Thursday, February 7, 2008

Rauðrófuklattar með kóríander rjóma

Jamm, ný uppskrift, enda tími til kominn. Og gleðilegt ár og allt það. Andleysið hefur verið í meiralagi og hreinlega engir aukakraftar í matreiðslu og bloggskrif. Janúar var pínu þungur svona fyrir sálartetrið en finn að maður er allur að koma til með hækkandi sól. Byrjaði í nýju starfi í byrjun janúar, kynningarfulltrúi að gera ýmislegt í Hinu Húsinu og ég kann bara mjög vel við mig. Það var smá breyting að byrja í fullu starfi eftir að hafa verið í verkefnavinnu og ráðið sér og sínum tíma sjálf.
Finnst pínu erfitt að venjast því að sækja ekki Sögu mína þar sem ég er að vinna til kl. 17 og stundum lengur, en þetta er allt að koma og vá hvað helgarnar verða heilagar, maður kann svo sannarlega að meta þær.
Fórum í helgarferð til London, litla fjölskyldan, mamma mín, Freyja og Gauti. Það var mjög fínt og sól alla dagana spillti ekki fyrir.

Héldum smá matarboð í janúar, gerði þessa klatta í forrétt í fyrsta skipti og ekki það síðasta.
Mjög auðvelt! Mæli með að nota plasthanska, nota þá yfirleitt þegar ég nota rauðrófur því þær lita svo mikið. (það er örugglega hægt líka að nota gulrætur í stað rauðrófa) Í aðalrétt buðum við upp á hina góðu Kasjúw paellu, uppskriftin hérna.

Rauðrófuklattar með kóríander rjóma
  • 1 stór rauðrófa, ca 75gr
  • 2 kartöflur
  • 1/2 gulur laukur
  • 1 egg
  • 1 krm salt
  • Olía til steikingar
Kóríanderrjómi

  • 1 dós sýrður rjómi
  • 3-6 msk hakkaður kóríander
  • smá salt
Gott að gera blanda þessu saman og leyfa að standa í kæli í smá tíma. Endilega bragðbætið með smá hvítlauk eða piparrót
Gera: Flysjið rauðrófur og kartöflur og takið utan af lauk, rífið gróft í skál. Bætið út í eggi og salti, fletjið út í 4-6 klatta, kreistið úr sem mestan vökva ef hann hefur myndast, skellið á pönnu og steikið á meðalhita í ca. 3 mín. hvora hlið. Berið gjarnan fram á salatbeði (spínat, ruccola) og skellið slettu af kóríanderrjóma ofan á.

Leyfi myndum af tilraunasushigerð að fljóta með, ég get reynt að setja inn uppskrift ef einhver hefur áhuga? Er engin sérfræðingur í þessu.







2 comments:

Anonymous said...

MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM, girnilegt

Tolum saman thegar eg kem aftur til Koben, eftir manudag.

Ast fra Berlin

ps. var a chicks on speed tonleikum i gaer

Eva Einarsdottir said...

úbs, talar maður ekki um að skræla kartöflur, ekki flysja..oh jæja