Tuesday, December 4, 2007

Rómó Frakklandsferð













Ok, þetta er lengsta bloggfærsla í heimi og svo mætti halda að við vinnum fyrir franska hótelmálaráðið, ef það er til, haha...
Við fórum sem sagt til Frakklands í helgarferð, 16.-19.nóvember en 17. nóv áttum við 10 ára samveruafmæli.
Var pínu kvíðin vegna Sögu sem var hjá ömmu og afa í Birkihvammi á meðan og var hér með að hætta alveg á brjósti. Fékk smá grátkast í flugvélinni og var dálítið aum fyrsta daginn en svo varð þetta allt í lagi. Og hún var glöð og góð allan tímann!
Þegar við vorum komin út þá vissum við ekki alveg hvernig við ættum að koma okkur til Lille, en þangað lá leiðin að sjá hljómsveitina Beirut. Viðmót fólksins á flugvellinum var alveg einstaklega gott og allir mjög hjálpsamir. Eftir vangaveltur út af samgönguverkfalli ákváðum við að leigja bíl. Hitastigið var um frostmark og sól á lofti, alveg fullkomið og fallegt. Komumst loks til Lille en við áttum frekar erfitt með að komast á hótelið sökum mikillar umferðar og einstefnugötur alls staðar. Hugsið ykkur svekkjandi, sáum hótelið hinum megin við lítið torg en 30 mínútum seinna komumst við sökum einstefna, en hei, komumst á endanum á hótelið. Þá var ca. 1 klst í tónleika og við alveg búin á því. Töluðum við móttökufólkið og komumst að því að tónleikarnir voru ekki í Lille heldur í Tourcoing, litlum bæ nálægt. Pínu stress en enduðum á að taka leigubíl og komumst á leiðarenda. Það var einhver Ástralskur trúbardor, búsettur í Lille, sem hitaði upp. Úff, hann var hræðilegur og þetta hefði aldrei gerst í henni Reykjavík. En á endanum byrjaði Beirut og vá, ég bara táraðist! Fannst svo óraunverulegt að ég væri stödd í einhverjum frönskum smábæ að bera eina af uppáhaldshljómsveitum mínum augum. Lentum svo í skemmtilegu eftirpartý með fólkinu sem vann á þessum tónleikastað.
Vorum gjörsamlega búin þegar við loks vöknuðum á laugardagsmorgun um kl. 11. Fengum okkur morgunmat, ég verslaði smá en hefði viljað meiri tíma, í götunni þar sem hótelið okkar var voru minnst 7 barnaverslanir. En engin tími þar sem við þurftum að ná að skila bílnum aftur á flugvöllinn. Náðum að skila bílnum en þó heldur seint.
Þá tók við frekar löng leigubílaferð frá flugvellinum á hótelið okkar, Hotel Lotti, sem er í fyrsta hverfi og við hliðina á Louvre safninu og við vorum komin þangað um kl. 18 á laugardeginum...og búðirnar að loka kl. 19.00. Vorum gjörsamlega búin en ég varð nú aðeins að komast í búðir þar sem allt var lokað á sunnudeginum og við heim á mánudeginum. Náði í H&M og keypti mér smá fínt en fann því miður baby GAP þegar þau voru búin að loka:(
En átti yndislegt kvöld með Eldari sem hafði fengið tips í lobbíinu og þau pantað borð fyrir okkur á frábærum stað sem hét Borlotti, voða flottur og frekar nálægt hótelinu en það var víst ómögulegt að fá leigubíl, enda laugardagskvöld. Og hann var alls ekki eins dýr og mætti ætla.
Fullkomið rómó kvöld og bara farið frekar snemma heim, um að gera að njóta þess að vera á hótelherbergi og geta sofið út.
Byrjuðum sunnudaginn á frábærum brunch á stað sem heitir Nomad. Enduðum svo reyndar á að borða þarna um kvöldið, mælum alveg með þessum stað. Við ákváðum að þetta væri bara svona chill ferð og lítill túrismi. Fengum okkur góða og fallega gönguferð að Eiffelturninum. Löbbuðum meðfram Signu, sáum fallega ljósmyndasýningu, fórum á kaffihús til að hlýja okkur og drekka smá rauðvín en það var hryllilega kallt þennan dag. Náðum loks á topp turnsins en ég get svarið það, í biðröðinni þá voru börn sem ég er viss um að voru að gráta sökum kulda, þetta var rosalegt og þá sérstaklega efst í turninum. En til að klára mjög langa sögu, komumst heim á mánudeginum, það var yndislegt að ná í hana Sögu okkar sem fagnaði mikið og þetta var yndisleg ferð og ég mjög þakklát Birk13 fyrir hjálpina!

2 comments:

Hrefna said...

vá hvað þetta hefur verið rómó ferð - kannski fyrir utan vesen vegna lestarverkfallsins!

Anonymous said...

til hamingju með 10 árin, gott að þið gátuð átt tíma fyrir ykkur ein í smá tíma til að halda upp á það, þó ég viti vel hvað er erfitt að fara frá litlum krílum.