Wednesday, April 11, 2007

Innbakaður Páskahleifur með púrtvínssósu


Vaknaði snemma á páskadag til að búa til "páskahleifinn" Í "matarbibilínunni" okkar (1000 Vegetarian recipes) heitir þessi hátíðlegi réttur, "Chick pea Roast" Ég prófaði þetta síðastliðið gamlárskvöld og þetta sló alveg í gegn. Er orðin dálítið þreytt á hnetusteik.

Við fórum svo með hleifinn til tengdó þar sem við borðuðum með þeim, en tengdamamma mín er frábær kokkur. Fengum mozarella ost og salat í forrétt, þau gæddu sér á fínum lambahrygg og svo fengum við æðislegan berja/súkkulaði/rjóma rétt í eftirrétt. Þær myndir eru teknar á litlu vélina og urðu bara ekki fínar, hún er ekki alveg að gera sig svo Eldar segir að hér eftir verði ég bara að taka stærri vélina með!
Þetta er smá vinna en alveg þess virði, ótrúlega gott og fallegt.

Innbakaður Páskahleifur með púrtvínssósu
fyrir 6

  • 450gr kjúklingabaunir (ca 2 dósir, án vökvans)
  • 1 tsk þurrger
  • 150 gr saxaðir valhnetukjarnar
  • 150 gr brauðrasp (ég nota bara úr pakka)
  • 1 laukur, smátt skorinn
  • 100 gr sveppir
  • 50 gr gular baunir
  • 2 - 3 msk púrtvín eða sherrí (ég nota púrt)
  • 2 msk grænmetissoð (ég hef reyndar notað um 4msk, annars svo þurrt)
  • 1 msk ferskur koríander
  • salt og pipar
  • 225 smjördeig, í Nóatúni hef ég fengið það í heilu lagi
  • 1 egg
  • 2 msk mjólk
Sósa
  • 2 msk matarolía, td. rapsolía
  • 1 púrra, þunnt sneidd
  • 8 msk púrt (má nota sherri)
  • 3 dl grænmetissoð
Gera: Blandið saman í matvinnsluvél, baunum, geri, valhnetum og brauðraspi, í 30-60 sek. Brúnið lauk og sveppi á stórri pönnu eða í potti, í 3-4 mín. Bætið út í baunablöndunni á pönnuna og svo einnig maís og hvítlauk. Bætið út í víni, soði og kóríander, blandið öllu saman. Takið af hellu og látið kólna. Breiðið út smjördeigið, myndið hleif úr blöndunni og þjappið henni vel saman, leggið hana inni í smjördegið og lokið undir, bleytið gjarnan þar sem þið lokið smjördeginu. Skerið krossmynstur ofan á hleifinn í deigið. Blandið eggi og mjólk, penslið hleifinn og skellið inn í 200 gráðu heitan ofn og bakið í um 30-40 mín eða þar til deigið hefur tekið á sig fallegan lit. Til að gera sósuna, hitið olíuna í potti, brúnið púrru í um 5 mín. Bætið í víni g soði, fáið upp suðu og látið svo "simmer"(hvað er orðið) í 5 mínútur. ég lét gulrætur með olíu, salti,, pipar, sesam og furuhnetum á hliðarnar en því má sleppa. Borðið með hrísgrjónum eða kartöflum. Njótið!!!


5 comments:

Anonymous said...

ég smakkaði á þessu og þetta var algjört lostæti! Þetta er nú eiginlega leyndó en fannst það meira að segja aðeins betra heldur en hryggurinn hennar mömmu.

Anonymous said...

Þú kannt greinilega listina að láta matinn líta vel út...hann hlýtur að vera mega bragðgóður líka

Anonymous said...

nammi namm ég fæ vatn í munninn, mig langar í mat núna !
love u

Anonymous said...

Ég gæti alveg hugsað mér að bjóða ykkur í svona innbakaðan hleif og ég gæti þá gert salatið. Hvernig hljómar það?
A

Anonymous said...

ja, það má alveg athuga það. En þá verður rándýr rauð að fylgja með salatinu:)