Jæja, enn og aftur komnir páskar. Ég held voða mikið upp á páskana. Birtan er yfirleitt svo falleg á þessum tíma, týpískt gluggaveður má segja. Hef átt afmæli stundum á páskadag, m.a. á tvítugsafmælinu sem er mér eftirminnilegt. Ákváðum loks að láta verða af því að fara á hina frábæru hátíð, Aldrei fór ég suður. Ætluðum öll fjölskyldan að fara. För var frestað á skírdag þegar Saga var veik. Og enn var hún veik á föstudeginum svo við hjónin flugum vestur og hún í góðum höndum tengdó. Í stuttu máli, urðum líka fárveik og ég sá lítið meira en hótelherbergið og við snerum tilbaka daginn eftir. Hér kemur uppskrift af páskaböku frá Piedmont héraði á N-Ítalíu. Gerði þessa á skírdag og telst því til páskamats. Þetta tekur smá tíma en höfum við tíma til að horfa á sjónvarp eða hanga í tölvunni, þá höfum við nú örugglega smá tíma í matseld um páskana. (Talað beint frá sjónvarps- og tölvuglápandi frúnni)
Ítölsk Páskabaka
- 85 g klettasalat
- 1 laukur, saxaður
- 2 hvítlauksrif, söxuð
- 200 g arborio risotto grjón
- 7 dl grænmetissoð
- 1 1/4 dl hvítvín (má sleppa)
- 50 g rifinn paramesan
- 120 g frosnar grænar baunir
- 2 tómatar, skornir í teninga
- 4 egg, vispuð
- 3 msk marjoram, saxað
- 55 g brauðrasp
Hitið ca. 2 msk af ólífuolíu á pönnu og léttsteikið laukinn og hvítlaukinn í 4-5mín. Skellið grjónunum útí, leyfið grjónunum að verða "gegnsæ" og byrjið þá að hella yfir vökvanum, koll af kolli og leyfið vökvanum að gufa upp áður en meiru er hellt yfir, muna að hræra vel. Látið svo vínið yfir þegar á líður (ef vín er ekki notað þá nota bara aðeins meira soð)
Þegar risottoið virðist tilbúið, þá bæta út í osti, baunum, klettasalati, tómötum, eggjum og 2 msk af marjoram. Saltið og piprið vel og hrærið öllu vel saman.
Látið í djúpt kökuform sem búið er að smyrja með smjöri og þjappið blöndunni í formið. Stráið brauðraspinu og 1 msk af marjoram yfir.
Bakið í 180 C í 30-40 mín eða þangað til raspið verður gullið. Berið fram með góðu salati.
Gerði þessa böku um daginn, finnst bökur svo góðar og alls ekki nógu dugleg við að búa til svoleiðis, ég held að það verði boðið upp á þessa í afmælinu hennar Sögu sem haldið verður uppá næstu helgi, magnað, dóttir mín er að verða eins árs, tíminn flýgur svo sannarlega!Deig- 150g heilhveiti
- 75 g smjör
- 1 tsk olía
- 1-2 msk kalt vatn
Fylling- 200 g blaðlaukur
- 2 dl grænmetissoð (vatn+hálfur ten)
- 200 g kotasæla
- 3 egg
- 100 g rifinn ostur
- 3 egg
- 35 g saxaðir valhnetukjarnar
- 1/2 tsk paprika
- 1/2 tsk sellerisalt (eða bara venjulegt)
- 1/4 tsk hvítur pipar
Hnoðið allt deigið í matvinnsluvel og geymið í ísskáp á meðan fyllingin er útbúin.Skerið blaðlaukinn í 2-3 mín í sjóðandi grænmetissoðinu, takið úr soðinu og látið drjúpa vel af.Hrærið vel saman kotasælu, egg og rifinn ost. Blandið blaðlauknum og valhnetukjörnunum varlega út í . Kryddið með papriku, sellerísalti og pipar.Smyrjið eldfast mót, fletjið út degið og klæðið formið að innan með því. Hellið fyllingunni yfir og bakið á 220 C í 30-50 mín.

Gerði þessa böku fyrst úti í Gautaborg, man að Anna Linda var í heimsókn og einnig Boris, vinur okkar frá Stokkhólmi. Ég hef áður gefið upp uppskrift þar sem notuð eru polenta grjón. Þetta eru fín, gul nokkurs konar grjón, til í betri búðum og heilsubúðum. Þetta er skemmtileg tilbreyting.Polentubakan góða - 2 laukar
- 1 hvítlauksrif
- 3msk ólífuolía
- 1/2 l grænmetissoð
- 2 dl polenta
- 2 dl rifinn ostur
- 1 msk fínt hakkað meriam (má sleppa)
- 5 tómatar, gott að nota plómutómata
- 1 kúrbítur
- 1/2 búnt basilika, fersk
- 1-2 tsk sítrónusafi
- salt, svartur pipar
- smá cayenne pipar
- ferskt meriam eða basilika til skreytingar
- Mér finnst svo gott að láta parmesan yfir en má sleppa
Gera
Hakkið hvítlauk og lauk, hitið olíuna og steikið helminginn af lauknum þar til hann er mjúkur. Hellið þá yfir grænmetissoðinu yfir laukinn og bætið svo polentunni útí. Fáið upp suðu, hrærið í reglulega á meðan. Slökkvið á hitanum. Hrærið í helmingnum af ostinum og af meriam. Látið standa á plötunni í ca. 10 mín. Smyrjið ofnfast mót og setjið ofninn á 200 gráður(ekki enn búin að finna gráðumerkið:)) Hellið polentunni í formið, þrýstið og látið kólna.
Skerið tómata í teninga, léttsteikið þá ásamt restinni af lauknum í ca. 2 mín. Kryddið með salti, pipar og cayennepipar. Takið pönnuna af plötunni.
Rífið kúrbítinn gróft, kryddið með salti og pipar. Dreifið þessu yfir polentuna. Strimlið basilikuna og blandið henni út í tómata- og osta blönduna og dreifið henni ofan á kúrbítisblönduna.
Hitið í ofninum í ca. 30 mín. Berið fram með góðu salati.
Ég er alveg sjúk í svona grænar strengjabaunir eða hvað þær nú heita, bara hita þær í sjóðandi vatni í svona 5 mín, leyfa þeim aðeins að kólna, skella svo smá ólífuolíu, sítrónuskvettu og sjávarsalti yfir, yummie