Sætkartöflu- og aspas hreiður
Fengum góðan vin okkar, Aðalstein Rúnar í mat. Þennan forrétt bjó ég til í snatri og bara bullaði eitthvað. Útkoman var bara nokkuð góð. Og ekki verra að sötra mojito með. Þar sem ég hef verið vægast sagt löt, sjá færslu fyrir neðan, þá man ég svona nokkurn veginn hvað ég gerði.Sætkartöflu- og aspas hreiður - Filodeig (fæst í betri stórmörkuðum)
- Sæt kartafla
- Ferskur aspas
- Sítrónusafi
- Smjör
- Timjan
- Salt og pipar
Skerið sætu kartöfluna í teninga og látið út í sjóðandi saltað vatn svo hún mýkist aðeins en ekki of mikið. Það sem margir ekki vita er að sæt kartafla er í raun úr rófuætt og þess vegna þarf hún mun minni suðutíma en td. venjulega kartafla. Látið aspasinn í sjóðandi vatn í ca. 3-5 mín. Þerrið kartöflur og aspas. Ég hafði aldrei unnið með filodeig, það er þynnra en smjördeig og þarf mjög stuttan tíma í ofni. Ég skar og reif það í ferninga sem ég svo lét ofan í muffinsstálform, það er að segja, bjó til sex hreiður og skellti því svo inn í ofn. Á meðan lét ég smá smjör á heita pönnu, skellti kartöflum og aspas á í stutta stund, kryddaði með salti, pipar, timjan og smá sítrónusafa. Mér fannst timjan gera mikið fyrir bragðið. Það stóð svo til að láta þetta ofan í "hreiðrin" og aftur inn í ofn en þau voru orðin dökk og stökk svo ég lét fyllingu í hvert hreiður og bar strax fram á beði spínatblaða. Úr varð hin fínasti forréttur.
2 comments:
Þetta er rosa flott!!
elin
vá - þetta er rosa flott bull!
Post a Comment