Sunday, April 19, 2009

Oft þarf ekki mikið til að gleðja


Hélt brunch fyrir nokkrar vinkonur um daginn. Hafði verið að vinna á úrslitum Músiktilrauna kvöldið áður og því tekið meðvitaða ákvörðun um að halda myndarskapnum í lágmarki og hafa þægindin í hámarki. Þ.e. keypti bara það sem þurfti (stelpur, bíð næst upp á eggjahræru, pönnukökur og annað góðgæti) Og hjúkk, því ég var orðin frekar slöpp þegar stelpurnar komu og gjörsamlega raddlaus svo ég sat bara við endann og þagði að mestu (gott að aðrir fái loks að komast að, haha) Alla vega, að brunchinum loknum lá leiðin í afmæli hjá afa Eldars, honum Gísla. Hafði ætlað að kaupa eitthvað handa honum á leiðinni en tímaskortur gerði að ég ákvað bara að setja saman 2 muffins í sellófan með 2 litlum páskaeggjum og svo límdi ég eitt af uppáhalds lögum Sögu, Fann ég á fjalli, framan á en hún hafði verið að syngja þetta heima hjá langömmu og -afa um daginn og ömmu Guðný fannst það svo fallegt. Þetta hitti alveg í mark, sjálfri þykir mér svo gaman að svona gjöfum og maður þarf að muna að það er hugurinn sem skiptir máli.

Wednesday, April 15, 2009

Spínat- og skyr tortillur á tómatbeði

Hrefna mágkona mín passar stundum Sögu fyrir okkur. Þá reynir maður nú helst að gefa henni gott í gogginn svo að hún vilji koma sem oftast. Ekki nóg með að þessi uppskrift sé ljúfeng, þá er hún bara nokkuð holl. Mig minnti að ég væri þegar búin að gefa hana upp, geri þetta reglulega, en eftir að hafa rennt í gegnum þær uppskriftir sem komnar eru, þá sé ég að ég minnist á hana í október 2007 að ég hafi eldað þetta handa Karlottu systir og mág minn þegar þau pössuðu einmitt. Um leið og ég renndi yfir þá tók ég eftir hversu fáa eftirrétti ég hef gefið upp, en þeir hafa og eru alltaf mín veika hlið. Segjum það áskorun héðan í frá!

"Pössunartortillur" með spínati og skyri á tómatbeði

  • 1 rauðlaukur, skorin
  • 1-2 hvítlauksrif, kraminn
  • 500 g ferskt spínat, 250 g frosið.
  • 150 g. hreint skyr
  • 100 g rjómaostur
  • 1/2-1 tsk múskat
  • 1/2 - 1 dós nýrnabaunir
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 4 msk sýrður rjómi (má sleppa)
  • 4 tsk paramesan ostur
  • salt og pipar
  • 6-8 heilhveititortilllur eða bara venjulegar
Steikið lauka í olíu í 2-3 mín á háum hita, lækkið svo hitann, sér í lagi ef notað er fryst spínat, hrærið og snúið því við þangað til það er farið að losna í sundur, það gæti þurft að hella auka vökva í burtu, ef ferskt er notað þá bara steikja þangað til að það hefur mýkst og minnkað. Bætið svo út í baunum, skyri og rjómaosti, kryddið með salti, pipar og múskati.

Smyrjið eldfast mót með ólífuolíu, hellið tómötunum útí, saltið, piprið og notið jafnvel chayenne pipar eða chili pipar. Skiptið fyllingunni á pönnukökurnar, rúllið upp og látið "sárið"
snúa niður. Bakið í ca. 15 mín á 200∘

Takið út og skellið smá sýrðum rjóma og paramesan á hverja tortillu. Ég bar þetta svo fram með brúnum grjónum og góðu salati.

Sunday, April 12, 2009

Ítölsk páskabaka


Jæja, enn og aftur komnir páskar. Ég held voða mikið upp á páskana. Birtan er yfirleitt svo falleg á þessum tíma, týpískt gluggaveður má segja. Hef átt afmæli stundum á páskadag, m.a. á tvítugsafmælinu sem er mér eftirminnilegt. Ákváðum loks að láta verða af því að fara á hina frábæru hátíð, Aldrei fór ég suður. Ætluðum öll fjölskyldan að fara. För var frestað á skírdag þegar Saga var veik. Og enn var hún veik á föstudeginum svo við hjónin flugum vestur og hún í góðum höndum tengdó. Í stuttu máli, urðum líka fárveik og ég sá lítið meira en hótelherbergið og við snerum tilbaka daginn eftir. Hér kemur uppskrift af páskaböku frá Piedmont héraði á N-Ítalíu. Gerði þessa á skírdag og telst því til páskamats. Þetta tekur smá tíma en höfum við tíma til að horfa á sjónvarp eða hanga í tölvunni, þá höfum við nú örugglega smá tíma í matseld um páskana. (Talað beint frá sjónvarps- og tölvuglápandi frúnni)

Ítölsk Páskabaka

  • 85 g klettasalat
  • 1 laukur, saxaður
  • 2 hvítlauksrif, söxuð
  • 200 g arborio risotto grjón
  • 7 dl grænmetissoð
  • 1 1/4 dl hvítvín (má sleppa)
  • 50 g rifinn paramesan
  • 120 g frosnar grænar baunir
  • 2 tómatar, skornir í teninga
  • 4 egg, vispuð
  • 3 msk marjoram, saxað
  • 55 g brauðrasp

Hitið ca. 2 msk af ólífuolíu á pönnu og léttsteikið laukinn og hvítlaukinn í 4-5mín. Skellið grjónunum útí, leyfið grjónunum að verða "gegnsæ" og byrjið þá að hella yfir vökvanum, koll af kolli og leyfið vökvanum að gufa upp áður en meiru er hellt yfir, muna að hræra vel. Látið svo vínið yfir þegar á líður (ef vín er ekki notað þá nota bara aðeins meira soð)

Þegar risottoið virðist tilbúið, þá bæta út í osti, baunum, klettasalati, tómötum, eggjum og 2 msk af marjoram. Saltið og piprið vel og hrærið öllu vel saman.

Látið í djúpt kökuform sem búið er að smyrja með smjöri og þjappið blöndunni í formið. Stráið brauðraspinu og 1 msk af marjoram yfir.

Bakið í 180 C í 30-40 mín eða þangað til raspið verður gullið. Berið fram með góðu salati.