Í gær langaði mig rosalega mikið í það sem lifir í minningunni sem týpískur sunnudagsmatur.
Þetta gerist ekki oft en útkoman varð þessi, brokkólí buff frá Móðir náttúra, brún sósa, grænar baunir, hrásalat í boxi og svo kartöflumús. Þetta væri ekki frásögufærandi nema hvað, húsfreyjan gerði alvöru kartöflumús í fyrsta skipti, mjög fullorðins. Tók enga mynd en þetta var góð tilbreyting og dálítið "old school" fyrir utan buffin.
1 comment:
Til hamingju með músina!! Almennileg kartöflumús er með því betra sem ég set ofan í mitt matargat.
Post a Comment