Annar í Páskum var annasamur dagur á þessu heimili.
Eldar svo að segja með símtólið límt við eyrað en hann var að skipuleggja Bjarkartónleikana.
Ég á fullu í eldhúsinu með Sögu, sem er orðin krakki, á mjöðminni. Ég var nefnilega með lítið matarboð, svona bæði af því að ég átti afmæli 7.apríl og svo var þetta svona fyrirpartý fyrir Bjarkartónleikana. Hefði viljað bjóða miklu fleirri stelpum en það verður bara næst.
Ég bakaði franska súkkalaðiköku og gerði mat með miðausturlanda brag, Tabbouleh
falafelog ýmislegt góðgæti með því, mjög sniðugt því þetta er hægt að undirbúa áður og bera fram kallt.
Þetta var pínu stress þar sem Eldar var svona upptekin og ég líka að fara í fermingu sem byrjaði kl.16 en mitt boð byrjaði kl.17. Sem betur fer á ég yndislegar vinkonur sem hjálpuðu til og gerðu allt fínt þannig að ég kom í raun hálftíma of seint í mitt eigið boð þar sem þær voru búnar að setja punktinn yfir i-ið! Takk elskurnar mínar!! Og takk Edda og tengdapabbi fyrir að gæta Sögu:) Tónleikarnir voru æði!!!!!!!
Tabbouleh
fyrir 6
- 2 1/2 dl búlgur
- 1 rauðlaukur
- 1/2 blaðlaukur
- 2 tómatar
- 1 rauð paprika(má sleppa)
- 1/2 gúrka (taka smá af miðju ef hún er mjög mjúk)
- 1/2 búnt steinselja
- 1/2 búnt mynta
- 1 sítróna (safi)
- 3msk ólífuolía
- Ólífur (má sleppa)
- Fetaostur (má sleppa)
Látið búlgur í skál, hellið sjóðandi vatninu yfir, hrærið í og lokið. Látið standa í 3-5 mín og hrærið svo aftur, standa í ca 2 mín og hræra aftur. Hellið smá olíu yfir, salti og pipar og hrærið, látið kólna.
Skerið allt grænmetið mjög smátt, en það er sniðugt að taka til hliðar smá til skreytingar. Saxið smátt steinselju og myntu en skiljið eftir heil blöð til skreytingar.
Blöndið öllu saman við búlgurnar nema tómötunum, helst á grunnt og vítt fat.
Látið tómatana ofan á, skreytið með kryddjurtunum og svo er smart að skreyta líka með með allskonar ólífum og fetaosti en það er líka verið sniðugt að hafa það sér þannig að fólk geti bara fengið sér það ef það vill.
Ath! Maður getur alveg borðað þennan rétt einn og sér en ég er oftast með falafel með, hummus og pítubrauð sem ég sker í ferninga, pensla rétt með olíu og skelli í ofn í örskamma stund. Sniðugt að skella á suma ferningana sesam eða kúmen
Falafel
- 675gr kjúklingabaunir (ég nota 3 dósir án vatnsins)
- 1 rauður laukur, hakkaður
- 3 hvítlauksrif
- 100 gr brauðrasp
- 2 litlir rauðir chilli (eða þurrkaðir, 1-2 tsk)
- 1 tsk cumin (einhver með íslenska heitið á því?)
- 1 tsk kóríanderduft
- 1/2 tsk turmeric
- 1 msk ferskur kóríander og einnig smá til skreytingar
- salt og pipar eftir hentisemi
- 1 egg til að pensla með
Látið baunir, lauk, hvítlauk, rasp, chilli,ferskan kóríander og krydd í matvinnsluvél. Blandið í 30-45 sek, bætið út í salt og pipar. (Ég hef líka látið út í svona 1/4- 1/2 dl af jurtaolíu, svo þetta haldist betur saman)
Myndið bollur úr blöndunni, td á stærð við valhnetu/mozarkúlu. Ég bý til lengju úr blöndunni, þjappa henni og sker og skipti með hníf, svo þær verði svipað stórar. En kannski er það óþarfa smámunasemi. Einnig nota ég einnota hanska þar sem ég er dálítil pjattrófa:)
penslið með egginu.
Í uppskriftinni er manni sagt að hita olíu upp í 180 gráður eða þar til brauðteningur gyllist á 30 sek. Steikið nokkrar bollur í einu, í 2-3 mín.
Ég er svo hrædd við olíu, svo ég læt þetta í ofn, í svona 45-60 mín.
Skreytið gjarnan með kóríanderlaufum, sítrónubátum, tómötum og gúrkum /algengt í miðausturlöndum, gleymdi að segja að ég borðaði falafel í alltof mörg mál í Palestínu:)
Æðisleg frönsk Súkkulaðikaka
- 200 gr smjör
- 200gr suðusúkkulaði eða dökkt súkkulaði
- 4 egg
- 3 dl sykur
- 1 dl hveiti
- 100 fínt malaðir heslihnetukjarnar
Smjör og súkkulaði í skál, brætt yfir vatnsbaði, þeyta egg og sykur mjög vel saman, smjörsúkkblanda látin út í egg og sykur og hrært varlega saman, hveiti og hnetum blandað saman og svo bætt varlega útí, blandið öllu varlega saman. Smyrjið og sáldrið hveiti (ég sleppti hveitidæminu) í 23 cm hátt form, bakið við 180 gráðu hita í umþ 35 mín. Skreytið með td. flórsykri, jarðaberjum og kíwi.
3 comments:
Nammmmmm...
flottust :)
Sæl elskan, þetta var frábær veisla hjá þér eins og alltaf. Mig verður oft hugsað til Gautaborgar áranna og allra veislanna þar, einhverra hluta vegna er mér sérstaklega minnistæður brunchinn úti á svölunum þegar ég var á leið í rútuna. Við eigum pantað borð kl:20 á mið. K
Anna Linda
Post a Comment