Tuesday, June 12, 2007

Andlegt á Snæfellsnesi

Við litla familían skelltum okkur á Snæfellsnes um Hvítasunnuhelgina. Planið var að vera 2 nætur, þá fyrri á Arnarstapa eða undir honum og svo þá seinni á Grundarfirði. Við gistum á Snjófelli, litlu gistiheimili/svefnpokapláss og var það bara mjög huggulegt og ekkert svo dýrt, mæli með þessu! Herbergið okkar var mjög krúttlegt, rúm í sitthvorum endanum og góður andi. Og talandi um það, Snæfellsnes er jú rómað fyrir að vera andlegur staður og gott ef ekki herbergið var pínu þannig...þið dæmið...
Læt svo fleiri undurfallegar myndir frá þessari frábæru ferð, drífið ykkur, stutt að fara!


Undir Arnarstapa, við gistum í húsinu með græna þakinu..Andafæla í herbergisglugganum, já, dálítið andlegt
Smá andó..

Hmmm...

Saturday, June 9, 2007

Risotto Primavera



Eldar minn varð þrítugur þann 29.maí. Það var ekki fyrr en núna um helgina að það var haldið upp á það með fjölskyldunni og svo næstu helgi með vinum.
En auðvitað var eldaður góður matur handa afmælisbarninu og þar sem Eldar er mjög hrifin af risotto, þá ákvað ég að gera nýja uppskrift sem mig hafði lengi langað til að prófa. Vá, sé ekki eftir því, þetta var rosalegt!! Smá vinna en svo þess virði! Fólki vex oft í augum hversu mikið getur verið í grænmetisréttum, en látið það ekki hræða ykkur og þetta er í raun ekki dýrt miðað við að þetta er veislumatur, getið keypt flest í bónus og svo endað td. í Hagkaup en það er æðislegt að skoða og versla grænmeti og ávexti þar!


Risotto Primavera
fyrir 4-6
  • 225 gr ferskur aspas
  • 4 msk ólífuolía
  • 175 g strengjabaunir, skornar í ca 2,5cm bita
  • 175 gr kúrbítur, skorið í fjórðunga (velja mjóan)
  • 1 laukur, fínt skorin
  • 2 hvítlauksrif, fínt skorin
  • 350 gr arborio eða carnaroli hrísgrjón
  • 1,5 l grænmetissoð
  • 4 vorlaukar, skornir á lengdina, ca. 2, 5 cm
  • salt og pipar
  • 4 msk smjör
  • 115 gr paramesan
  • 2 msk graslaukur, saxaður
  • 2 msk rifin basilika (ég notaði rauða basiliku sem ég fékk í hagkaup, mjög smart)
  • vorlaukur til að skreyta með
Gera:
Skerið endana af aspasnum, skerið svo í helming eða þrjá bita, fer eftir stærð.

Hitið 2 msk af ólífuolíu á stórri pönnu eða í potti og fáið upp háan hita. Skellið út á aspasnum, baununum og kúrbítnum og snöggsteikið í 3-4 mínútur eða þangað til komin er fallegur ljósgrænn litur og grænmetið hefur mýkst. Setjið til hliðar.

Hitið restina af olíunni í stórum potti á miðlungshita. Látið laukinn út í og mýkið í 1 mín.
Bætið hvítlauk út í og eldið í 30 sek. Bætið svo út í grjónum og eldið og hrærið í ca 2 mín eða þangað til grjónin verða hálf gegnsæ og ötuð í olíu.

Hellið yfir um 1/6 (250 ml) af soðinu, hrærið stanslaust þangað til vökvinn er gufaður upp og bætið þá alltaf útí ca. 1 dl af soðinu, látið gufa upp og svona koll af kolli, aldrei láta grjónin verða alveg"þurr". Þetta tekur um 20-25 mín.

Bætið út í grænmetinu og eigið þá eftir örlítið af soðinu og eldið í um 2 mín. Kryddið með salti og pipar. Hrærið út í paramesan, graslauk og basil.

Takið af hitanum og látið standa í 1 mínútu, berið svo strax fram og endilega skreyta með vorlauk og basiliku.

Verði ykkur að góðu!

Wednesday, June 6, 2007

Gauti bróðir, listamaðurinn







Gauti bróðir er frábær listamaður og yndisleg manneskja. Hann er að vinna í Ásgarði sem er frábær verndaður vinnustaður og þar hafa hæfileikar hans fengið að njóta sín en hann sker út í tré/við. Hann hefur selt heilmikið af list sinni en ágóðinn af því rennur allur til Ásgarðs og ég mæli með að kíkja þangað, þeir eru td. alltaf með jólakaffi í byrjun desember þar sem er opið hús og einnig hafa þeir selt í Kringlunni, ýmislegt útskorið og það er bara svo góður andi yfir þessu öllu.

Á dögunum fór fram "List án landamæra" sem er listahátíð sem á að vekja athygli og koma á framfæri list fatlaðra. Í tengslum við þá frábæru hátíð voru fengnir nokkrir fatlaðir listamenn til að starfa saman með öðrum listamönnum og afraksturinn sýndu þeir í Norræna húsinu.
Gauti vann með listamanninum Finnboga Péturssyni sem vinnur aðallega útfrá hljóði og hefur ma. unnið með Ghostigital .

Hér fylgir með hvað Gauti sagði um samstarfið:

"Það var mjög gaman að vinna með Finnboga en ég verð að játa það að þetta var mjög skrítin og dálítið óþægileg tilfinning að hafa míkrafóninn í eyranu þegar ég var að vinna þessa hluti mína, yfirleitt er ég mjög einbeittur og loka á öll hljóð en þarna glumdu öll utanaðkomandi hljóð í eyranu mínu og trufluðu mig. Þegar ég byrja á einhverjum hlut þá er ég oft með fyrirfram ákveðna hugmynd sem ég vinn eftir en oft í miðju verki tekur hluturinn breytingum stundum vegna mistaka minna en einnig vegna þess að viðurinner á annari leið en ég og stýrir mér að einhverju allt öðru og oft mjög skemmtilegu verki."

Karabískur Hrísgrjónaréttur


Hér var smá mömmuhittingur þar sem Edda, Ylfa og Laufey mættu með krílin sín, þau Ívar Óðinn, Heklu og Hrafnkel Núma, sem er nýjasta krílið í hópnum. Alltaf gaman að spjalla saman og gefa góð ráð, já og bara dást að litlu krúttunum.

Var einnig með mömmurnar sem ég kynntist í foreldrafræðslu í heimsókn, bauð þar upp á tabbouleh sem ég gert hér áður og tók ekki mynd af. Brjálað að gera hjá þessum mömmum sko..

Skellti í auðveldan rétt sem ég hafði ekki gert áður. Hann heppnaðist bara mjög vel en ég held að það mætti vera meira af engiferi, kókosmjöli og kóríander en gefið er upp í uppskriftinni. Gæti örugglega verið sniðugt að gera fullt af hrísgrjónum ef þið á annað borð eruð að gera þau og nota svo daginn eftir restina og bæta hinu sem ég gef upp út í.

Karabískur hrísgrjónaréttur fyrir 4
  • 1 laukur
  • 1 rif hvítlaukur
  • 1 msk ólífuolía
  • 2 tsk engifer, ferskt
  • 2 msk kókosmjöl
  • 1 tsk paprika
  • 2 tómatar
  • 250 gr hrísgrjón
  • 1 dós nýrnabaunir
  • 6 dl grænmetissoð
  • salt og nýmalaður pipar
  • Ferskur kóríander
Hitið olíuna, mýkið saxaðan laukinn og hvítlauk í smá stund. Bætið við rifnum engifer og bætið svo við paprikudufti og kókosmjöli. Skerið tómata í teninga og bætið í. Látið malla í 5 mín. Bætið í grjónum, baunum og grænmetissoði saman við og sjóðið í 15 mín. Kryddið með salti, pipar og kóríander. Berið gjarnan fram með brauði og salati.

Loksins loksins..


Jæja, þá kom ég mér loks í blogggír á ný. Með hækkandi sól í maí (eitthvað annað en veðrið núna) þá einhvern veginn lagði ég niður öll skrif og varð mjög löt í matargerðinni. Það er búið að vera mikið að gera, skemmtilegir hlutir að gerast og bara gaman að lifa.

Ég er td. búin að fara á mjög skemmtilegt Vorblót þar sem hápunkturinn var Goran Bregovic, hér eru búin að vera tvö krílapartý, búin að fara á Snæfellsnes sem var ÆÐI, búin að fara í mjög skemmtilegt rauðvín og ostapartý, mjög huggulega skírn, flott en dálítið spes CCP partý, búin að vera á fullu í kundalini yoga, hitta fullt af ættingjum og kynnast skemmtilegu fólki:)

Og framundan er bara gaman gaman, Icelandic celebrity look alike innflutningspartý, ættingjabrunch og svo styttist í Stokkhólm, sumarbústaðarferðir, Stykkishólm, Malaga og fullt af kaffihúsaferðum með hana Sögu mína. Yndi.
Alla vega, nú megið þið eiga von á þó nokkuð af færslum, búin að safna smá upp.

ps. myndin að ofan er svo sem ekkert merkileg, þetta er frá kosningavöku hérna á Skúló þar sem
allir mættu með sitt lítið af hverju, afhverju erum við ekki duglegri að gera svona, svo sniðugt að allir hjálpist að og úr verður veisla með lítilli fyrirhöfn