Ég, Myrra og Helga ákváðum að hittast eitt kalt föstudagskvöldið og mig langaði að gera góða súpu án þess að þurfa að kaupa mikið inn (það er átak hérna að nota það sem til er) Þessi súpa frá Sollu(Grænn Kostur ) varð fyrir valinu og vá hvað hún er góð, og einföld. Borðuðum frábært muslibrauð með sem tengdamamma hafði bakað og gefið mér. Ég mæli með þessari, hún er æði! Ath. Ég gerði tvöfalda en einföld ætti að duga sem forréttur. Og eitt enn, Eldari finnst frekar erfitt að fara ekki alveg eftir uppskrift og það á örugglega um fleiri. Þess vegna skrifa ég oft aðra möguleika eða hvað er ekki nauðsynlegt svo maður veigri sér ekki við að gera sumar uppskriftir þótt ekki allt sé til í þær. Klettasalatssúpa
- 1 stk laukur
- smá ólífuolía
- 1 1/2 dl mysa (þarna notaði ég hvítvín)
- 1/2 lítri vatn
- 1-2stk grænmetisten.
- 1 dl kókosmjólk
- 100g klettasalat
- smá sjávarsalt
- cayennepipar af hnífsoddi
Ofan á:
- smá klettasalat
- 1/2 dl ristaðar kókosflögur (má sleppa )
- 2-3 stk vorlaukar (má sleppa)
Gera:
Saxið laukinn smátt, hitið olíu í potti og mýkið laukinn í um 10 mín. Bætið mysu, vatni, grænmetiskrafti og kókosmjólk útí, látið malla í 10 mín. Setjið í blandara/notið töfrasprota ásamt klettasalatinu og bagðið síðan með salti og pipar. Mýkið vorlauk á pönnu í 2-3 mín, Þurristð kókosflögurnar á pönnu þar til gylltar. Stráið þeim svo yfir súpuna ásam vorlauk og smá klettasalati. Voila!
Jamm, ný uppskrift, enda tími til kominn. Og gleðilegt ár og allt það. Andleysið hefur verið í meiralagi og hreinlega engir aukakraftar í matreiðslu og bloggskrif. Janúar var pínu þungur svona fyrir sálartetrið en finn að maður er allur að koma til með hækkandi sól. Byrjaði í nýju starfi í byrjun janúar, kynningarfulltrúi að gera ýmislegt í Hinu Húsinu og ég kann bara mjög vel við mig. Það var smá breyting að byrja í fullu starfi eftir að hafa verið í verkefnavinnu og ráðið sér og sínum tíma sjálf.
Finnst pínu erfitt að venjast því að sækja ekki Sögu mína þar sem ég er að vinna til kl. 17 og stundum lengur, en þetta er allt að koma og vá hvað helgarnar verða heilagar, maður kann svo sannarlega að meta þær. Fórum í helgarferð til London, litla fjölskyldan, mamma mín, Freyja og Gauti. Það var mjög fínt og sól alla dagana spillti ekki fyrir.
Héldum smá matarboð í janúar, gerði þessa klatta í forrétt í fyrsta skipti og ekki það síðasta. Mjög auðvelt! Mæli með að nota plasthanska, nota þá yfirleitt þegar ég nota rauðrófur því þær lita svo mikið. (það er örugglega hægt líka að nota gulrætur í stað rauðrófa) Í aðalrétt buðum við upp á hina góðu Kasjúw paellu, uppskriftin hérna.
Rauðrófuklattar með kóríander rjóma
- 1 stór rauðrófa, ca 75gr
- 2 kartöflur
- 1/2 gulur laukur
- 1 egg
- 1 krm salt
- Olía til steikingar
Kóríanderrjómi
- 1 dós sýrður rjómi
- 3-6 msk hakkaður kóríander
- smá salt
Gott að gera blanda þessu saman og leyfa að standa í kæli í smá tíma. Endilega bragðbætið með smá hvítlauk eða piparrót
Gera: Flysjið rauðrófur og kartöflur og takið utan af lauk, rífið gróft í skál. Bætið út í eggi og salti, fletjið út í 4-6 klatta, kreistið úr sem mestan vökva ef hann hefur myndast, skellið á pönnu og steikið á meðalhita í ca. 3 mín. hvora hlið. Berið gjarnan fram á salatbeði (spínat, ruccola) og skellið slettu af kóríanderrjóma ofan á.
Leyfi myndum af tilraunasushigerð að fljóta með, ég get reynt að setja inn uppskrift ef einhver hefur áhuga? Er engin sérfræðingur í þessu.