Monday, July 28, 2008

Sumarlegt spaghetti og rosalegur eftirréttur



Hér kemur fyrsta uppskriftin í langan tíma. Við fengum góða gesti í heimsókn í íbúðina góðu sem við fengum lánaða í Gautaborg, þau Eyrúnu og Collin en við kynntumst þeim þegar við bjuggum hérna, Eyrún er íslensk eins og nafnið gefur til kynna en hefur búið í Gautborg meira eða minna alla sína ævi og Collin skoskur og flottur tónlistarmaður, hefur ma.spilað á Airwaves. Mun einnig gefa upp geggjaðan og einfaldan eftirrétt sem Eyrún kom með.

Það var 30.5 stiga hiti á föstudaginn þannig að ég gat ekki hugsað mér að fara út í flókna matargerð og þessi uppskrift varð fyrir valinu, var í einhverju blaði sem ég var að lesa á ströndinni:) Og trúið mér, grænbaunapestóið er hryllilega gott þótt nafnið kannski blekki. Grænar baunir eru líka voða hollar.

Sumarghetti með balsamic tómötum og grænbaunapesto.
Fyrir 2

  • ca. 250 g spaghetti eða annað pasta
  • 1/2 rauðlaukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 1/2 dl ólífuolía
  • 1 askja kirsuberjatómatar
  • 1 dl balsamicedik
  • salt og pipar
  • 1/2 krukka fersk basilika
  • Baunapestó:
  • 2 dl frosnar grænar baunir
  • 1 dl heslihnetur eða hýðislausar möndlur
  • 1/2 dl olífuolía
  • 1 lítið hvítlaukrif
  • 2-3 msk sítrónusafi
  • salt og pipar
Gera:
Pestó: ég lét baunirnar í skál og hellti svo yfir heitu vatni sem ég hellti aftur af eftir smá stund til að láta þær þiðna en ég skal viðurkenna að ég lenti í smá vandræðum að mixa þær þar sem ég notaði staf en maður átti helst að láta þetta í matreiðsluvel. Bætið út í öllu öðru og mixið vel en samt gott að mauka þetta ekki alveg.

Saxið rauðlaukinn smátt og steikið í olíunni á pönnu, kremjið hvítlaukinn yfir og bætið svo út í tómötunum í hálfum bitum eða í fjórum helmingum ef þeir eru stórir. Steikið í smá stund og hellið svo balsamic edikinu yfir.

Látið renna vel af pastanu, setjið aftur í pottinn og hellið yfir smá ólífuolíu og látið á lokið í smástund. Deilið svo pastanu á diskana, stráið yfir saxaðri basiliku, hellið yfir smá tómatajukki og síðan klípu af pestóinu. Verði ykkur að góðu!

Eyrúnar yummie
  • Ferskur Ananas
  • Hindber
  • Hvítt súkkulaði
  • Vanilluís
Gera: Skerið niður ananas í bita, blandið saman við hindberin í eldföstu móti, myljið hvíta súkkulaðið yfir og látið inn í heitan ofn í smá stund eða þannig að súkkulaðið bráðni, berið fram með ís!! 'Uff
Svo er auðvitað hægt að nota aðra ávexti og jafnvel dökk súkkulaði

Wednesday, July 23, 2008

Halló halló

Ákvað að prófa að skrifa eitthvað, mundi passwordið til að komast inn og allt. Ég held að ég hafi farið í blogg diet, bæði þá að skrifa blogg og lesa önnur blogg. Ég hef þó ekki hætt að elda og hætti því nú varla úr þessu....

Við fjölskyldan erum í sumarfríi, það byrjaði frekar brösulega og og það er ástæða fyrir því að framan á mörgum "kvennablöðum", alla vega hér úti (erum í Gautaborg) eru greinar með tiltlum á borð við þessa; Hið fullkomna sumarfrí, hvað er það"?, "Afhverju er ég ekki glöð í sumarfríinu"? Osfrv. Það er ótrúlegt hvað það getur tekið langan tíma að "trappa sig niður" og ég var td. alveg ómöguleg fyrstu dagana þannig séð, langaði að gera allt og ekkert á sama tíma, og allt á að vera svo fullkomið, ja ég er alla vega svona og það er eins og ég læri ekki af reynslunni. Kannski þarf ég bara að sættast við að svona er Eva en stefna á að verða alltaf aðeins betri með hverju ári og sumarfríi.

En já, við flugum til Köben og heimsóttum Önnu Lindu og áttum yndislega daga með henni, fórum í dýragarðinn, það var sól og djass hátíð, yndislegt. (ég er ekki dýramanneskja eða dýragarðsmanneskja en það er eitthvað sem gerist þegar maður er í för með barninu sínu) Bláberjapönnukökur í morgunmat, gott rauðvín, góðar samræður, æðislegt!

Fórum svo til Hrefnu mágkonu minnar í Árósum, sem var að klára MA ritgerðina sína og bara orðin sálfræðingur, erum svo stolt af henni. Áttum frábæra daga og mikil huggulegheit, elduðum fullt af góðum mat og Saga og Hrefna, frænkurnar fínu gátu kynnst svolítið betur og það er augljóst að Saga er mjög hrifin af henni.


Erum nú komin til Gautaborgar, á fornar slóðir menntaáranna, erum í yndislegri íbúð á góðum stað sem vinkona mín á en hún ætlar einmitt að vera í okkar íbúð heima. Við höfum það ótrúlega gott, Saga rosa sátt og talandi um það, ætla út í góða veðrið með henni.....ciao

p.s. stefnan er sett á að bæta inn einni uppskrift eða svo í vikunni.