Hélt brunch fyrir nokkrar vinkonur um daginn. Hafði verið að vinna á úrslitum Músiktilrauna kvöldið áður og því tekið meðvitaða ákvörðun um að halda myndarskapnum í lágmarki og hafa þægindin í hámarki. Þ.e. keypti bara það sem þurfti (stelpur, bíð næst upp á eggjahræru, pönnukökur og annað góðgæti) Og hjúkk, því ég var orðin frekar slöpp þegar stelpurnar komu og gjörsamlega raddlaus svo ég sat bara við endann og þagði að mestu (gott að aðrir fái loks að komast að, haha) Alla vega, að brunchinum loknum lá leiðin í afmæli hjá afa Eldars, honum Gísla. Hafði ætlað að kaupa eitthvað handa honum á leiðinni en tímaskortur gerði að ég ákvað bara að setja saman 2 muffins í sellófan með 2 litlum páskaeggjum og svo límdi ég eitt af uppáhalds lögum Sögu, Fann ég á fjalli, framan á en hún hafði verið að syngja þetta heima hjá langömmu og -afa um daginn og ömmu Guðný fannst það svo fallegt. Þetta hitti alveg í mark, sjálfri þykir mér svo gaman að svona gjöfum og maður þarf að muna að það er hugurinn sem skiptir máli.
Sunday, April 19, 2009
Oft þarf ekki mikið til að gleðja

Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Þetta var svo sæt gjöf en ég hélt að hann Eldar myndarlegi hefði átt hugmyndina (þyrfti að vera hægt að setja inn hljóðskrá á komment - ég hefði pottþétt tekið þetta upp: h"ohhhh, hann er svo myndó") :P
Post a Comment