Hélt áfram að þrífa í dag, í dag voru það neðri eldhússkáparnir, uss, þeir voru ógeð.
Ætlaði að elda lime risottóið vinsæla fyrir Karlottu systir og Kidda kærasta hennar. Við skulum segja að við systur erum ekki beint með sama matsmekk, hún og pabbi eru mikið fyrir kjötið og grænmeti er eitthvað auka. En svo átti ég ekkert risotto og þá voru góð ráð dýr. Ég var líka orðin þreytt og pirruð eftir þrifin í eldhúsinu og átti erfitt með að ákveða hvað átti að elda.
Ákvað að gera polentu með strengjabaunum í forrétt, og nota sætu kartöflurnar sem áttu að fara í ofninn í pottrétt. Þetta var tilraunastarfsemi sem bar góða raun og systa vildi uppskriftina, það er sko hrós.
Ég er búin að prófa mig áfram með polentu og ég mæli með að þú/þið prófið þetta, slær alltaf í gegn, mun auðveldara en maður heldur, ótrúlega gott og pínu öðruvísi. Líka gott með ferskum aspas, asísku wok, eða bara eitt og sér....það munu örugglega koma fleiri uppskriftir með þessum smáu gulu grjónum
Polenta með strengjabaunum fyrir 4
- 1 l grænmetissoð (2 teningar og vatn)
- 4 dl polentugrjón
- 1 dl paramesan
- salt og pipar
- 1 laukur, smátt skorin
- 100-200gr strengjabaunir, ofan á
Látið blönduna standa í 10 mín á borði, jafnvel við glugga og svo inn í ísskáp í minnst 30 mín en má vera mun lengur.
Takið út og myndið jafna ferninga 10cm x 10cm(ég gerði hálfa uppskrift í þetta skiptið þar sem þetta var forréttur en annars geri ég heila)
Skellið ferningana á pönnu, ég nota grillpönnu með örlitlu non-stick sprayi eða notið örlitla olíu sem þið dreifið með td. smá eldhúsrúllupappír (má líka grilla á grind í ofni)
Grillið eða steikið bitana í ca. 5-10 mín, fallegt að fá rendur á bitana.
Látið baunirnar í sjóðandi, saltað vatn í ca. 5 mín. Hellið af vatni, látið í skál, hellið yfir skvettu af ólífuolíu, smá sítrónusafa, sjávarsalti og nýmöluðum pipar, namm!
Skellið polentubitanum á disk, raðið baununum ofan á, stráið smá paramesan yfir og gerið jafnvel rönd af balsamic edik í kringum (tókst reyndar ekkert of vel hjá mér, sjá mynd)
Verði ykkur að góðu!!
"Sætar kartöflur" pottréttur fyrir 4
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 3 sætar kartöflur
- 1 dós hakkaðir tómatar
- 1/2 dós eða lítil dós af kókosmjólk
- 1 grænmetisteningur, leystur upp í örlitlu af sjóðandi vatni
- Ferskur kóríander til að strá yfir (má sleppa)
- 1 msk paprikuduft
- 1 - 2 tsk cumin
- 1/2 tsk kanill
- 1/2 tsk carry
- 1/2 tsk cayenne pipar
- 1/2 tsk chilipipar
- salt og pipar
1 comment:
Þetta er rosalega girnilegt hjá þér! Ég fékk kartöflumús í dag úr sætum kartöflum sem var afar bragðgóð og líka flott á borðið (út af litnum).
Post a Comment