Jæja, enn og aftur komnir páskar. Ég held voða mikið upp á páskana. Birtan er yfirleitt svo falleg á þessum tíma, týpískt gluggaveður má segja. Hef átt afmæli stundum á páskadag, m.a. á tvítugsafmælinu sem er mér eftirminnilegt. Ákváðum loks að láta verða af því að fara á hina frábæru hátíð, Aldrei fór ég suður. Ætluðum öll fjölskyldan að fara. För var frestað á skírdag þegar Saga var veik. Og enn var hún veik á föstudeginum svo við hjónin flugum vestur og hún í góðum höndum tengdó. Í stuttu máli, urðum líka fárveik og ég sá lítið meira en hótelherbergið og við snerum tilbaka daginn eftir. Hér kemur uppskrift af páskaböku frá Piedmont héraði á N-Ítalíu. Gerði þessa á skírdag og telst því til páskamats. Þetta tekur smá tíma en höfum við tíma til að horfa á sjónvarp eða hanga í tölvunni, þá höfum við nú örugglega smá tíma í matseld um páskana. (Talað beint frá sjónvarps- og tölvuglápandi frúnni)
Ítölsk Páskabaka
- 85 g klettasalat
- 1 laukur, saxaður
- 2 hvítlauksrif, söxuð
- 200 g arborio risotto grjón
- 7 dl grænmetissoð
- 1 1/4 dl hvítvín (má sleppa)
- 50 g rifinn paramesan
- 120 g frosnar grænar baunir
- 2 tómatar, skornir í teninga
- 4 egg, vispuð
- 3 msk marjoram, saxað
- 55 g brauðrasp
Hitið ca. 2 msk af ólífuolíu á pönnu og léttsteikið laukinn og hvítlaukinn í 4-5mín. Skellið grjónunum útí, leyfið grjónunum að verða "gegnsæ" og byrjið þá að hella yfir vökvanum, koll af kolli og leyfið vökvanum að gufa upp áður en meiru er hellt yfir, muna að hræra vel. Látið svo vínið yfir þegar á líður (ef vín er ekki notað þá nota bara aðeins meira soð)
Þegar risottoið virðist tilbúið, þá bæta út í osti, baunum, klettasalati, tómötum, eggjum og 2 msk af marjoram. Saltið og piprið vel og hrærið öllu vel saman.
Látið í djúpt kökuform sem búið er að smyrja með smjöri og þjappið blöndunni í formið. Stráið brauðraspinu og 1 msk af marjoram yfir.
Bakið í 180 C í 30-40 mín eða þangað til raspið verður gullið. Berið fram með góðu salati.
2 comments:
girnó, verd ad prufa thetta vid tækifæri (set Bjögga í eldhúsif ;)
xxxxxxx
kirsuberja tréid ;)
hæhæ rosa lýst mér vel á bloggið þitt og endilega komdu með aðferðina með sushi-ið,
bara flott síða og flottur matur.
kv. Fríða.
Post a Comment