Friday, November 21, 2008

Tælensk linsu- og kartöflusúpa


Ég hef gert það einstaka sinnum að elda hérna í Hinu Húsinu handa mannskapnum og auðvitað með hjálp samstarfsmanna. Búlgarska linsusúpan kom td. sterk inn. Þessi súpa er svo einföld og góð en svo er líka bara svo huggulegt að borða öll saman svona í skammdeginu þar sem við erum ekki með mötuneyti. Ég gerði sem sagt áttfalda uppskrift þarna um daginn en hér er einföld. Mæli þó með að maður geri tvö- eða -þrefaldi, svo frystið þið þetta bara. Það er líka hægt að bæta grjónum út í afganginn og láta inn í tortillu.

Tælensk linsu- og kartöflusúpa

  • 1/2 laukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 tsk red currypaste (gott frá thai-choice, gott að eiga í ískápnum)
  • 1 tsk rifið engifer
  • 2 dl rauðar linsur
  • 6dl vatn
  • 1 grænmetisteningur
  • ca. 1 1/2 dl kókosmjólk
  • 2 tómatar
  • 1 meðalst.kartafla
  • 1 lime
  • 1 rautt chili
  • salt
  • kóríander
  • Gott að bæta út í 2 limeblöðum eða sítrónugras ef maður á til

Gera:
Hellið olíu í pott, setjið út í lauk, hvítlauk og chili, steikið í ca. 2 mín. Bætið svo linsum,kartöflum og tómötum út í og steikið í 1-2 min. í viðbót, hellið þá yfir soðinu (vatnið og teningurinn) Fáið upp suðu, og látið svo sjóða í nokkrar mínutur og lækkið svo aðeins undir og látið malla. Rífið smátt börkinn af lime út í og notið svo líka safann úr því, ca. 1-2msk. Látið kókosmjólkina og engifer út. Látið ca. lúkufylli af kóríander út í. Saltið aðeins. Malla aðeins. Bera svo fram með kórander ofan á. Einnig er gott að rista möndluflögur, og dreifa yfir. Verði ykkur að góðu!

4 comments:

Anna Linda said...

Girnileg súpa, thetta hefur greinilega verid kosy hjá ykkur

gledileg jól

xxxxx

Anonymous said...

naammmmmmmmmmm ég vil koma í mat til þín!!!!Erla perla

Eva Ýr said...

Þetta er svo flott síða hjá þér!
Allt svo girnilegt og djúsí !!
Jömmý!

Anonymous said...

Æ það er alltaf gaman að fá komment og mjög svo frá einhverjum sem ég þekki, sbr. nafna mín hér:) Nú byrja nýjar að streyma inn og hananú!