Thursday, April 19, 2007

"Móðir, og hvað svo?"

Er að vinna í blogginu, nokkrar uppskriftir sem bíða þess að koma inn. Þarf að bíða eftir að Eldar sendi mér myndir í gegnum sína tölvu á eftir, æ löng saga og fer ekkert lengra út í hana.

En það er annað sem er að brjótast um í heilanum á mér núna og matur kemst ekki að...enda átti þetta blogg svo sem líka að vera um aðra hluti.

Sko, í vikunni byrjaði ég að lesa bók sem heitir Draumaland sem fjallar um svefnvenjur barna 0-2ára, Saga byrjaði í ungbarnasundi, við fórum í kennslu um hreyfiþroska uppi í Kennó hjá sundkennaranum þar sem hún sem voru börn 7 vikna -14 mánaða og hún tók þau sem dæmi með því að sýna hreyfiþroska og þær hröðu breytingar sem verða hjá þeim, ég hitti mæður með börnin sín sem ég var með í foreldrafræðslu en við ákváðum að halda hópinn svona til gamans. Það hefur sem sagt mikið gerst, mörg ráð verið gefin og maður hefur heyrt hvernig aðrir foreldrar eru að hátta sínu uppeldi.

Allt í einu er Saga orðin 4. mánaða og samkvæmt ofangreindri bók er hún núna nógu gömul til að geta "ráðskast" með foreldra sína. Þe hún ætti að hafa meira vit á að td. ef hún grætur nógu mikið hjá pabba sínum, þá gæti verið að mamma taki hana. Og jú, þetta höfum við foreldrarnir orðið vör við. Og ungamamman er allt í einu orðin dálítil gribba og vill helst bara gera allt, klæða barnið í og úr, svæfa, láta í bílstólinn osfrv. Þá er minni grátur sem kemur. . Því það er einfaldara??
Þetta er auðvitað ekki nógu gott og mamman veit það. Svo virðist sem margir í kringum mann láti bara krílin upp í rúmið sitt (við enn að nota vögguna en það stendur til breytinga), bjóða góða nótt og börnin fara að sofa, eiga að venjast að sofna sjálf, einnig samkvæmt bókinni góðu, því þau hafa þann eiginleika að geta sofnað sjálf, og ég trúi því alveg.

Og Saga gerir það reyndar stundum, þegar hið hárrétta augnablik gefst, þegar hún er södd, með nýja bleiju og er sátt. Þá getur maður lagt hana og hún sofnar. En oft er hún kannski pínu þreytt, og þá leggst ég hjá henni, og hún sofnar eins og skot og svo er hún lögð í vögguna. Hún hefur alltaf sofið mjög vel, fer varla út úr herberginu milli 22-10. En er ég of mjúk? Veit ég verð að leyfa viljuga manninum mínum og pabba hennar að gera meira, okkur þremur til góða.
En þetta með svefninn finnst mér pínu ruglandi.


Ég var bara að fatta, svona fyrir alvöru að ég er mamma og ferðin er bara að byrja! Það er allt annað að sjá um hvítvoðung, það er svona basic needs sem gilda þar. Nú þarf ég virkilega að fara að meta hvað er best fyrir hana í lengdina. Ég vil samt líka fylgja mínu innsæi. Úff, mér finnst þetta rosalegt. Saga er mjög sælt og glatt barn, verið fljót til með allt og ekkert að hafa áhyggjur af. Það er augljóst að hún er engin hvítvoðungur ennþá en hún er samt lítil, og mér finnst hörmung að hlusta á hana gráta mikið, þannig er það nú bara. Það er rosalegt hvernig hún getur grátið og svo tekur maður hana og barnið steinþagnar. En vá, hún er 4 mánaða, hún er klár en hún er líka kríli sem þarf ást og umhyggju, úff, þunn línan þar á milli.

Hvert er mitt næsta skref sem móðir? Allt hefur gengið svo vel en nú hef ég fengið minn fyrsta alvöru efa, um hvað sé best og hvernig eigi að fara að því.


Hér var fluttur fyrsti þáttur í röðinni, "Móðir, og hvað svo?"

2 comments:

Hrefna said...

Nú segi ég eins og praktíkvejlederinn minn segir alltaf: Treystu innsæinu thínu! En ad sjálfsøgdu er gott ad vera medvitadur um vissa hluti og hafa thá í huga, en innsæid segir manni ansi mikid!
Og svo er litla Saga nú bara 4 mánada, thad er nú ekki eins og hún verdi unglingur á morgun!
Svo ef allt fer í rugl, thá er fødursystirin næstum sálfrædingur sem getur alltaf reddad málunum seinna meir :)
Thú ert ørugglega alveg snilldar mamma, tharft ekki ad hafa áhyggjur af thví. Thad sést nú bara best á thví hve Saga er glød og dafnar vel!

Anonymous said...

Elskan mín ég man þá daga sem ég velti þessu svo mikið fyrir mér en komst að því að ég er góð móðir, barnið mitt er glatt og heilbrigt og það er það sem skiptir máli. Bara það að þú ert að hugsa þessa hluti gerir þig að góðri móðir. Saga er aðeins 4 mán og er bara enn kríli hún þarf ykkur bæði til að vera til staðar og endalausa ást og umhyggju, mín dóttir svaf uppí þangað til og hún var 9 mán og eftir það þá var tekið á svefninum, þetta er svo stuttur tími sem þau eru kríli og maður á að njóta þess, hafa hana uppí og knúsa hana endalaust. En þú veist nákvæmlega hvað á að gera því þú ert frábær móðir.