Átti kóríander og engifer og langaði að nota það. Átti engar núðlur, langaði í eitthvað létt og mjög fljótlegt. Þetta varð útkoman og ég held að ég sé ekki að gleyma neinu, hafði svo sem ekki ætlað þetta síðunni en fannst þetta bara svo gott og ekki verra að 5 mín tók að gera þetta. Það er nauðsynlegt að eiga strengjabaunir eða hvað þær nú heita í frystinum, ég nota þær endalaust.
Engiferyndi
Sorry, hér verða engin hlutföll uppgefin, bara man þau ekki en maður fær alla vega hugmynd um hvernig maður gerir þennan ofureinfalda og létta rétt.
Skellti sesamlíuolíu á pönnuna, svo lauknum og á eftir því hvítlauknum, lét malla í smá stund. Skellti svo frosnu baununum út í og reif svo engiferið yfir, lét malla stutta stund í viðbót áður en ég bætti við kjúklingabaununum og lét malla örlítið lengur. Stráði kóríander yfir og kreisti svo yfir smá lime. Það er svo auðvitað tilvalið að hafa þetta með núðlum eða grjónum með en ég vildi þetta svona létt þetta skiptið.
3 comments:
Flott hjá þér Eva mín, þú ert svo hugmyndarík.
A
Takk frænka mín!
Annað, hlýt að hafa saltað þetta..
nammi namm ég verð svo svöng á að lesa bloggið þitt elskan,
ciao
allý
Post a Comment