Wednesday, April 15, 2009

Spínat- og skyr tortillur á tómatbeði

Hrefna mágkona mín passar stundum Sögu fyrir okkur. Þá reynir maður nú helst að gefa henni gott í gogginn svo að hún vilji koma sem oftast. Ekki nóg með að þessi uppskrift sé ljúfeng, þá er hún bara nokkuð holl. Mig minnti að ég væri þegar búin að gefa hana upp, geri þetta reglulega, en eftir að hafa rennt í gegnum þær uppskriftir sem komnar eru, þá sé ég að ég minnist á hana í október 2007 að ég hafi eldað þetta handa Karlottu systir og mág minn þegar þau pössuðu einmitt. Um leið og ég renndi yfir þá tók ég eftir hversu fáa eftirrétti ég hef gefið upp, en þeir hafa og eru alltaf mín veika hlið. Segjum það áskorun héðan í frá!

"Pössunartortillur" með spínati og skyri á tómatbeði

  • 1 rauðlaukur, skorin
  • 1-2 hvítlauksrif, kraminn
  • 500 g ferskt spínat, 250 g frosið.
  • 150 g. hreint skyr
  • 100 g rjómaostur
  • 1/2-1 tsk múskat
  • 1/2 - 1 dós nýrnabaunir
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 4 msk sýrður rjómi (má sleppa)
  • 4 tsk paramesan ostur
  • salt og pipar
  • 6-8 heilhveititortilllur eða bara venjulegar
Steikið lauka í olíu í 2-3 mín á háum hita, lækkið svo hitann, sér í lagi ef notað er fryst spínat, hrærið og snúið því við þangað til það er farið að losna í sundur, það gæti þurft að hella auka vökva í burtu, ef ferskt er notað þá bara steikja þangað til að það hefur mýkst og minnkað. Bætið svo út í baunum, skyri og rjómaosti, kryddið með salti, pipar og múskati.

Smyrjið eldfast mót með ólífuolíu, hellið tómötunum útí, saltið, piprið og notið jafnvel chayenne pipar eða chili pipar. Skiptið fyllingunni á pönnukökurnar, rúllið upp og látið "sárið"
snúa niður. Bakið í ca. 15 mín á 200∘

Takið út og skellið smá sýrðum rjóma og paramesan á hverja tortillu. Ég bar þetta svo fram með brúnum grjónum og góðu salati.

1 comment:

Hrefna said...

já, ég get sko vottað að þetta var svaka gott. Og ég er sko næstum alltaf til í að koma að passa - og það þarf nú ekki alltaf að gefa mér eitthvað gott í gogginn. Það er bara bónus. Það er nefnilega alltaf svo gaman að passa uppáhaldsfrænkuna