Friday, March 30, 2007

Mömmulunch



Það var hálfgrátt í dag og rigningarlegur föstudagur. Svona dagar eru tilvaldir til að fá til sín góða gesti. Við ákváðum að hittast hérna á Skúló, ég og þrjár aðrar mömmur, Ylfa með hana Heklu sína, Edda með Ívar Óðinn og Kikka frænka með litlu skott(verður skírð á Sumardaginn fyrsta) Þessi kríli eru öll fædd á tímabilinu 17.des´06 - 29.jan´07
Skellti í eina grænmetissúpu og svo var bara brauð og álegg. Eplalengja í ofni í eftirrétt (mæli með henni, fæst í Bónus á 299kr, snilld. Bar fram vanillusósu með henni sem ég kaupi í Sverige og maður vispar hana bara með mjólk, namm.

Mömmusúpan

- 1 gulur laukur
- 1 blaðlaukur (púrra)
- 4 gulrætur
- 1 blómkálshöfuð (getið notað kartöflur í staðin)
- 2-3 hvítlauksrif
- dós kókosmjólk
- dós hakkaðir tómatar
- 2 dósir vatn
- 1 dl tómatpúrré
- 2 grænmetisteningar
-1-2 tsk cumin
- 1-2 tsk paprikuduft
- skvetta af cayenne pipar og tumeric, má sleppa
- smá salt og pipar
-Ferskur kóríander til skreytingar (ég gleymdi því í dag)

Gera:
Laukur og blaðlaukur, skorið smátt og látið mýkjast í olíu ásamt hvítlauk í ca 5 mín. Restin af grænmetinu skorið í smá bita og sett út í. Bætið út í tómötum og svo kókosmjólkinni, bætið svo út í vatni og teningum (ég sýð vatn í hraðsuðukatlinum, læt sitthvorn teningin í dósirnar utan af tóm. og k.mjólkinni, helli svo soðnu vatninu yfir teningana svo þeir leysist upp og helli útí) Kryddið og látið svo malla í 30-40 mín. Klippið kóríander yfir réttinn

Auka: ekki vitlaust að skella í eins og 1-2 dl af rauðum linsum útí, nýrnabaunum eða kjúklingabaunum, svona til að fá í sig góð prótein

4 comments:

Anna Linda said...

Flott síða hjá þér elskan :)

Sjáumst á miðvikudag. KKK

Anonymous said...

Æðisleg mynd af matarborðinu! Tók sérstaklega eftir flotta tekatlinum, ég er nebbla alltaf soldið veik fyrir tekötlum.

Anonymous said...

ja, þetta er reyndar súpu tarina, veit ekki alveg hvort ég sé að skrifa rétt. Þetta er voða smart þegar maður er að bjóða í súpu, svo er ég með skálar og diska í stíl. Gleymdi reyndar að nota diskana þarna, þó svo að þeir séu hliðina á þeim sem ég notaði í staðin. Dálítið gleymin þessa dagana:)

Anonymous said...

úúú, kúl að eiga súputarínu!! Very fancy :-)