Showing posts with label Súpur. Show all posts
Showing posts with label Súpur. Show all posts

Saturday, August 29, 2009

Marókkó linsusúpa

Kannski ekki besta myndin, gleymdi að taka hana heima en tók þessa með gemsanum daginn eftir í vinnunni

Eftir allar sumarbústaðaferðir, grillmat og ferð til útlanda í sumar þá getur maður ekki beðið eftir að komast aftur í hversdagsleikann (minnið mig á þetta í næstu viku). Ég ætla að reyna að hafa smá reglu á matnum í vetur svo mánudagar eru td. spaghettí/pasta dagar því maður er svo þreyttur og latur þá. Þriðjudagar eru súpudagar, miðvikudagar eru snarldagar en þá fer ég í blak, fimmtudagur grænmetis/baunaréttur dagar og föstudagar pizza/tortillu/pítu/grænmetishamborgara dagar. Hinu held ég opnu.
Síðastliðinn þriðjudag langaði mig svo í linsusúpu en með einhverju twist. Ákvað að nota krydd eins og garam masala og kardemommur. Kardemommur hafa ríkjandi og skemmtilegt bragð og nota ég "heilar" kardemommur sem ég mel í morteli og nota fræin sem eru innan í því þá nær maður hámarksbragði en það er hægt að kaupa þetta malað, sjá hjá bökunarvörum. K er einnig notað í arabískt kaffi og gefur því sérkenni,þið sem hafið verið í Palestínu eða mið-austurlöndum þekkið þetta vel.

Marókkó linsusúpa
  • 2 laukar
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 tsk rifið engifer
  • 12 dl heitt vatn + 2 teningar
  • 1-2 dl rauðar linsur
  • 1 dós svartar baunir (það má alveg nota aðrar baunir en þessar pössuðu rosalega vel)
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • gulrætur í teningum
  • sellrí bitar
  • 1 1/2 tsk garam masala
  • 1/2 - 1 tsk cayenne pipar
  • 1 tsk cumin
  • ólífuolía
  • salt og pipar
Gera: Steikið lauk, hvítlauk og engifer í ólífuolíunni í ca. 5 mínútur. Bætið út í linsum, gulrótum og sellerí, steikja í 1 mínútu í viðbót, hellið svo kryddunum yfir (ekki salti og pipar samt) hrærið í og hellið svo tómötum yfir og soði. Látið suðuna koma upp í nokkrar mínútur og látið svo malla alla vega í klukkustund. Hellið svo hluta/helming af súpunni í ílát og mixið með sprota eða í matvinnsluvel, hellið aftur út í. Bætið svörtu baununum útí ca. 15 mínútum áður en hún er borin fram. Það sem er mjög mikilvægt við þessa súpu er að hún verður að fá að malla lengi svo brögðin fái að njóta sín og ekki var hún verri daginn eftir í vinnunni, mmm.

Friday, November 21, 2008

Tælensk linsu- og kartöflusúpa


Ég hef gert það einstaka sinnum að elda hérna í Hinu Húsinu handa mannskapnum og auðvitað með hjálp samstarfsmanna. Búlgarska linsusúpan kom td. sterk inn. Þessi súpa er svo einföld og góð en svo er líka bara svo huggulegt að borða öll saman svona í skammdeginu þar sem við erum ekki með mötuneyti. Ég gerði sem sagt áttfalda uppskrift þarna um daginn en hér er einföld. Mæli þó með að maður geri tvö- eða -þrefaldi, svo frystið þið þetta bara. Það er líka hægt að bæta grjónum út í afganginn og láta inn í tortillu.

Tælensk linsu- og kartöflusúpa

  • 1/2 laukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 tsk red currypaste (gott frá thai-choice, gott að eiga í ískápnum)
  • 1 tsk rifið engifer
  • 2 dl rauðar linsur
  • 6dl vatn
  • 1 grænmetisteningur
  • ca. 1 1/2 dl kókosmjólk
  • 2 tómatar
  • 1 meðalst.kartafla
  • 1 lime
  • 1 rautt chili
  • salt
  • kóríander
  • Gott að bæta út í 2 limeblöðum eða sítrónugras ef maður á til

Gera:
Hellið olíu í pott, setjið út í lauk, hvítlauk og chili, steikið í ca. 2 mín. Bætið svo linsum,kartöflum og tómötum út í og steikið í 1-2 min. í viðbót, hellið þá yfir soðinu (vatnið og teningurinn) Fáið upp suðu, og látið svo sjóða í nokkrar mínutur og lækkið svo aðeins undir og látið malla. Rífið smátt börkinn af lime út í og notið svo líka safann úr því, ca. 1-2msk. Látið kókosmjólkina og engifer út. Látið ca. lúkufylli af kóríander út í. Saltið aðeins. Malla aðeins. Bera svo fram með kórander ofan á. Einnig er gott að rista möndluflögur, og dreifa yfir. Verði ykkur að góðu!

Thursday, February 7, 2008

Klettasalatssúpa

Ég, Myrra og Helga ákváðum að hittast eitt kalt föstudagskvöldið og mig langaði að gera góða súpu án þess að þurfa að kaupa mikið inn (það er átak hérna að nota það sem til er) Þessi súpa frá Sollu(Grænn Kostur ) varð fyrir valinu og vá hvað hún er góð, og einföld. Borðuðum frábært muslibrauð með sem tengdamamma hafði bakað og gefið mér. Ég mæli með þessari, hún er æði! Ath. Ég gerði tvöfalda en einföld ætti að duga sem forréttur. Og eitt enn, Eldari finnst frekar erfitt að fara ekki alveg eftir uppskrift og það á örugglega um fleiri. Þess vegna skrifa ég oft aðra möguleika eða hvað er ekki nauðsynlegt svo maður veigri sér ekki við að gera sumar uppskriftir þótt ekki allt sé til í þær.

Klettasalatssúpa
  • 1 stk laukur
  • smá ólífuolía
  • 1 1/2 dl mysa (þarna notaði ég hvítvín)
  • 1/2 lítri vatn
  • 1-2stk grænmetisten.
  • 1 dl kókosmjólk
  • 100g klettasalat
  • smá sjávarsalt
  • cayennepipar af hnífsoddi
Ofan á:
  • smá klettasalat
  • 1/2 dl ristaðar kókosflögur (má sleppa )
  • 2-3 stk vorlaukar (má sleppa)

Gera:
Saxið laukinn smátt, hitið olíu í potti og mýkið laukinn í um 10 mín. Bætið mysu, vatni, grænmetiskrafti og kókosmjólk útí, látið malla í 10 mín. Setjið í blandara/notið töfrasprota ásamt klettasalatinu og bagðið síðan með salti og pipar. Mýkið vorlauk á pönnu í 2-3 mín, Þurristð kókosflögurnar á pönnu þar til gylltar. Stráið þeim svo yfir súpuna ásam vorlauk og smá klettasalati. Voila!

Thursday, October 25, 2007

Graskerssúpa ofl

Saga, steinhissa með sæta, litla graskerið

Súpan góða

Mæðgurnar á góðri stundu í eldhúsinu

Afi Einar, húsfreyjan og Saga sterka

Moi, Helga skvís og Laufey skvís, dálítið gular eitthvað


Gott rauðvín spillir svo sem ekki fyrir góðum indverskum mat

Og að síðustu, gullskór, alveg málið á þessu heimili

Keypti lítið grasker um daginn. Vissi ekki alveg hvað ég ætti að búa til en þetta varð útkoman, mér fannst þetta bara mjög gott, enda mikil súpukelling. Ég vil taka það fram að ég fer oftast eftir uppskriftum eða alla vega að hluta til. Þessi er að hluta til byggð á sænskri uppskrift sem ég fann á netinu og svo bara bull frá mér.

Leyfði nokkrum öðrum myndum að fljóta með, m.a. myndir frá matarboði síðustu helgi þar sem Helga, Laufey, Bjarki, Hrafnkell Númi ofl kíktu við, svaka huggó og góður indverskur matur en lélegar myndir og leti í gangi (ömmurnar hefðu ekki verið sáttar að sjá mann bera þetta svona fram (allt á síðustu stundu á skúló og ekki í fyrsta skipti)


Graskerssúpan
  • 800gr Graskers"kjöt" (sætar kartöflur gætu alveg gengið)
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 l grænmetissoð (vatn+2 teningar)
  • 1 dl mjólk (ég hefði örugglega notað aðeins meiri mjólk í stað vatns en átti hana ekki)
  • Safi úr hálfu eða heilu lime (ég notaði hálft)
  • 2-3 tsk sambal olek (chili krydd jukk sem ég kaupi í Nóatúni, örugglega hægt að nota ferskan eða þurrkaðan chili í staðinn.)
  • Salt og pipar af vild
  • Sýrður rjómi, ein sletta í hverja skál
  • Graskersfræ til að strá yfir(helst rista þau)
  • Ferskur kóríander
Mýkið lauk og hvítlauk í potti, skerið grasker í teninga og skellið útí. Steikið í smá stund og látið hellið svo soðinu yfir. Ef þið notið ferskan chili, látið hann þá útí áður en þið látið soðið yfir. Látið sjóða í ca. 10 mín. Bragðbætið með sambal maukinu, lime og salt eftir þörf. Mixið súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Bætið út í sýrða rjómanum, tsk eða msk út í hverja súpuskál.
Hellið í skálar og sáldrið ferskum kóríander yfir og graskersfræunum

Wednesday, April 4, 2007

Búlgörsk linsusúpa



Þessa uppskrift fann ég í uppskriftabók þegar ég var að vinna næturvakt á skammtímaheimili sem ég vann á í Svíþjóð fyrir fötluð börn , tók stundum að mér næturvaktir svona til að fá smá aukapening en ég var ekkert hrifin af því, varð alltaf hálf skrítin eftir nóttina.
Miklu skemmtilegra líka að vinna á daginn, þegar börnin voru vakandi.

Og aðeins meira um þetta, þetta var alveg frábær vinnustaður, í skógarjaðri, vatn í göngufjarlægð til að synda og leika í , allt í kring hægt að týna epli, hindber og kirsuber, alltaf einn starfsmaður á barn og menntuð eldhús/mötuneytis kona sem sá um matinn þannig að hann væri hollur og góður . Nóg um það, þegar ég flutti heim langaði mig gjarnan að vinna að hluta til við eitthvað svipað, svo ótrúlega gefandi starf. Little did I know..

2-3 starfsmenn á 5 einstaklinga, einstaklingarnir á aldrinum 12 til 50ára, með mjög misjafna fötlun, mjög ólíkur hópur með oft lítið sameiginlegt. Þurftum sjálf að elda matinn sem var ekki sá næringaríkasti, helst koma öllum í bað á kvöldin og ná að sinna öllum sem einstaklingum út frá þeirra þörfum, sem á auðvitað að vera markmiðið.
Sum kvöld gekk þetta ágætlega, eftir því hvaða einstaklingar voru hjá okkar en sumir hefðu algjörlega þurft einn starfsmann með sér þannig að sum kvöld þá var maður hreinlega lafmóður og ég meira að segja gleymdi manneskju inni á klósetti, tvisvar, á meðan ég var að reyna að sinna öðrum. Ég tók þetta allt svo nærri mér að ég hætti eftir rúma 2 mánuði.
Ég veit að við búum í fámennu landi og þá sjálfkrafa verða möguleikar vissra samfélagshópa minni, þekki það líka persónulega en ég á einhverfan bróður sem að hefur átt misjafna ferð í gegnum kerfið hérna. Úff, þetta gerir mig yfirleitt bara leiða svo að skemmtilegri hlutum...

Eldaði súpuna í gær og bakaði brauð og svo tókum þetta bara með okkur til hinna nýbökuðu foreldra, Laufeyjar og Bjarka, vitum sjálf að maður er ekkert á fullu í eldhúsinu fyrstu dagana og því gott að fá eitthvað gott í mallakút. Speltbrauðið sem uppskrift er að í annarri færslu var einstaklega gott, var með kúmen í því og graskersfræ ofan á, mjög gott og líka frábært, ristað daginn eftir með smjöri og ost.

Búlgörsk linsusúpa
  • 2 gulir laukar, smátt hakkaðir
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 msk olía
  • 1 l vatn
  • 2 grænmetisteningar
  • 2 dl rauðar linsur
  • 1 msk paprikuduft
  • 1 tsk salt
  • 1 lárviðarlauf
  • 1 tsk timjan
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • 1/2 tsk sykur
  • 1/2 tsk balsamic vinegar (má sleppa)
  • Klípa af sýrðum rjóma út í hverja skál og steinselja rifin yfir (má sleppa)
Gera:
Mýkið lauk og hvítlauk, skellið svo út í linsum og paprikudufti, síðan tómatana
yfir, þar eftir vatn og teningar, svo lárviðarlauf og krydd, látið malla í 30-40 mínútur. Hellið í balsamic edikinu í endann. Því lengur sem þetta fær að malla, því betra, þetta verður svona þykk súpa, sniðugt líka að bara fram hrísgrjón með.

Mæli með að gera tvöfalda og frysta!

Friday, March 30, 2007

Mömmulunch



Það var hálfgrátt í dag og rigningarlegur föstudagur. Svona dagar eru tilvaldir til að fá til sín góða gesti. Við ákváðum að hittast hérna á Skúló, ég og þrjár aðrar mömmur, Ylfa með hana Heklu sína, Edda með Ívar Óðinn og Kikka frænka með litlu skott(verður skírð á Sumardaginn fyrsta) Þessi kríli eru öll fædd á tímabilinu 17.des´06 - 29.jan´07
Skellti í eina grænmetissúpu og svo var bara brauð og álegg. Eplalengja í ofni í eftirrétt (mæli með henni, fæst í Bónus á 299kr, snilld. Bar fram vanillusósu með henni sem ég kaupi í Sverige og maður vispar hana bara með mjólk, namm.

Mömmusúpan

- 1 gulur laukur
- 1 blaðlaukur (púrra)
- 4 gulrætur
- 1 blómkálshöfuð (getið notað kartöflur í staðin)
- 2-3 hvítlauksrif
- dós kókosmjólk
- dós hakkaðir tómatar
- 2 dósir vatn
- 1 dl tómatpúrré
- 2 grænmetisteningar
-1-2 tsk cumin
- 1-2 tsk paprikuduft
- skvetta af cayenne pipar og tumeric, má sleppa
- smá salt og pipar
-Ferskur kóríander til skreytingar (ég gleymdi því í dag)

Gera:
Laukur og blaðlaukur, skorið smátt og látið mýkjast í olíu ásamt hvítlauk í ca 5 mín. Restin af grænmetinu skorið í smá bita og sett út í. Bætið út í tómötum og svo kókosmjólkinni, bætið svo út í vatni og teningum (ég sýð vatn í hraðsuðukatlinum, læt sitthvorn teningin í dósirnar utan af tóm. og k.mjólkinni, helli svo soðnu vatninu yfir teningana svo þeir leysist upp og helli útí) Kryddið og látið svo malla í 30-40 mín. Klippið kóríander yfir réttinn

Auka: ekki vitlaust að skella í eins og 1-2 dl af rauðum linsum útí, nýrnabaunum eða kjúklingabaunum, svona til að fá í sig góð prótein