Tuesday, July 31, 2007

Kominn tími á nýtt blogg sko..

Villa Bergshyddan, húsið fína sem við fengum lánað, þetta er eins og bústaður úti á landi en er í raun á besta stað í Stokkhólmi.

Huggulegt með Christoph og Kristinu úti á veröndinni

Frá svefnherberginu í húsinu, bak við glerið á veggnum er upprunalegur veggur frá um 1800.
Húsið sjálft var mjög fallegt en húsgögnin ekki alveg í stíl, þó ekkert hræðileg sko:)
Frá húsinu...
Máltíð á Midsommarafton, síld, Lax, kartöflusalat með graslauk, hrökkbrauð, snaps..allt mjög traditional og svo paj, salat og halloumi ostur...namm, svo skemmtilegt kvöld
Setið á veröndinni í húsinu sem við höfðum í Stokkhólmi á Midsommar kveldi..
Ég, Katarina sem er besta vinkona mín í Sverige og Saga sæta
Setið úti á veröndinni á Lagnö hjá Jóhönnu frænku, sjá fleiri myndir á Sögu síðu
Jóhanna föðursystir mín er algjör meistari þegar kemur að því að gera gott paj!
Uppáhalds kaffihúsið mitt í Gautó, Cafe Zenit
Í mat heima hjá Karin, vinkonu minni
Vinir okkar í Gautó, Hannah, Rasmus, Eliah og Noah, yndisleg fjölskylda!

Fórum á yndislegan tælenskan stað í Stokkhólmi, namm
Christoph vinur minn að dj-a, þessi dökkhærði
Bibelskolan, hljómsveitin mín, sameinuð aftur!
Hjónakornin á leið í Gröna Lund
Daginn eftir að við komum heim, þá fór ég með Sögu upp í sumarbústaðinn okkar við Þingvallavatn þar sem við hittum Katrínu og Svanborgu frænkur okkar, mennina þeirra og börn; Sunneva Rán, Þórunn Salka, Rakel Eva, Pétur Ari og Saga, svo sæt öll saman!!!
Við Anna Linda höfðum það kósý á svölunum, sumarlegt couscous salat með öllu sem fannst í ískápnum, rauð vínber voru alveg málið!
Frá þrítugsafmæli Eldars fyrir fjölskylduna, varð að fá að fljóta með..



Jæja, ég var farin að sakna þess að blogga en afþví að ég hafði ekki gert það svo lengi, þá vissi ég varla hvar ég ætti að byrja og hef átti erfitt með að koma mér af stað.
Ákvað því að hafa þetta ekkert flókið, skella inn nokkrum orðum og myndum með.

Í stuttu máli er þetta helst:
Hafði það voðalega gott í fríi okkar til Svíþjóðar. Hittum marga góða vini og nutum lífsins.
Eins og margir fengu að heyra (ég var pínu vonskvikin) þá var veðrið fremur leiðinlegt svo að allar hugmyndir um að synda og flatmaga við vötn og haf urðu að engu og flesta daga var maður á þrammi í rigningunni, að hitta fólk, borðandi eða í verslunum. Það var mjög fínt en ég kom ósköp þreytt heim. En get ekki kvartað, eigum jú eina Spánarferð framundan og þar ætla ég að slaka á.
Það var gaman að ferðast með hana Sögu mína, maður er nú pínu montinn af henni, enda er hún mjög duglega að heilla fólk með brosinu sínu, hún nýtur þess að gera nýja hluti, hitta nýtt fólk og bara fá að sitja í kerrunni sinni og horfa í kringum sig.

Síðustu 3 vikur hef ég svo verið að vinna mitt fyrsta verkefni eftir barnsburð, er að gera verkefni fyrir Útón, mun segja betur frá því en það er ótrúlega gaman og spennandi!
Skelli inn nokkrum myndum sem hafa safnast upp, ætla svo að vera aðeins duglegri við bloggið.

4 comments:

Anonymous said...

sælar skvís, gaman að sjá þessar myndir, mig langar bara að skella mér strax til svíþjóðar þegar ég sé þetta...knús til ykkar og við sjáumst fljótlega

Hrefna said...

Frábærar myndir frá æðislegum tíma! Þða var ekkert smá gaman í svíþjóð. Ég bjó til lime-risotto um daginn og það var snilld! Svo er ég búin að gera kús kús eins og þú gerðir í svíþjóð næstum því í hverri viku, það er svo gott og fljótlegt.
Gaman að þú ert byrjuð að blogga aftur. Ég býð spennt eftir næstu uppskrift!

Anna Linda said...

Elskan min, sit herna med Jelenu og okkar langar ad hafa thig hja okkur. Herna er yndislegt, aetla ad vera dugleg ad blogga (thegar komin 1 faersla.

Astar og saknadar kvedjur til Sogu, Eldars og allra en Risa knus, til Eddu og litla prinsinn, ertu til ad senda mer mail med lykilord a siduna hans Gabriels

Ast

Anonymous said...

Til hamingju med brudkaupsdaginn, hafid yndislegan dag, sendi ykkur sol fra Vancouver. Eg byd Jelenu. jonas og Ben ut ad borda itilefni af theirra brudkupsdag. Jelena syndi mer thad sem hun keypti handa Sogu, thad er gedveikt saett. Eg mun koma thvi i post.

Ast