Saturday, September 29, 2007

Rauðrófupottur

Kannski ekki besta myndin í heimi...
Ég elska rauðrófur, þær eru svo bragðgóðar. Fékk fyrst æði fyrir þeim eftir að að vinir okkar, Jonas og Jelena, buðu okkur í rússneska rauðrófusúpu fyrir nokkrum árum í Gautaborg. Síðan þá er ég oft að skoða og leita eftir uppskriftum sem innihalda rauðrófur, endilega sendið mér tips ef þið hafið einhver. Smá fróðleikur:
Why Is Beetroot Healthy?
Declared by health experts as a ‘superfood’, you can eat beetroot with a clear conscience because it’s:
Virtually fat free – there are only 36 calories per 100g
Rich in iron – good for tiredness and anaemia
Rich in folic acid
A good source of vitamins (A, B and C) and minerals (calcium, phosphorus, potassium, magnesium)
High in fibre
And it has antioxidant properties.
Does Beetroot Make Us Happy?Recent research has declared beetroot a ‘mood’ food. Betaine found in beetroot is known to help us relax and make us feel good. Whilst recent press coverage has labelled it as a ‘sexy’ vegetable – containing high levels of the mineral boron which is thought to affect the production of sex hormones.
Rauðrófupottur

  • 1 msk. ólífuolía
  • 1 laukur, í þunnum sneiðum
  • 1-2 hvítlauksrif
  • 1 rauður chililaukur (má sleppa)
  • 1 1/2 tsk. cumin, malað
  • 1/2 tsk. túrmerik
  • 1/2-1 tsk. salt
  • 1/8 tsk. cayennepipar
  • 3 meðal stórar rauðrófur, afhýddar og skornar í litla bita
  • 1 sæt kartafla, afhýdd og skorin í litla bita
  • 1/2-1 dós kókosmjólk
  • nokkrar þurrristaðar kókosflögur til að skreyta með (má sleppa)
Gera:Mýkið laukinn, hvítlauk og chili í olíu í um10 mín. en passið að þetta brenni ekki. Kryddið og bætið rauðrófum, sætum kartöflubitum og kókosmjólk útí og sjóðið í minnst 1 klst. Skreytið að lokum með þurrristuðum kókosflögum.

Thursday, September 27, 2007

Quinoa réttur

Mig minnti endilega að ég ætti mynd af þessu, en finn enga svo þetta fær að fljóta í staðinn en þarna er ekki búið að blanda korninu saman við annars ofnsteikt grænmetið..
Þessi réttur er orðin mikið uppáhald á þessu heimili! Ekki skemmir fyrir að hann er bara mjög hollur. Quinoa kornið er upprunnið í S-Ameríku og var aðalfæða Inkanna. Það er glútenlaust og mjög næringarríkt. Það er sérstaklega mikið af prótíni (því mjög gott fyrir grænmetisætur) í quinoa en einnig er það ríkt af járni, fosfór, b-vítamínum og e-vítamíni. Það þarf stuttan suðutíma sem er gott fyrir okkur sem þykjumst alltaf vera svo upptekin:)

Hérna er uppskriftin:
  • 4dl quinoa korn
  • vatn
  • örlítið smjör(ég nota ólífusmjör)
  • 1-2 msk basilíka, þurrkuð eða fersk
  • 1-2 msk steinselja, þurrkuð eða fersk
  • 4 hvítlauksrif
  • 1 blaðlaukur
  • 2 vænir kvistir spergilkál
  • 1 lítið blómkálshöfuð
  • 2-3 gulrætur
  • 3msk ólífuolía
  • 4 tsk grænmetiskraftur
  • rifinn ostur og jafnvel smá paramesan (en ekki hvað)
Gera:
Setjið quinoa í pott, ásamt 8 dl af vatni og 1-2 grænmetisteningum. Hleypið upp suðu og látið svo malla í 15 mín. undir loki. Bætið þá við örlitlu smjöri, ásamt kryddjurtunum og pressuðum hvítlauk.(Ef þið viljið nota ferskt chili, þá er gott að bæta því í hér)

Skerið niður grænmetið. Gott er að léttsteikja það eða snöggsjóða áður en því er blandað saman við quinoað í eldföstu smurðu móti. Ég nota hreinlega það grænmeti sem til er, það er gott að nota papriku, tómata, chili, zuccini, ólífur, sólþurrkaða tómata eða bara það sem hugurinn girnist. Ath að aðeins þarf að forsjóða "hart" grænmeti. Blandið sem sagt öllu saman, stráið ostinum yfir og hitið á 180-200 gráðum í ca. 20 mín. Kryddið með salti og pipar. Berið fram með góðu salati

Það má gjarnan nota aðeins meiri vökva ef þetta er þurrt. Um daginn átti ég jalapeno ost í ískápnum og muldi hann þá í, það var mjög gott en kannski ekki eins heilsusamt en það er nú allt í lagi:)

Sunday, September 23, 2007

Hvaða land ertu?

Það er alltaf svo gaman að taka svona próf, sérstaklega þegar maður á að vera að vinna...taktu prófið og láttu mig svo endilega vita hvaða land þú ert. Ég tók líka "Animal" quiz og reyndist vera dúfa..



You're Mexico!

While some people think you're poor and maybe a little corrupt, you
know where it's at, enjoying good food and nice beaches. You like to take things a
little slower than those around you, and you really wish the air were cleaner, but sometimes
compromises must be made. For some reason, Chevrolet keeps trying to sell you Novas
as well, even though they don't really go.

Take the Country Quiz
at the Blue Pyramid

Saturday, September 22, 2007

Jæja, er polentubakan orðin dálítið þreytt...

Er búin að vera á leiðinni að setja inn nýja færslu alveg rooosalega lengi!
Hvar á maður að byrja eftir svona langt bloggfrí, kannski örstutt hvað er búið að drífa á daga mína.
Við, litla fjölskyldan skelltum okkur í 2 vikna yndislegt frí til Marbella á suður Spáni. Vinir okkar, Þorsteinn (Red), Brynja og dóttir þeirra, Mýrún tóku rosalega vel á móti okkur og þetta var þvílíkt huggulegt, risahús, við með okkar eigin álmu, risastór og fallegur afgirtur garður sem var lýstur upp á kvöldin, yndisleg sundlaug. Þetta allt með frábærum félagskap, góðu veðri, góðum mat og fullt af góðu rauðvíni og hvítvíni, bara getur ekki klikkað! Mun setja inn myndir sem fyrst.


Þegar heim kom tók alvara lífsins við, ég tók að mér verkefni og Saga byrjaði hjá yndislegum dagmömmum. Hún er búin að vera í 3 vikur í aðlögun, skulum bara segja að hér sé lítil mömmustelpa á ferð. Í gær var hún reyndar alveg frá hálfníu til tvö, en blessunin neitaði að þiggja bæði vott og þurrt, hmm. Þetta tekur dálítið á mömmuna.


Já, verkefni, ég er búin að vera að vinna ýmis verkefni fyrir
Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) Setti saman geisladiskinn Iceland Airwaves Eruption sem hefur að geyma lög frá 17 íslenskum artistum og var dreift víða í Bandaríkjunum á helstu útvarpstöðvar og þá sem hafa með tónlist að gera, einnig verður hann seldur sem imix á iTunes.

Í framhaldi af því var ég ráðin í að gera video podcast í tengslum við diskinn,
ég og Helga vinkona unnum það saman, sjá hérna.
Útkoman af videóinu leiddi til þess að við vorum ráðnar til að gera annað podcast með
John Kennedy, útvarpsmanninum knáa frá xfm í London, þar sem hann kom til Íslands yfir helgi og tók viðtöl við ýmsa, ma. við LayLow og Mugison, tékkið á þessu: JK Podcast

Er svo núna verkefnisstjóri/skipuleggjandi fyrir ráðstefnu sem fer fram í október, undir nafninu " Who is in control?"
Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN)(www.icelandicmusic.is) stendur fyrir ráðstefnunni í samvinnu við Útflutningsráð og Nordic e-Music.Markmið ráðstefnunnar er að fjalla um það helsta sem er að gerast í markaðssetningu á stafrænum miðlum. Einnig verður fjallað um hvort Ísland geti orðið prufumarkaður fyrir nýtt viðskiptamódel um efnisdreifingu á netinu.

Nóg um þetta, er næstum tilbúin með 2 uppskriftafærslur, góðan rétt með quinoa grjónum og svo rauðrófupottrétt, ætla svo loks að gera tenglalista og sortera uppskriftirnar, stay tuned..

Við Saga, í garðinum á Marbella, held að hún sé sætasta fótboltastelpa í heimi!
Það kemst sko engin bolti framhjá þessari skottu!
Fór á tvenna tónleika með Frans Ferdinand síðustu helgi, algjör snilld og fór líka í frábært matarboð með þeim félögum, stundum er gaman að eiga eiginmann í bransanum, þá hittir maður skemmtilegt fólk, hmm, reynum að muna þetta fram að Airwaves, þegar hann er í vinnunni öll kvöld til miðnættis. Þetta er Alex, söngvarinn, hann er nú dálítið töff..

Moi, Helga, Allý og Myrra
Fórum til Stykkishólms yfir verslunarmannahelgina, skvísurnar í ferðinni skelltu sér á bæjarbarinn, man bara ekki hvað hann heitir, anyone?

Hjónin á góðri stundu, alltaf sæt saman:)
Anna Hildur, framkvæmdastýra Útóns, Wendy blaðamaður, ég, John Kennedy og Helga
Tekið í eftirpartíi FL Group eftir Norah Jones, frekar skondið að sjá alla bankaplebbana, við
reyndum að sjálfsögðu að rokka partíið aðeins upp!