Wednesday, April 18, 2007

Frábært!

Svona framtak er alveg frábært! Að sýna börnunum okkar að margt sniðugt sé hægt að gera til að hjálpa öðrum og að það þurfi ekki alltaf að kosta eitthvað, þó að það kosti reyndar smá vinnu en hún er örugglega unnin með ánægju.

Gómsætar uppskriftir og skemmtilegar myndir ættu að koma inn í dag eða morgun, búið að vera mikið að gera svo tímar þess á milli hafa verið nýttir í leti:)

Úr fréttinni:
Börn á miðstigi í Snælandsskóla í Kópavogi hafa undanfarin ár gripið í prjónana og prjónað teppi sem í dag voru afhent Rauðakrossi Íslands sem sendir teppin til Afríku. Börnin voru áhugasöm um að gerast með þessum hætti sjálfboðaliðar í hjálparstarfinu.

2 comments:

Anonymous said...

Afar skemmtilegt framtak,er hins vegar hundfúl út í fréttamanninn fyrir að segja ,,er ekkert slæmt fyrir kúlið að strákar séu að prjóna". Það er akkúrat þetta viðhorf sem viðheldur staðalmyndum kynjanna.
kv. Þura femmi

Dilja said...

kvitt kvitt
alltaf gaman að "koma í heimsókn" á bloggið þitt Eva. Reyndar ekki þegar ég er svöng og löt við að elda, þá verð ég bara svöng, svangari, svöngust.
Ekki skrýtið ha!:)

Takk fyrir að vera fuglinn sem hvíslaði að Steina að Mr.Destiny ætti að vera með afmælisgjafastefnu...
Takk fyrir mig.

sé þig vonandi fljótt