Monday, October 27, 2008

Hirsi tacos





Jæja, spurning um að vera með nýja uppskrift á 3 mánaða fresti. Ég er með nokkrar í biðstöðu og nú ætla ég að vera aðeins duglegri því mér finnst þetta svo skemmtilegt, ja að laga mat en löt að blogga. Ekki er verra að flestar uppskriftana á blogginu eru ódýrar eða í ódýrari kantinum og það er algjör goðsögn að það sé endilega dýrt að vera grænmetisæta.

Var víst löngu búin að lofa að láta þessa inn því hún bara klikkar ekki, holl og alls ekki dýr(er í bókinni Vego sem var fyrsta grænmetisuppskriftabók okkar Eldars). Hirsi er járn- og steinefnaríkt og grænu linsurnar eru einnig mjög járnríkar.
Eins og ég hef oft sagt áður þá látið ekki innihaldslistann hræða ykkur því þegar þið hafið gert þennan rétt einu sinni, þá verður ekki aftur snúið og þá getur maður líka leikið sér aðeins með hann.

Hirsi tacos
  • 2dl soðið hirsi (ég giska á að það sé 1 og 1/2 dl ósoðið)
  • 2dl soðnar grænar linsur ( sama hér myndi ég giska)
  • 4dl vatn
  • 2 dl nýrnabaunir ( skellið bara öllu útí ef þið notið úr dós svo engu sé hent)
  • 1 rauð paprika
  • grænar baunir
  • 1 gulur laukur
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 1 gulrót
  • 1 tómatur
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • olía
  • salt og pipar
  • tacoskeljar
  • Avacado (ég bý til guacamole, má sleppa)
  • rifinn ostur
  • 1stk chili (ef Saga er ekki með, annars kryddar maður bara sjálfur eftirá)

Gera:
Sjóðið hirsi og linsur í vatninu, hakkið smátt lauk, hvítlauk, gulrót og papriku, léttsteikið í olíu. Bætið svo út í hirsiblöndunni og nýrnabaunum og hellið svo hökkuðu tómötunum útí og blandið öllu saman. Leyfið þessu að malla í ca. 10 mínútur. Hitið tacoskeljarnar í ofni. Bætið svo út í grænu baununum og kryddið með salti og pipar og berið fram í skeljunum ásamt avacado eða guacomole, og rifnum osti.

Ég tek svo yfirleitt allt fram sem til er: feferoni (þetta græna á myndunum, fæst í ýmsum betri búðum), fetaost, jalapenos, grænar ólfur, salat og bara allt sem manni dettur í hug

Maður getur að sjálfsögðu notað annars konar grjón/korn, rauðar linsur, maísbaunir í stað grænna bauna, annað grænmeti, frosið grænmeti og mjúkar tortillur. Nú eða borða þetta bara sem pottrétt.

4 comments:

Anonymous said...

Já ég get alveg hugsað mér að koma í mat við tækifæri - taco í uppáhaldi.
A

Dilja said...

ég held að ég hafi verið í þessu matarboði, getur það ekki passað? rámar í eldar taka þessar myndir

namm namm
Eva Sjöfn er uppáhalds kokkurinn minn

Huxley said...

Var einmitt, akkúrat bara rétt í þessu að horfa á fullan hirsipoka og velta fyrir mér hvað ég gæti gert! Read my mind girl!

Elskum allt mexíkanskt hér á bæ þannig að þessi verður pottþétt næst :)

Kramknúskyss
Laufey

hk said...

Snilld! Takk fyrir mín kæra, gerði einmitt variation af þessum rétti á mánudagskvöldið, hefði verið gott að vera með rétta uppskrift frá meistarakokkinum.

Knúúús