíu og kúmenfræum, spínat, hrísgrjón og svo picklesið góða..

Þeir sem þekkja mig vita að ég elska rauðrófur. Langaði í eitthvað með indversku ívafi, þá helst til að geta borðað með "pataks lime pickles" sem ég hafði keypt, ég er eiginlega sjúk í það og mæli með að eiga eina krukku af svona í ískápnum. Ég ákvað að skrifa niður það sem ég setti út í pottinn og sé ekki eftir því, þetta var mjög vel heppnaður réttur þó ég segi sjálf frá og húsbóndinn kvartaði ekki. Ekki láta það stoppa ykkur ef þið eigið ekki sinnepsfræin. En þau eru hressandi í flestan indverskan mat og því gott að eiga í skápnum. Sé að einhverjir eru að lesa þessar uppskriftir. Ef eitthvað er óljóst, þá bara að spyrja. Veit að ég er ekkert mjög nákvæm og ég td. er yfirleitt ekkert að segja hvernig á að skera laukinn, í nákvæmlega hversu margar mínútur sumt að vera osfrv. En endilega spyrja/senda in comment ef eitthvað er óljóst, þykir vænt um það.

Indverskur gulróta- og rauðrófuréttur
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 3 gulrætur
  • 2 rauðrófur
  • 2 dl rauðar linsur
  • 2 dl heitt vatn plús 1/2 grænmetisteningur
  • 1 kókósmjólk
  • 1/4 chayenne pipar
  • 1/2 sinnepsfræ (mustardseeds)
  • 1 tsk cumin
  • 1 tsk turmeric
  • 1/2 tsk engifer
  • Salt og pipar
Gera
Steikið lauk og hvítlauk í 2-3 mínútur, bætið svo út í linsum, gulrótum og rauðrófum, steikið í 1-2 mínútur, stráið þá öllu kryddum yfir og hrærið í. Hellið soðinu yfir og fáið upp suðu. Bætið þá kókósmjólk útí. Örlítið salt og pipar. Látið í malla í ca. hálftíma (úbs, gleymdi að skrifa það hjá mér en minnir að það sé 30-45mín)

Wednesday, September 9, 2009

Bulgur með blauðlauk og trönuberjum


Hér er einn, einfaldur og góður bulgur réttur. Trönuberin koma "skemmtilega" inn. Þau eru dálítið dýr en ég sá þau á snakkstandi í 10-11 þar sem þau kostuðu undir 300 kr og það er ágætisverð. Svo má alveg nota 1 dl, ég notaði eitthvað minna af því restina notaði ég í eitthvað annað. Svo má örugglega prófa rúsínur. Ég nota ekki oft smjör en í þessum rétti fannst mér smjörið ómissandi, púrra og smjör gefa svo gott bragð saman en það má líka alveg nota olíu..bar þetta fram með ruccola salati og brauði.
Bulgur með blaðlauk og trönuberjum ( f.6)

  • 4 msk smjör
  • 5 dl niðurskorinn blaðlaukur(púrra)
  • 12 dl grænmetissoð ( 2ten)
  • 7 dl búlgur
  • 1 Gul paprika
  • 2 dl trönuber ( þurrkuð)
  • 2 dl möndluflögur, ristaðar (má sleppa)
Svo mætti vel bæta við kjúklingabaunum, þær myndu passa vel með og gera réttinn drýgri og einnig eru þær auðugar af sinki, fólasíni og próteini sem er ekki verra ef maður vill auka næringargildið.
Gera:
Steikið blaðlaukinn í smjöri eða þangað til hann er orðinn vel mjúkur. Hellið þá soðinu yfir og látið suðu koma upp. Hellið þá bulgunum út í og hrærið, sjóða í ca. 5mín. Bætið trönuberjum og paprikubitum útí og takið af hellunni, látið lokið á og látið standa í ca. 10-15mín. Hrærið í með gaffli, til að skilja grjónin að. Saltið og piprið. Stráið svo möndluflögunum yfir.

Friday, August 28, 2009

Hitt og þetta

Undanfarna mánuði hef ég tekið myndir af mat sem ég hef eldað en aldrei drifið lengra enn það, þe. að skrifa uppskriftina, láta myndirnar inn í tölvuna osfrv. Og svo auðvitað gleymi ég bara hvað ég setti í þegar ég hef verið að "bulla" eitthvað yfir pottunum. Langar samt að henda inn nokkrum myndum en sleppi mörgum, bara langar að deila þessum myndum sem tengjast góðum minningum.

Elísabet Narda ásam foreldrum kom í mat og kom heldur betur færandi hendi, gaf Sögu hjólið sitt og hjálm, svo góð við yngri vinkonu sínaÉg eldaði einn Dahl rétt og indverskan rauðrófurétt en man ekkert hvað var í þessu annarsPablo virtist sátturEldur var einnig mættur ásamt Myrru móður sinni, hann og Elísabet Narda að gæða sér á blönduðum melónukúlum. Sagan var farin í háttinn
Sætu Santos hjónin
Var í London í júní, borðaði geðveikan mexíkanskan mat á stað í Covent Garden að mig minnir, namm
Fór á námskeið í Guimares, Portúgal í júní, þar sem gjörsamlega var dekrað við grænmetisæturnarFrá Portúgal, mmm
Einhverjir afgangar úr ískápnum, var svo ofsagott og litríkt, sýnist þetta vera hirsi/quinoa, gulrætur, harricot baunir (á alltaf til frosnar) vínber, tómatar, sítrónusafi, salt, feta on the side..

Sunday, April 19, 2009

Oft þarf ekki mikið til að gleðja


Hélt brunch fyrir nokkrar vinkonur um daginn. Hafði verið að vinna á úrslitum Músiktilrauna kvöldið áður og því tekið meðvitaða ákvörðun um að halda myndarskapnum í lágmarki og hafa þægindin í hámarki. Þ.e. keypti bara það sem þurfti (stelpur, bíð næst upp á eggjahræru, pönnukökur og annað góðgæti) Og hjúkk, því ég var orðin frekar slöpp þegar stelpurnar komu og gjörsamlega raddlaus svo ég sat bara við endann og þagði að mestu (gott að aðrir fái loks að komast að, haha) Alla vega, að brunchinum loknum lá leiðin í afmæli hjá afa Eldars, honum Gísla. Hafði ætlað að kaupa eitthvað handa honum á leiðinni en tímaskortur gerði að ég ákvað bara að setja saman 2 muffins í sellófan með 2 litlum páskaeggjum og svo límdi ég eitt af uppáhalds lögum Sögu, Fann ég á fjalli, framan á en hún hafði verið að syngja þetta heima hjá langömmu og -afa um daginn og ömmu Guðný fannst það svo fallegt. Þetta hitti alveg í mark, sjálfri þykir mér svo gaman að svona gjöfum og maður þarf að muna að það er hugurinn sem skiptir máli.

Wednesday, April 15, 2009

Spínat- og skyr tortillur á tómatbeði

Hrefna mágkona mín passar stundum Sögu fyrir okkur. Þá reynir maður nú helst að gefa henni gott í gogginn svo að hún vilji koma sem oftast. Ekki nóg með að þessi uppskrift sé ljúfeng, þá er hún bara nokkuð holl. Mig minnti að ég væri þegar búin að gefa hana upp, geri þetta reglulega, en eftir að hafa rennt í gegnum þær uppskriftir sem komnar eru, þá sé ég að ég minnist á hana í október 2007 að ég hafi eldað þetta handa Karlottu systir og mág minn þegar þau pössuðu einmitt. Um leið og ég renndi yfir þá tók ég eftir hversu fáa eftirrétti ég hef gefið upp, en þeir hafa og eru alltaf mín veika hlið. Segjum það áskorun héðan í frá!

"Pössunartortillur" með spínati og skyri á tómatbeði

  • 1 rauðlaukur, skorin
  • 1-2 hvítlauksrif, kraminn
  • 500 g ferskt spínat, 250 g frosið.
  • 150 g. hreint skyr
  • 100 g rjómaostur
  • 1/2-1 tsk múskat
  • 1/2 - 1 dós nýrnabaunir
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 4 msk sýrður rjómi (má sleppa)
  • 4 tsk paramesan ostur
  • salt og pipar
  • 6-8 heilhveititortilllur eða bara venjulegar
Steikið lauka í olíu í 2-3 mín á háum hita, lækkið svo hitann, sér í lagi ef notað er fryst spínat, hrærið og snúið því við þangað til það er farið að losna í sundur, það gæti þurft að hella auka vökva í burtu, ef ferskt er notað þá bara steikja þangað til að það hefur mýkst og minnkað. Bætið svo út í baunum, skyri og rjómaosti, kryddið með salti, pipar og múskati.

Smyrjið eldfast mót með ólífuolíu, hellið tómötunum útí, saltið, piprið og notið jafnvel chayenne pipar eða chili pipar. Skiptið fyllingunni á pönnukökurnar, rúllið upp og látið "sárið"
snúa niður. Bakið í ca. 15 mín á 200∘

Takið út og skellið smá sýrðum rjóma og paramesan á hverja tortillu. Ég bar þetta svo fram með brúnum grjónum og góðu salati.

Thursday, December 27, 2007

Gleðilega hátíð og allt það

Kæru vinir og vandamenn.

Vona að þið hafið átt ánægjuleg jól og að þið hafið getað slakað aðeins á.

Við höfum haft það mjög gott, mörg góð fjölskylduboð og smá afslöppun.
Það hefur nú verið frekar rólegt í eldhúsinu á þessum bæ, alltaf sömu réttirnir en vonandi verður þar breyting á nýju ári. Annars vil ég bara þakka fyrir mig og mína á árinu sem er að líða og hlakka til spennandi tíma á nýju ári. Má til með að láta fylgja með myndbút með Sögu minni en hún Helga Kristín gaf okkur þetta í aukajólapakka og erum við henni þakklát, alltaf gaman að rifja upp "gamlar" stundir með henni Sögu okkar. Þarna er hún í ungbarnasundi:)
Sjá: "Saga Sundgarpur"

Gleðilegt nýtt ár!!!!

Tuesday, December 4, 2007

Rómó Frakklandsferð













Ok, þetta er lengsta bloggfærsla í heimi og svo mætti halda að við vinnum fyrir franska hótelmálaráðið, ef það er til, haha...
Við fórum sem sagt til Frakklands í helgarferð, 16.-19.nóvember en 17. nóv áttum við 10 ára samveruafmæli.
Var pínu kvíðin vegna Sögu sem var hjá ömmu og afa í Birkihvammi á meðan og var hér með að hætta alveg á brjósti. Fékk smá grátkast í flugvélinni og var dálítið aum fyrsta daginn en svo varð þetta allt í lagi. Og hún var glöð og góð allan tímann!
Þegar við vorum komin út þá vissum við ekki alveg hvernig við ættum að koma okkur til Lille, en þangað lá leiðin að sjá hljómsveitina Beirut. Viðmót fólksins á flugvellinum var alveg einstaklega gott og allir mjög hjálpsamir. Eftir vangaveltur út af samgönguverkfalli ákváðum við að leigja bíl. Hitastigið var um frostmark og sól á lofti, alveg fullkomið og fallegt. Komumst loks til Lille en við áttum frekar erfitt með að komast á hótelið sökum mikillar umferðar og einstefnugötur alls staðar. Hugsið ykkur svekkjandi, sáum hótelið hinum megin við lítið torg en 30 mínútum seinna komumst við sökum einstefna, en hei, komumst á endanum á hótelið. Þá var ca. 1 klst í tónleika og við alveg búin á því. Töluðum við móttökufólkið og komumst að því að tónleikarnir voru ekki í Lille heldur í Tourcoing, litlum bæ nálægt. Pínu stress en enduðum á að taka leigubíl og komumst á leiðarenda. Það var einhver Ástralskur trúbardor, búsettur í Lille, sem hitaði upp. Úff, hann var hræðilegur og þetta hefði aldrei gerst í henni Reykjavík. En á endanum byrjaði Beirut og vá, ég bara táraðist! Fannst svo óraunverulegt að ég væri stödd í einhverjum frönskum smábæ að bera eina af uppáhaldshljómsveitum mínum augum. Lentum svo í skemmtilegu eftirpartý með fólkinu sem vann á þessum tónleikastað.
Vorum gjörsamlega búin þegar við loks vöknuðum á laugardagsmorgun um kl. 11. Fengum okkur morgunmat, ég verslaði smá en hefði viljað meiri tíma, í götunni þar sem hótelið okkar var voru minnst 7 barnaverslanir. En engin tími þar sem við þurftum að ná að skila bílnum aftur á flugvöllinn. Náðum að skila bílnum en þó heldur seint.
Þá tók við frekar löng leigubílaferð frá flugvellinum á hótelið okkar, Hotel Lotti, sem er í fyrsta hverfi og við hliðina á Louvre safninu og við vorum komin þangað um kl. 18 á laugardeginum...og búðirnar að loka kl. 19.00. Vorum gjörsamlega búin en ég varð nú aðeins að komast í búðir þar sem allt var lokað á sunnudeginum og við heim á mánudeginum. Náði í H&M og keypti mér smá fínt en fann því miður baby GAP þegar þau voru búin að loka:(
En átti yndislegt kvöld með Eldari sem hafði fengið tips í lobbíinu og þau pantað borð fyrir okkur á frábærum stað sem hét Borlotti, voða flottur og frekar nálægt hótelinu en það var víst ómögulegt að fá leigubíl, enda laugardagskvöld. Og hann var alls ekki eins dýr og mætti ætla.
Fullkomið rómó kvöld og bara farið frekar snemma heim, um að gera að njóta þess að vera á hótelherbergi og geta sofið út.
Byrjuðum sunnudaginn á frábærum brunch á stað sem heitir Nomad. Enduðum svo reyndar á að borða þarna um kvöldið, mælum alveg með þessum stað. Við ákváðum að þetta væri bara svona chill ferð og lítill túrismi. Fengum okkur góða og fallega gönguferð að Eiffelturninum. Löbbuðum meðfram Signu, sáum fallega ljósmyndasýningu, fórum á kaffihús til að hlýja okkur og drekka smá rauðvín en það var hryllilega kallt þennan dag. Náðum loks á topp turnsins en ég get svarið það, í biðröðinni þá voru börn sem ég er viss um að voru að gráta sökum kulda, þetta var rosalegt og þá sérstaklega efst í turninum. En til að klára mjög langa sögu, komumst heim á mánudeginum, það var yndislegt að ná í hana Sögu okkar sem fagnaði mikið og þetta var yndisleg ferð og ég mjög þakklát Birk13 fyrir hjálpina!

Wednesday, November 21, 2007

Matarboð í Mosó

Þetta myndarlega útskorna grasker tók á móti okkurSaga er mjög hrifin af litla frænda, honum Eldari HrafniÞað er nú kósý að hafa svona sætt kríli í fanginu
Saga var sífellt á ferðinni að kanna nýjar slóðir
Eldar og Eldar Hrafn, flottir frændur og nafnar

Yndislegur matur að vanda, 2 tegundir af bökum, þar af ein með sætum kartöflum sem var alveg geggjuð, namm

Hóffí með prinsinn sinn

Síðasta færsla var kannski ekki mjög jákvæð, hmm, skrifuð í einhverjum hita seint um kvöld. En vá, ferðin var æði og mun ég segja betur frá henni þegar Eldar er búin að hlaða myndum inn, einnig frá matarboðinu sem var haldið hérna um daginn, margir farnir að bíða eftir þeim myndum. Svo luma ég á einhverjum nýjum uppskriftum og þetta er bara allt að koma. En þangað til, þá ætla ég að deila með ykkur nokkrum myndum frá huggulegu matarboði hjá Kristínu og Hóffí, súpermömmum, fékk að stela nokkrum myndum frá þeim.

Tuesday, November 13, 2007

París, hér kem ég, andskotinn!

http://www.myspace.com/beruit

"Búist við ringulreið í samgöngum í Frakklandi"
Ekki alveg fyrirsögnin sem ég vildi lesa á mbl.is, arg arg

Ok, við Eldar erum sem sagt á leiðinni til Parísar á föstudaginn, stefnan reyndar tekin á Lille á föstudeginum, ætluðum sem sagt að taka lest frá flugvellinum og þangað, til að sjá Beirut spila þar um kvöldið, búin að panta flott hótel þar og allan pakkan bara. Og núna verður sem sagt bara allt í lamasessi, æðislegt! Ekki!! Svo ósanngjarnt, við erum sko búin að vera í 10 ár saman og þetta er því svona rómó ferð en núna á allt bara að vera í einhverju fokki, gátu þeir ekki byrjað í verkfalli í næstu viku, nei.

Bara svona fyrir ykkur sem muna, þá fór ég í "pílagrímsferð" síðastliðinn mars, að sjá hljómsveitina Archade Fire í Köben, hvað gerðist,jú , þeir spiluðu kvöldið áður í stokkhólmi og svo varð söngvarinn veikur so no show...

Ég veit að bara það að hafa átt þessi 10 ár með Eldari ætti að nægja mér en þetta er bara dálítið svekkjandi, dálítið...góða nótt

Thursday, October 25, 2007

Graskerssúpa ofl

Saga, steinhissa með sæta, litla graskerið

Súpan góða

Mæðgurnar á góðri stundu í eldhúsinu

Afi Einar, húsfreyjan og Saga sterka

Moi, Helga skvís og Laufey skvís, dálítið gular eitthvað


Gott rauðvín spillir svo sem ekki fyrir góðum indverskum mat

Og að síðustu, gullskór, alveg málið á þessu heimili

Keypti lítið grasker um daginn. Vissi ekki alveg hvað ég ætti að búa til en þetta varð útkoman, mér fannst þetta bara mjög gott, enda mikil súpukelling. Ég vil taka það fram að ég fer oftast eftir uppskriftum eða alla vega að hluta til. Þessi er að hluta til byggð á sænskri uppskrift sem ég fann á netinu og svo bara bull frá mér.

Leyfði nokkrum öðrum myndum að fljóta með, m.a. myndir frá matarboði síðustu helgi þar sem Helga, Laufey, Bjarki, Hrafnkell Númi ofl kíktu við, svaka huggó og góður indverskur matur en lélegar myndir og leti í gangi (ömmurnar hefðu ekki verið sáttar að sjá mann bera þetta svona fram (allt á síðustu stundu á skúló og ekki í fyrsta skipti)


Graskerssúpan
  • 800gr Graskers"kjöt" (sætar kartöflur gætu alveg gengið)
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 l grænmetissoð (vatn+2 teningar)
  • 1 dl mjólk (ég hefði örugglega notað aðeins meiri mjólk í stað vatns en átti hana ekki)
  • Safi úr hálfu eða heilu lime (ég notaði hálft)
  • 2-3 tsk sambal olek (chili krydd jukk sem ég kaupi í Nóatúni, örugglega hægt að nota ferskan eða þurrkaðan chili í staðinn.)
  • Salt og pipar af vild
  • Sýrður rjómi, ein sletta í hverja skál
  • Graskersfræ til að strá yfir(helst rista þau)
  • Ferskur kóríander
Mýkið lauk og hvítlauk í potti, skerið grasker í teninga og skellið útí. Steikið í smá stund og látið hellið svo soðinu yfir. Ef þið notið ferskan chili, látið hann þá útí áður en þið látið soðið yfir. Látið sjóða í ca. 10 mín. Bragðbætið með sambal maukinu, lime og salt eftir þörf. Mixið súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Bætið út í sýrða rjómanum, tsk eða msk út í hverja súpuskál.
Hellið í skálar og sáldrið ferskum kóríander yfir og graskersfræunum