Í fyrrdag, skírdag vorum við hjónin hér á fullu við tiltekt. Enda var það löngu orðið tímabært. Við vorum lengi að og svo kom tengdapabbi í heimsókn en við höfðum boðið honum í mat þar sem hann var einn í koti og svo á hann líka svo fína borvél:) Við á Skúló erum ekkert svakalega laghent í svoleiðis málum. Við vorum svo sein, orðin þreytt og pirruð og spurning um að gera eitthvað fljótlegt, þetta varð afraksturinn:
Spaghetti "a la flýti"
- 100-150 gr spaghetti á mann
- 1 rauðlaukur, smátt skornir
- 1 hvítlauksrif
- 1-2 tómatar, smátt skornir
- grænar ólífur
- 1 krukka grænt pestó
- 1/2 dós 5% sýrður rjómi (má vera meiri % að sjálfsögðu og má líka bara sleppa)
- slatti af paramesan ost til að strá yfir, gott að hafa hvítlauksbrauð með
og svo bæta út í sýrða rjómanum. Stráið ostinum yfir og borðið, tilbúið á ca 10 mín.
No comments:
Post a Comment