Saturday, August 29, 2009

Marókkó linsusúpa

Kannski ekki besta myndin, gleymdi að taka hana heima en tók þessa með gemsanum daginn eftir í vinnunni

Eftir allar sumarbústaðaferðir, grillmat og ferð til útlanda í sumar þá getur maður ekki beðið eftir að komast aftur í hversdagsleikann (minnið mig á þetta í næstu viku). Ég ætla að reyna að hafa smá reglu á matnum í vetur svo mánudagar eru td. spaghettí/pasta dagar því maður er svo þreyttur og latur þá. Þriðjudagar eru súpudagar, miðvikudagar eru snarldagar en þá fer ég í blak, fimmtudagur grænmetis/baunaréttur dagar og föstudagar pizza/tortillu/pítu/grænmetishamborgara dagar. Hinu held ég opnu.
Síðastliðinn þriðjudag langaði mig svo í linsusúpu en með einhverju twist. Ákvað að nota krydd eins og garam masala og kardemommur. Kardemommur hafa ríkjandi og skemmtilegt bragð og nota ég "heilar" kardemommur sem ég mel í morteli og nota fræin sem eru innan í því þá nær maður hámarksbragði en það er hægt að kaupa þetta malað, sjá hjá bökunarvörum. K er einnig notað í arabískt kaffi og gefur því sérkenni,þið sem hafið verið í Palestínu eða mið-austurlöndum þekkið þetta vel.

Marókkó linsusúpa
  • 2 laukar
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 tsk rifið engifer
  • 12 dl heitt vatn + 2 teningar
  • 1-2 dl rauðar linsur
  • 1 dós svartar baunir (það má alveg nota aðrar baunir en þessar pössuðu rosalega vel)
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • gulrætur í teningum
  • sellrí bitar
  • 1 1/2 tsk garam masala
  • 1/2 - 1 tsk cayenne pipar
  • 1 tsk cumin
  • ólífuolía
  • salt og pipar
Gera: Steikið lauk, hvítlauk og engifer í ólífuolíunni í ca. 5 mínútur. Bætið út í linsum, gulrótum og sellerí, steikja í 1 mínútu í viðbót, hellið svo kryddunum yfir (ekki salti og pipar samt) hrærið í og hellið svo tómötum yfir og soði. Látið suðuna koma upp í nokkrar mínútur og látið svo malla alla vega í klukkustund. Hellið svo hluta/helming af súpunni í ílát og mixið með sprota eða í matvinnsluvel, hellið aftur út í. Bætið svörtu baununum útí ca. 15 mínútum áður en hún er borin fram. Það sem er mjög mikilvægt við þessa súpu er að hún verður að fá að malla lengi svo brögðin fái að njóta sín og ekki var hún verri daginn eftir í vinnunni, mmm.

No comments: