Það var 30.5 stiga hiti á föstudaginn þannig að ég gat ekki hugsað mér að fara út í flókna matargerð og þessi uppskrift varð fyrir valinu, var í einhverju blaði sem ég var að lesa á ströndinni:) Og trúið mér, grænbaunapestóið er hryllilega gott þótt nafnið kannski blekki. Grænar baunir eru líka voða hollar.
Sumarghetti með balsamic tómötum og grænbaunapesto.
Fyrir 2
- ca. 250 g spaghetti eða annað pasta
- 1/2 rauðlaukur
- 1 hvítlauksrif
- 1/2 dl ólífuolía
- 1 askja kirsuberjatómatar
- 1 dl balsamicedik
- salt og pipar
- 1/2 krukka fersk basilika
- Baunapestó:
- 2 dl frosnar grænar baunir
- 1 dl heslihnetur eða hýðislausar möndlur
- 1/2 dl olífuolía
- 1 lítið hvítlaukrif
- 2-3 msk sítrónusafi
- salt og pipar
Pestó: ég lét baunirnar í skál og hellti svo yfir heitu vatni sem ég hellti aftur af eftir smá stund til að láta þær þiðna en ég skal viðurkenna að ég lenti í smá vandræðum að mixa þær þar sem ég notaði staf en maður átti helst að láta þetta í matreiðsluvel. Bætið út í öllu öðru og mixið vel en samt gott að mauka þetta ekki alveg.
Saxið rauðlaukinn smátt og steikið í olíunni á pönnu, kremjið hvítlaukinn yfir og bætið svo út í tómötunum í hálfum bitum eða í fjórum helmingum ef þeir eru stórir. Steikið í smá stund og hellið svo balsamic edikinu yfir.
Látið renna vel af pastanu, setjið aftur í pottinn og hellið yfir smá ólífuolíu og látið á lokið í smástund. Deilið svo pastanu á diskana, stráið yfir saxaðri basiliku, hellið yfir smá tómatajukki og síðan klípu af pestóinu. Verði ykkur að góðu!
Eyrúnar yummie
- Ferskur Ananas
- Hindber
- Hvítt súkkulaði
- Vanilluís
Svo er auðvitað hægt að nota aðra ávexti og jafnvel dökk súkkulaði
3 comments:
Girnilegt, nammai namm
Girnilegt, nammai namm
Nauss hvað mér líst vel á þennan rétt. Hlakka til að prófa hann.
Post a Comment