Thursday, November 22, 2007

Matarboð á Skúló

Haldið var á dögunum matarboð á Skúló, flestir að vinna hjá hr. Örlygi eða tengt því, reyndar vantaði sjálfan Mr. Red eða senior Destino, Þorstein og var hans sárt saknað og annað boð í uppsiglingu þegar hann er á landinu!
Boðið var upp á innbakaðann kjúklingabaunahleif (synd að ég tók engar nærmyndir, verð að segja að sá sem var gerður núna var fallegri og betri en þeir sem ég hef gert áður, maður aðlagar víst að sér réttina), boðið var upp á púrtvínssósu og hnetusósu með, Sara sæta kom með sætar kartöflur/gulrætur gums, Dill og Mill komu með geggjað salat, svo voru auðvitað strengjabaunir, ferskur aspar og annað gómsætt með. Við vorum öll svo södd og litla eldhúsið í rúúuust svo ég komst aldrei í að gera eftirréttinn, það verður bara næst:) Svo verð ég að fara að standa mig í uppskriftunum og segi næst smá frá Frakklandsferðinni.

4 comments:

Anna Linda said...

Hlakka til ad lesa meira um Frakklandsferdina.

Virdist hafa verid mjög huggulegt matarbod hjá ykkur og ég er viss um ad maturinn hafi verid geggjadur.

Ást frá Køben

Kamilla said...

Þetta var æðislegt matarboð!! Gæti vel hugsað mér að borða svona fínan mat á hverjum degi og í svona fínum félagsskap;)

Þín bíður dýrindis ilmsprey, vanillu og kókos. Einstaklega ljúft.

Anonymous said...

Hjálp, vantar rád um bulgur eda couscous ógedid sem Bjöggi kallar thad, hringi næst og fæ gód rád ;)

Sakna thín núna er minna en tvær vikur

Ást frá Køben

Anonymous said...

Gómsætur hleifur Leifur ég meina Eldar þú hefðir nú mátt klæða þig upp!!