Undanfarna mánuði hef ég tekið myndir af mat sem ég hef eldað en aldrei drifið lengra enn það, þe. að skrifa uppskriftina, láta myndirnar inn í tölvuna osfrv. Og svo auðvitað gleymi ég bara hvað ég setti í þegar ég hef verið að "bulla" eitthvað yfir pottunum. Langar samt að henda inn nokkrum myndum en sleppi mörgum, bara langar að deila þessum myndum sem tengjast góðum minningum.
Elísabet Narda ásam foreldrum kom í mat og kom heldur betur færandi hendi, gaf Sögu hjólið sitt og hjálm, svo góð við yngri vinkonu sína
Ég eldaði einn Dahl rétt og indverskan rauðrófurétt en man ekkert hvað var í þessu annars
Pablo virtist sáttur
Eldur var einnig mættur ásamt Myrru móður sinni, hann og Elísabet Narda að gæða sér á blönduðum melónukúlum. Sagan var farin í háttinn
Sætu Santos hjónin
Var í London í júní, borðaði geðveikan mexíkanskan mat á stað í Covent Garden að mig minnir, namm
Fór á námskeið í Guimares, Portúgal í júní, þar sem gjörsamlega var dekrað við grænmetisæturnar
Frá Portúgal, mmm
Einhverjir afgangar úr ískápnum, var svo ofsagott og litríkt, sýnist þetta vera hirsi/quinoa, gulrætur, harricot baunir (á alltaf til frosnar) vínber, tómatar, sítrónusafi, salt, feta on the side..
No comments:
Post a Comment