Eftir að hafa reynt lengi lengi að hittast, þá varð loks að því, Inga Birna og Anna Linda komu í heimsókn. Var stefnt á að borða saman og horfa á DH. Svo var reyndar stjórnarfundur hjá Ísland-Palestína en ég sit í þeirri stjórn. Þá voru góð ráð dýr, átti að hætta við, ónei, ekki einu sinni enn! Svo mamman á Skúló eldaði áður en farið var á fundinn svo allt yrði reddí, fannst það eitthvað svo fullorðins, hehe. En já, náði fundinum sem by the way var mjög skemmtilegur því nú er komin ný og fjölmennari stjórn sem ég hlakka mikið til að starfa með. En já, stelpurnar mættu og við áttum saman góða kvöldstund. Rétturinn sem boðið var uppá er mjög einfaldur og ódýr, var vinsæll á námsárunum góðu.
Kjúklingabauna- og spínat réttur 4 skammtar
(ég geri reyndar yfirleitt tvöfalda, í mörgum sænskum uppskriftum er sagt hversu margir skammtar, sumir myndu túlka það sem fyrir fjóra en ég hef rekið mig á að oft verður það of lítið á mann og enginn vill jú að fólk fái ekki nóg)
-1 gulur laukur, smátt skorinn
-1 hvítlauksrif
-jurtaolía til steikingar
-2 tómatar, skornir í bita
-200 g spínat, ég nota oftast fryst og læta bara einhvern slatta, líklegast um 200 g en ef einhver veit hver hlutföllin eru þá endilega látið mig vita.
-2 tsk tumeric (svona gult krydd sem gefur fína gula litinn)
-2 dl kókosmjólk
-4 dl kjúklingabaunir (ég nota alltaf úr dós)
-salt og pipar
(svo svona auka, ég bæti oft við td smá skvettu af öðrum kryddum, td. cumin, kanel, karrý og chayenne pipar) Svo er smart að nota í eina rauða papriku, gerir þetta fallegt.
Gera:
Mýkið lauk og hvítlauk í olíunni í nokkrar mínútur, bætið út í spínati og mýkið svo að það þiðni, bætið svo við tómötum og síðast paprikunni ef hún er notuð. Bætið við tumericinu og hrærið í. Bætið út í kjúklingabaununum og kókosmjólkinni og látið malla í 10 mín. Bragðbætið
með salt og pipar (og hinum kryddunum).
Ber þetta yfirleitt fram með hrísgrjónum og salati.
Hafði einnig nýbakað speltbrauð með, uppskrift úr grænu Hagkaupabókinni, læt hana fylgja með hérna fyrir þá sem eiga hana ekki.
Speltbrauð
-5 dl speltmjöl
-3 tsk vínsteinslyftiduft
-1/2 - 1 tsk sjávarsalt
-2dl ab mjólk
-2dl sjóðandi vatn
-Bragðbætið brauðið að vild með td. sólblóma-,graskers,- eða sesamfræjum, kókosmjöli, kúmen, hunangi, kanel og rúsínum, ólífum eða sólþurrkuðum tómötum, já, barasta það sem er til í skápnum
Gera:Blandið saman þurrefnum, bætið svo út í vökvanum (ég læt ab í könnu og helli svo heitu vatninu yfir svo þetta blandist) Hrærið varlega saman, alls ekki mikið því það er galdurinn við þetta frábæra og auðvelda brauð. Látið í smurt form og bakið á 200 gráðum (finn ekki merkið) í 25-30 mín. (ég er með eldgamlan ofn og þarf yfirleitt að hafa þetta í 40 mín)
7 comments:
Akkuru notar þú bara dósabaunir? Ég geri það yfirleitt líka þar sem ég er svo ódugleg að ákveða daginn áður hvað ég ætla að hafa í matinn. Á poka af ósoðnum kjúklingabaunum inni í skáp og þar er pakkinn búinn að vera í ansi langan tíma.
ja, ég er bara alltof löt held ég. Ég reyndi þetta einhvern tíma og fannst þetta verða svo vatnskennt hjá mér. En þetta er örugglega spurning um lagni og vana. Svo má einmitt frysta baunirnar svo auðvitað ætti maður að vera duglegari við þetta. Veistu, ég ætla hreinlega að gera þetta núna í vikunni!!
Ok, ef þú gerir þetta í vikunni, þá geri ég það líka....Ekki eins og ég hafi ekki nægan tíma :-(
líst vel á það!! mæli með www.himneskt.is, þar er að finna góðar upplýsingar um baunir
Úff, lagði baunir í bleyti í gær. Gerði mér ekki grein fyrir hversu mikið þær stækka. Það verða kjúklingabaunir í matinn í viku og við eigum eftir að prumpa eins og ..... Ferlega lítið mál annars og pottþétt ódýrara en að kaupa baunir í dós. Ég held að ég geri indverskan grænmetispottrétt the elin way og prófa svo þinn með spínatinu í hádegismat fyrir vinkonur mínar á morgun.
dugleg ertu Elín!! Ég er ekki byrjuð en er á leiðinni í málið?
Jebb, alveg svo dugleg að ég sit heima prumpandi og þori ekki að hafa baunir aftur í dag. Skelli þeim í frysti og tékka á þeim í næstu viku :-)
Post a Comment