Thursday, February 7, 2008

Klettasalatssúpa

Ég, Myrra og Helga ákváðum að hittast eitt kalt föstudagskvöldið og mig langaði að gera góða súpu án þess að þurfa að kaupa mikið inn (það er átak hérna að nota það sem til er) Þessi súpa frá Sollu(Grænn Kostur ) varð fyrir valinu og vá hvað hún er góð, og einföld. Borðuðum frábært muslibrauð með sem tengdamamma hafði bakað og gefið mér. Ég mæli með þessari, hún er æði! Ath. Ég gerði tvöfalda en einföld ætti að duga sem forréttur. Og eitt enn, Eldari finnst frekar erfitt að fara ekki alveg eftir uppskrift og það á örugglega um fleiri. Þess vegna skrifa ég oft aðra möguleika eða hvað er ekki nauðsynlegt svo maður veigri sér ekki við að gera sumar uppskriftir þótt ekki allt sé til í þær.

Klettasalatssúpa
  • 1 stk laukur
  • smá ólífuolía
  • 1 1/2 dl mysa (þarna notaði ég hvítvín)
  • 1/2 lítri vatn
  • 1-2stk grænmetisten.
  • 1 dl kókosmjólk
  • 100g klettasalat
  • smá sjávarsalt
  • cayennepipar af hnífsoddi
Ofan á:
  • smá klettasalat
  • 1/2 dl ristaðar kókosflögur (má sleppa )
  • 2-3 stk vorlaukar (má sleppa)

Gera:
Saxið laukinn smátt, hitið olíu í potti og mýkið laukinn í um 10 mín. Bætið mysu, vatni, grænmetiskrafti og kókosmjólk útí, látið malla í 10 mín. Setjið í blandara/notið töfrasprota ásamt klettasalatinu og bagðið síðan með salti og pipar. Mýkið vorlauk á pönnu í 2-3 mín, Þurristð kókosflögurnar á pönnu þar til gylltar. Stráið þeim svo yfir súpuna ásam vorlauk og smá klettasalati. Voila!

6 comments:

Anonymous said...

hæ skvís, var að uppgötva þessa frábæru bloggsíðu hjá þér og var að kvitta fyrir mig ;)

kv
sandy

Hrefna said...

ummmm, girnileg súpa - ætla pottþétt að gera hana einhvern tímann. Gerði um daginn gulróta og engifersúpu úr bókinni sem hún Saga gaf mér í jólagjöf og vá, hún var snilld og það er ekki verra að gulrætur kosta næstum ekki neitt :) Ég er líka í átaki með að borða það sem er til - maður safnar ótrúlega miklum mat í skápana og frystinn en svo finnst manni alltaf eins og maður eigi ekki neitt til þegar maður ætlar að fara að elda og manni langar alltaf í eitthvað annað en það sem maður á!

Anonymous said...

Þessi súpa var æði, takk fyrir yndislegt kvöld :)

knús hk

Anonymous said...

Mmmmm Eva, þú kemur alltaf með svo spennandi uppskriftir!!! Ég er líka í mikilli súpustemningu þessa dagana.

Og Hrefna, mér líst vel á átakið þitt.

elin.

Anonymous said...

Gledilega páska elskan,nærdu einni færslu fyrir afmælid thitt??? ;)

Anna Linda

Dilja said...

Jæja Eva Rúsína Sinnepsdóttir! Nú er komin tími á aðra færslu segi ég og skrifa!