Þessi réttur er vægast sagt einn sá vinsælasti á mínu heimili! Okkur þykir hann alveg rosalega góður og elskum reyndar flesta risotto rétti. Til marks um hversu mikið mér þykir risotto gott þá varð ég td bara hálf miður mín síðastliðið sumar þegar ég var á hinum ágæta veitingastað, Hornið, og fékk mér grænmetis risotto, og það var bara ekkert varið í það! Bara eins og venjuleg hrísgrjón í grænmetissulli. Ég á það einmitt til að verða hálf ósátt þegar ég lendi í svona og hver kannast ekki við að fá of mikið eða lítið soðið pasta á veitingastöðum, mér finnst það alveg glatað, því það er jú svo mikilvægt að hafa þetta just right eða al dente. Ég hljóma eins og hin versti nöldurseggur, haha, vind mér í efnið.
Já, ég elda nú oftast á þessu heimili og þá líka þennan rétt en Eldar ákvað að elda á laugardaginn(þarna voru einhverjir sem hugsuðu eldar að elda, haha) , mér finnst frábært þegar hann sér um þetta, eiginlega mjög rómó og hann stóð sig eins og meistarakokkur, ótrúlega gott, ég bara fæ ekki leið á þessum rétt, jæja, uppskriftin góða kemur hér og mynd sem ég tók.
Lime eða súraldin risotto með sætum kartöflum fyrir 2
- 2 stórar sætar kartöflur
- olífuolía
- 2 dl avorioris (kaupi yfirleitt í Nóatúni eða Hagkaup)
- 5dl grænmetissoð (soðið vatn og 1 teningur, líka hægt að nota kjúklingakraft)
- 1 gulur laukur
- 1 hvítlauksrif
- 1 dl rifinn paramesan ostur
- 1-2 lime
- smjör
- salt og pipar
Gera:
Setjið ofninn á 200, skrælið og skerið kartöflur í teninga. Látið í smurt (smá olíu í botninn) eldfast mót, skvettið smá olíu yfir og inn í ca. 30 mín. Hrærið í, einu sinni eða tvisvar. Kryddið svo með salti og pipar og jafnvel með fersku eða þurrkuðu oregano (geri það sjaldan)
Skerið smátt, lauk og hvítlauk, mýkjið í smjörinu með rísinu án þess að það brúnist, hellið síðan yfir grænmetissoðinu, bara alltaf smá skvettu í einu. Þetta getur verið pínu vandmeðfarið og maður verður eiginlega að standa yfir þessu og láta sjóða og hæra reglulega í áður en næsta skvetta fer í. Gerið þetta í ca.18 mín. Áferðin á að verða mjúk, creamy og svona næstum seigt eða tyggjanlegt. (ekki það léttasta að þýða sum orð finnst mér)
Rífið limebörk, pressið ca 1 msk af limesafa út í risottoið. Bragðbætið með salti og pipar og jafnvel meiri safa. Hrærið að síðustu ostinum út í. Skreytið með limeberkinum og jafnvel meiri ost.
3 comments:
Fyrst Eldar gat eldað þetta, hlýt ég að geta það líka ;-) Líst rosa vel á réttinn en er pínu stressuð þar sem ég hef aldrei gert risotto áður.
Aha-þetta er gordjöss! Jömmí, hlökkum til að geta borðað saman :)
Asskoti smart borðskreyting hjá stráknum, hann hefur þetta greinilega í sér, þ.e.a.s svona rómantíkina.
A
Post a Comment