
Við fjölskyldan erum í sumarfríi, það byrjaði frekar brösulega og og það er ástæða fyrir því að framan á mörgum "kvennablöðum", alla vega hér úti (erum í Gautaborg) eru greinar með tiltlum á borð við þessa; Hið fullkomna sumarfrí, hvað er það"?, "Afhverju er ég ekki glöð í sumarfríinu"? Osfrv. Það er ótrúlegt hvað það getur tekið langan tíma að "trappa sig niður" og ég var td. alveg ómöguleg fyrstu dagana þannig séð, langaði að gera allt og ekkert á sama tíma, og allt á að vera svo fullkomið, ja ég er alla vega svona og það er eins og ég læri ekki af reynslunni. Kannski þarf ég bara að sættast við að svona er Eva en stefna á að verða alltaf aðeins betri með hverju ári og sumarfríi.
En já, við flugum til Köben og heimsóttum Önnu Lindu og áttum yndislega daga með henni, fórum í dýragarðinn, það var sól og djass hátíð, yndislegt. (ég er ekki dýramanneskja eða dýragarðsmanneskja en það er eitthvað sem gerist þegar maður er í för með barninu sínu) Bláberjapönnukökur í morgunmat, gott rauðvín, góðar samræður, æðislegt!
Fórum svo til Hrefnu mágkonu minnar í Árósum, sem var að klára MA ritgerðina sína og bara orðin sálfræðingur, erum svo stolt af henni. Áttum frábæra daga og mikil huggulegheit, elduðum fullt af góðum mat og Saga og Hrefna, frænkurnar fínu gátu kynnst svolítið betur og það er augljóst að Saga er mjög hrifin af henni.
p.s. stefnan er sett á að bæta inn einni uppskrift eða svo í vikunni.


3 comments:
Glæsilegt að þú ert byrjuð að blogga aftur!!! Ég kíki alltaf reglulega inn á bloggið þitt í von um nýja færslu en verð oftast fyrir vonbrigðum, en ekki í dag :D
ÉG FÉKK SJOKK, TVÆR FÆRSLUR :)
SAKNA YKKAR OG THID HEFDU MÁTT STOPPA LENGUR!!!!
EN THETTA VAR SVAK KOSY ;)
ANNAN I HEITU KØBEN
Hi there, I enjoy reading all of your post.
I wanted to write a little comment to support you.
Look into my blog post: best reviews
Post a Comment