Monday, December 10, 2007

Blaðlauks- og valhnetubaka

Gerði þessa böku um daginn, finnst bökur svo góðar og alls ekki nógu dugleg við að búa til svoleiðis, ég held að það verði boðið upp á þessa í afmælinu hennar Sögu sem haldið verður uppá næstu helgi, magnað, dóttir mín er að verða eins árs, tíminn flýgur svo sannarlega!

Deig
  • 150g heilhveiti
  • 75 g smjör
  • 1 tsk olía
  • 1-2 msk kalt vatn
Fylling
  • 200 g blaðlaukur
  • 2 dl grænmetissoð (vatn+hálfur ten)
  • 200 g kotasæla
  • 3 egg
  • 100 g rifinn ostur
  • 3 egg
  • 35 g saxaðir valhnetukjarnar
  • 1/2 tsk paprika
  • 1/2 tsk sellerisalt (eða bara venjulegt)
  • 1/4 tsk hvítur pipar
Hnoðið allt deigið í matvinnsluvel og geymið í ísskáp á meðan fyllingin er útbúin.
Skerið blaðlaukinn í 2-3 mín í sjóðandi grænmetissoðinu, takið úr soðinu og látið drjúpa vel af.

Hrærið vel saman kotasælu, egg og rifinn ost. Blandið blaðlauknum og valhnetukjörnunum varlega út í . Kryddið með papriku, sellerísalti og pipar.

Smyrjið eldfast mót, fletjið út degið og klæðið formið að innan með því. Hellið fyllingunni yfir og bakið á 220 C í 30-50 mín.

1 comment:

Anna Linda said...

Astar og saknadarkvedjur