Friday, December 7, 2007

Grænmetischili með couscous


Þennan rétt byrjaði ég að gera fyrir löngu, mjög einfaldur en góður og kanelstöngin gerir punktinn yfir i-ið.
  • 2 dósir niðursoðnir tómatar
  • 1 rauðlaukur (stór) 2 chilipipar, ferskir, gjarnan bæði rauður og grænn)
  • 4 sólþurrkaðir tómatar (má sleppa ef ekki til)
  • 1 kanilstöng (má nota bara kanel)
  • 3 paprikur (rauð,gul,græn)
  • 1 dós niðursoðnar nýrnabaunir
  • 1 msk rauðvínsedik (eða annað edik)
  • 1 msk hrásykur (eða sykur eða ljós púðursykur)
  • 1 tsk salt
Gera
Hellið tómötunum í pott, saxið rauðlaukinn, chilipiparinn og sólþurrkuðu tómatana ásamt kanilstöng og sjóðið í 10-15 mín. Skerið paprikurnar í strimla, látið malla í 10-15mín. Bætið útí ediki, sykri og salti. Matreiðið couscous/bulgur samkvæmt leiðb. á pakka. Þrýstið ofan í litla bolla og hvolfið á disk, látið chili í kring.

1 comment:

Hrefna said...

Ég geri oft mjög svipaðan rétt en hef reyndar pasta með honum. Mér hefur aldrei dottið í hug að hafa kúskús með né að setja kanil í réttinn ... prófa það næst :)