

Þessa uppskrift fann ég í uppskriftabók þegar ég var að vinna næturvakt á skammtímaheimili sem ég vann á í Svíþjóð fyrir fötluð börn , tók stundum að mér næturvaktir svona til að fá smá aukapening en ég var ekkert hrifin af því, varð alltaf hálf skrítin eftir nóttina.
Miklu skemmtilegra líka að vinna á daginn, þegar börnin voru vakandi.
Og aðeins meira um þetta, þetta var alveg frábær vinnustaður, í skógarjaðri, vatn í göngufjarlægð til að synda og leika í , allt í kring hægt að týna epli, hindber og kirsuber, alltaf einn starfsmaður á barn og menntuð eldhús/mötuneytis kona sem sá um matinn þannig að hann væri hollur og góður . Nóg um það, þegar ég flutti heim langaði mig gjarnan að vinna að hluta til við eitthvað svipað, svo ótrúlega gefandi starf. Little did I know..
2-3 starfsmenn á 5 einstaklinga, einstaklingarnir á aldrinum 12 til 50ára, með mjög misjafna fötlun, mjög ólíkur hópur með oft lítið sameiginlegt. Þurftum sjálf að elda matinn sem var ekki sá næringaríkasti, helst koma öllum í bað á kvöldin og ná að sinna öllum sem einstaklingum út frá þeirra þörfum, sem á auðvitað að vera markmiðið.
Sum kvöld gekk þetta ágætlega, eftir því hvaða einstaklingar voru hjá okkar en sumir hefðu algjörlega þurft einn starfsmann með sér þannig að sum kvöld þá var maður hreinlega lafmóður og ég meira að segja gleymdi manneskju inni á klósetti, tvisvar, á meðan ég var að reyna að sinna öðrum. Ég tók þetta allt svo nærri mér að ég hætti eftir rúma 2 mánuði.
Ég veit að við búum í fámennu landi og þá sjálfkrafa verða möguleikar vissra samfélagshópa minni, þekki það líka persónulega en ég á einhverfan bróður sem að hefur átt misjafna ferð í gegnum kerfið hérna. Úff, þetta gerir mig yfirleitt bara leiða svo að skemmtilegri hlutum...
Eldaði súpuna í gær og bakaði brauð og svo tókum þetta bara með okkur til hinna nýbökuðu foreldra, Laufeyjar og Bjarka, vitum sjálf að maður er ekkert á fullu í eldhúsinu fyrstu dagana og því gott að fá eitthvað gott í mallakút. Speltbrauðið sem uppskrift er að í annarri færslu var einstaklega gott, var með kúmen í því og graskersfræ ofan á, mjög gott og líka frábært, ristað daginn eftir með smjöri og ost.
Búlgörsk linsusúpa
- 2 gulir laukar, smátt hakkaðir
- 2 hvítlauksrif
- 1 msk olía
- 1 l vatn
- 2 grænmetisteningar
- 2 dl rauðar linsur
- 1 msk paprikuduft
- 1 tsk salt
- 1 lárviðarlauf
- 1 tsk timjan
- 1 dós hakkaðir tómatar
- 1/2 tsk sykur
- 1/2 tsk balsamic vinegar (má sleppa)
- Klípa af sýrðum rjóma út í hverja skál og steinselja rifin yfir (má sleppa)
Mýkið lauk og hvítlauk, skellið svo út í linsum og paprikudufti, síðan tómatana
yfir, þar eftir vatn og teningar, svo lárviðarlauf og krydd, látið malla í 30-40 mínútur. Hellið í balsamic edikinu í endann. Því lengur sem þetta fær að malla, því betra, þetta verður svona þykk súpa, sniðugt líka að bara fram hrísgrjón með.
Mæli með að gera tvöfalda og frysta!
3 comments:
Girnó!! Þessa súpu á ég pottþétt eftir að prófa. Mér þykir svo gaman að gera súpur. Þarf svo endilega að manna mig upp í að baka brauð.
Takk bara enn og aftur! Bara þvílík þjónusta og brauðið og súpan algert gúmmelaði :)
verði ykkur að góðu,gaman að geta gert eitthvað:)
Post a Comment