Við á Skúlagötunni erum mikið pastafólk. Við erum sammála um að hið einfalda er oft lang best. Og ferskar kryddjurtir gera hvaða mat sem er að kóngamat. Og já, paramesan ostur, það er bara ekki hægt að borða pasta án þess að hafa með paramesan....Þar sem við borðum hvorki kjöt né fiskafurðir(bara þoli ekki orðið grænmetisæta), þá splæsum við alltaf í kryddjurtir og ostinn, en þetta finnst okkur algjör lúxus, það var bara einstaka sinnum að maður leyfði sér slíkt á námsárunum í Gautaborg.
Hérna kemur uppskriftin:Sítrónu- og basilíku pasta
fyrir 2
-safi úr 2-3 sítrónum
-1 dl ólífuolía
-100-125 g rifinn parmesanostur
-smá hunang
-1 knippi basilika
-250-300 g soðið pasta (ég nota yfirleitt spaghetti, veit ekkert hvað mikið)
Gera:
Sjóðið pastað, látið renna vel af því og látið aftur í pottinn.
Á meðan pastað sýður, vispið þá sítrónusafann kröftugt með olíunni og hrærið svo út í ostinum þar til sósan er orðin pínu þykk og "creamy" Bragðbætið með smá hunangi og jafnvel meiri sítrónusafa ef þér finnst það betra.
Hellið sósunni yfir pastað og hristið pottinn þannig að pastað sé þakið sósunni. Blandið að síðustu rifinni basilikunni yfir. Gott að bæta smá svörtum pipar og jafnvel smá sjávarsalti yfir.
Skreytið gjarnan með basilikublaði og smá sítrónu berki.
(á myndinni sem fylgir þá átti ég bara einhverja risa basiliku þannig að ég varð bara að klippa hana yfir réttinn ef hefði nú þótt fallegara að vera með heil, falleg blöð)
Verði þér/ykkur að góðu
5 comments:
Mmmm, girnó og fljótlegt að gera. Akkúrat það sem hentar mér í matreiðslu. Finnst þér vera munur á fersku og þurrkuðu pasta?
Ja, vissulega, mér finnst ferskt rosalega gott en ég nota nú samt oftast þurrkað og uni vel við. Og oft verður spaghetti fyrir valinu. Hef notað spelt spaghetti í þennan rétt, nota það rétt oft en það passar ekki í þennan rétt finnst mér.
Hvernig finnst þér gnocchi? Ég kaupi það ferskt í irma en ítalskur vinur minn hefur boðið okkur í heimagert gnocchi, rosa gott. Ég á uppskrift að svoleiðis, ef þú hefur áhuga. Það er mjög gott td bara með pestó. Súper auðvelt.
Endilega sendu mér það! Alltaf á leiðinni að prófa það
Mmmm, þetta ætla ég sko að prófa einhvern tímann! Og ekki skemmir fyrir að þetta er frekar fljótlegt!
Post a Comment