Thursday, October 25, 2007

Graskerssúpa ofl

Saga, steinhissa með sæta, litla graskerið

Súpan góða

Mæðgurnar á góðri stundu í eldhúsinu

Afi Einar, húsfreyjan og Saga sterka

Moi, Helga skvís og Laufey skvís, dálítið gular eitthvað


Gott rauðvín spillir svo sem ekki fyrir góðum indverskum mat

Og að síðustu, gullskór, alveg málið á þessu heimili

Keypti lítið grasker um daginn. Vissi ekki alveg hvað ég ætti að búa til en þetta varð útkoman, mér fannst þetta bara mjög gott, enda mikil súpukelling. Ég vil taka það fram að ég fer oftast eftir uppskriftum eða alla vega að hluta til. Þessi er að hluta til byggð á sænskri uppskrift sem ég fann á netinu og svo bara bull frá mér.

Leyfði nokkrum öðrum myndum að fljóta með, m.a. myndir frá matarboði síðustu helgi þar sem Helga, Laufey, Bjarki, Hrafnkell Númi ofl kíktu við, svaka huggó og góður indverskur matur en lélegar myndir og leti í gangi (ömmurnar hefðu ekki verið sáttar að sjá mann bera þetta svona fram (allt á síðustu stundu á skúló og ekki í fyrsta skipti)


Graskerssúpan
  • 800gr Graskers"kjöt" (sætar kartöflur gætu alveg gengið)
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 l grænmetissoð (vatn+2 teningar)
  • 1 dl mjólk (ég hefði örugglega notað aðeins meiri mjólk í stað vatns en átti hana ekki)
  • Safi úr hálfu eða heilu lime (ég notaði hálft)
  • 2-3 tsk sambal olek (chili krydd jukk sem ég kaupi í Nóatúni, örugglega hægt að nota ferskan eða þurrkaðan chili í staðinn.)
  • Salt og pipar af vild
  • Sýrður rjómi, ein sletta í hverja skál
  • Graskersfræ til að strá yfir(helst rista þau)
  • Ferskur kóríander
Mýkið lauk og hvítlauk í potti, skerið grasker í teninga og skellið útí. Steikið í smá stund og látið hellið svo soðinu yfir. Ef þið notið ferskan chili, látið hann þá útí áður en þið látið soðið yfir. Látið sjóða í ca. 10 mín. Bragðbætið með sambal maukinu, lime og salt eftir þörf. Mixið súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Bætið út í sýrða rjómanum, tsk eða msk út í hverja súpuskál.
Hellið í skálar og sáldrið ferskum kóríander yfir og graskersfræunum

Friday, October 12, 2007

Góða helgi!

Það hefur ekki verið mikið eldað á þessu heimili síðustu vikuna. Litla fröken er búin að vera veik síðan síðastliðinn laugardag, litla skinnið og við foreldrarnir á kafi í vinnu.
Ráðstefnan sem ég er að skipuleggja leggst bara nokkuð vel í mig en ég skal þó alveg viðurkenna að ég hlakka mjög til þegar hún og Airwaves eru afstaðin. Þá ætti að komast á venjulegt heimilislíf á þessum bæ. Þá verður sko eldað fullt!

Þessar myndir urðu í raun afgangs þegar Spánarmyndir voru settar inn á síðuna hennar Sögu þannig að þær fá bara að fljóta með hérna.
Góða helgi!

Það var nú frekar huggulegt að elda í stóru eldhúsi, horfa út í garðinn og fá heitan blæ á sig

Saga kippti sér ekkert upp við það þegar Steini og Philip grilluðu hverja steikina á fætur annarri
Steini kryddar kanínuna
Mýrún vildi hjálpa pabba sínum
Svo huggulegt að borða úti í garði
Kanínan krydduð og góð,já, mér fannst þetta pínu merkilegt

Annan daginn var boðið upp á kolkrabba en Steini og Brynja eru miklir matgæðingar og það var mikið rætt um matargerð

Monday, October 8, 2007

Hnetusósan hennar Sollu


Á föstudaginn var komu Karlotta systir og Kiddi í mat og pössuðu svo Sögu á meðan við foreldrarnir skelltum okkur á tónleika. Það voru tortillur fylltar með spínat- og skyrblöndu, þarf að taka mynd af því og gefa upp þá uppskrift, geri það næst.

Ég verð að viðurkenna að það hefur valdið mér pínu kvíða að hafa fallist á að gefa uppskrift í einu blaðana um daginn og þá gefa upp bloggsíðuna, hafði einhvern veginn ekki hugsað út í að þá myndu væntanlega fleiri "ókunnugir" kíkja hérna inn. Hugsanir eins og hvort ég hafi skrifað eitthvað asnalegt og að það séu málfræðivillur úti um allt hafa gert vart við sig en núna er ég aðeins rólegri og held mínu striki, vitandi það að ég er kannski ekki besti kokkurinn, penninn, eða sérstaklega sleip í íslensku en ég hef gaman af þessu og á meðan svo er þá er bara um að gera að halda þessu áfram, og einmitt það, hérna er auðveld en góð máltíð sem er auðvelt að matbúa. Þið sem hafið ekki prófað hnetusósuna úr grænu Hagkaupabókinni, vá, þið vitið ekki af hverju þið eruð að missa, hún er rosaleg!

Buff með rótargrænmeti og hnetusósunni hennar Sollu
fyrir 2

2-4 grænmetisbuff (Þessi frá Móður jörð eru vinsæl hjá okkur)
Eitthvað gott salat

Rótargrænmeti
  • 1 rófa
  • 1 rauðrófa
  • 2 gulrætur
  • þurrkað timjan
  • Salt og pipar
Flysjið rófur og rætur, skerið í jafna bita, skellið í smurt form, skvettið ólífuolíu yfir, kryddið með salti, pipar og timjan. Best er að nota sjávarsalt, nýmalaðan pipar og munið að nudda timjanið með fingrunum áður en það fer út í, það dregur fram bragðið í því.

Hitið í ofni í 30-60 mín á 200°. Það fer hreinlega eftir hvernig þú vilt hafa áferðina á þessu og svo er ofninn minn dálítið gamall og ég þarf yfirleitt að hafa allt sem ég geri lengur en aðrir í ofninum.

Hnetusósan hennar Sollu
  • 2 dl hnetusmjör
  • 2dl sjóðandi vatn
  • 3 msk Tamarisósa (getið notað venjulega soya)
  • 4 döðlur
  • hálft búnt kóríander
  • 3 rif hvítlaukur
  • 1-2 msk sítrónusafi
  • 1/2 búnt kóríander
  • 1/4 tsk cayenne pipar
Setjið hnetusmjörið í matvinnsluvél, hellið vatninu útí og láitð þetta blandast vel. Saxið döðlurnar smátt og pressið eða saxið hvítlaukinn. Bætið út í og blandið vel. Maður getur hitað þetta upp en það er ekki nauðsynlegt.

Thursday, October 4, 2007

Cashewhnetu Paella

Þessi réttur er dálítið öðruvísi, ýmis brögð sem takast á, fallegir litir og úr verður skemmtileg blanda. Ekki láta langa uppskriftina hræða ykkur, þetta er alveg þess virði og alls ekkert flókið. Það er alltaf pínu áskorun að gera nýja rétti en annað skiptið verður léttara og svo er bara svo gaman að prófa eitthvað nýtt, alveg nauðsynlegt fyrir sálartetrið. Þessi verður á boðstólnum á mínu heimili um helgina. Góða helgi!!
Ps. Það væri gaman að vita hverjir eru að sniglast hingað inn…

Cashewhnetu Paella
  • 2msk olía
  • 1 msk smjör
  • 1 rauður laukur, saxaður
  • 150 g arborio grjón
  • 1 tsk turmeric
  • 1 tsk cumin
  • ½ tsk chili duft
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 grænn chili, skorin smátt
  • 1 græn paprika, skorin í teninga
  • 1 rauð paprika, skorin í teninga
  • 85 g baby maís, skornir í helming á lengdina
  • 2 msk svartar ólífur
  • 1 stór tómatur, i teningum
  • 450 ml grænmetissoð (ca.1 teningur)
  • 85 g cashew hnetur (helst ósaltaðar)
  • 55g frosnar grænar baunir
  • salt og pipar
  • 2 msk steinselja
  • örlítill Cayenne pipar
  • ferskar jurtir til skreytingar

Gera

Hitið olíu og smjör á stórri pönnu eða í potti. Bætið útí lauk og eldið á meðalhita, hrærið viðstöðulaust í 2-3 mínútur eða þar til þetta er mjúkt.


Hrærið grjónum útí, turmeric, cumin, chillidufti, hvítlauk,chili, paprikum, babymaís, ólífum og tómötum, eldið á meðal hita, í 2-3 mínútur.

Hellið grænmetissoðinu yfir og fáið upp suðu. Lækkið hitann og látið malla í 20 mínútur, hrærið oft í .
Bætið cashew hnetunum og baunum útí, látið malla í 5 mínútur til viðbótar, hræra í við og við. Bragðbætið með salti og pipar og bætið svo steinseljunni útí og chayenne piparnum. Skreytið með ferskum jurtum. Verið ykkur að góðu!