Monday, April 23, 2007

Foreldradinner




Á laugardagskvöldið fyrir viku síðan fengum við hingað góða gesti, hina nýbökuðu foreldra, Bjarka og Laufey og litla kút, sem er alveg yndislegur, hvað skyldi hann eiga að heita? (Eldar/Eva= Elvar?)
Borðuðum með smá hléum (krílin þurfa líka sinn mat), salat, risotto og svo frábæran eftirrétt sem þau komu með, ber, makkarónur og hvítt súkkulaði í ofni, borið fram með ís, namm!!!
Þetta var ótrúlega gaman og svo fyndið eitthvað að vera þarna saman, foreldrarnir, haha. Nú verðum við að fara að haga okkur.

Salat með gráðosti
fyrir 4
  • Smá ruccola á hvern disk
  • 4-5 tómatsneiðar, raðað ofan á ruccolað
  • 1 tsk af litlum kapers á hvern disk
  • Rífið smá gráðost yfir hvern disk
  • Rífið eða klippið yfir hvern disk ferska basiliku
  • 3-5 grænar ólífur (helst fylltar með möndlu) á hvern disk
  • saltflögur/sjávarsalt, pipar og skvettu af balsamic edik, já, á hvern disk:)

Sveppa og valhnetu risotto
fyrir 4

  • 4 fínhakkaðir skallottulaukar (eða 2 litlir gulir)
  • 4 hvítlauksrif, fínt hökkuð eða marin
  • ca 300 gr sveppir (hægt að nota blöndu, td. shiitake)
  • Smá klípa af smjöri og smá ólífuolía að steikja upp úr
  • 6 dl aborio ris (risotto ris)
  • 12 dl grænmetissoð (sjóðandi vatn og 2 teningar)
  • 4-6 dl hvítvín (má sleppa og nota meira soð en þó betra með víni)
  • 3-4 dl rifinn paramesanostur
  • 3-4 dl hakkaðar valhnetur
  • Nýmalaður svartur pipar

Steikið lauk, hvítlauk og sveppi, án þess að það taki á sig lit, bætið út í rísi og steikið í smástund þannig að rísið verði næstum gegnsætt. Hellið soðinu yfir, smá og smá í einu og hrærið mikið.

Þegar vökvinn er farin, þá bætið meira út í, líka víni í bland við soðið. Hrærið alltaf í. Takið af eldavélinni eftir ca. 20-30 mín. Hrærið ostinum útí. (Rísið á að vera orðið "kremkennt" þegar ostinum er bætt í)


Bætið út í valhnetunum og bragðbætið með piparnum. (geymið nokkrar valhnetur til að skreyta ofan á , dreifið yfir smá osti og jafnvel smá steinselju)



Sunday, April 22, 2007

Stelpukvöld



Áttum yndislegt kvöld saman, ég, Anna Linda, Inga, Edda og Helga, Devitos pizza og svo geggjuð súkkulaðikaka sem Anna Linda gerði og kom með. Já, svona er kvöldin hjá okkur, bara það besta. Saga elskar að fá gesti, hún virðist sérstaklega félagslynd og blaðrar mikið...hmmm, er hún eitthvað að líkjast mér?

Friday, April 20, 2007

Afmælis og Bjarkartónleika partý

Gjörið svo vel!
Þura og Edda, óléttar og sætar, oh hvað það verður gaman í ágúst!
Myrra og Helga
Spurning um að pósa, Anna, ég og Helga
Allý, Adda og Svanhvít

Tabbouleh, líbanskur réttur
Falafel, hummus og jógúrt/myntusósa

Kakan þótti mjög góð sem gerði mig stolta, aldrei þótt mikill bakari (Anna skreytti)

Annar í Páskum var annasamur dagur á þessu heimili.
Eldar svo að segja með símtólið límt við eyrað en hann var að skipuleggja Bjarkartónleikana.

Ég á fullu í eldhúsinu með Sögu, sem er orðin krakki, á mjöðminni. Ég var nefnilega með lítið matarboð, svona bæði af því að ég átti afmæli 7.apríl og svo var þetta svona fyrirpartý fyrir Bjarkartónleikana. Hefði viljað bjóða miklu fleirri stelpum en það verður bara næst.

Ég bakaði franska súkkalaðiköku og gerði mat með miðausturlanda brag, Tabbouleh
falafelog ýmislegt góðgæti með því, mjög sniðugt því þetta er hægt að undirbúa áður og bera fram kallt.
Þetta var pínu stress þar sem Eldar var svona upptekin og ég líka að fara í fermingu sem byrjaði kl.16 en mitt boð byrjaði kl.17. Sem betur fer á ég yndislegar vinkonur sem hjálpuðu til og gerðu allt fínt þannig að ég kom í raun hálftíma of seint í mitt eigið boð þar sem þær voru búnar að setja punktinn yfir i-ið! Takk elskurnar mínar!! Og takk Edda og tengdapabbi fyrir að gæta Sögu:) Tónleikarnir voru æði!!!!!!!

Tabbouleh
fyrir 6

  • 2 1/2 dl búlgur
  • 1 rauðlaukur
  • 1/2 blaðlaukur
  • 2 tómatar
  • 1 rauð paprika(má sleppa)
  • 1/2 gúrka (taka smá af miðju ef hún er mjög mjúk)
  • 1/2 búnt steinselja
  • 1/2 búnt mynta
  • 1 sítróna (safi)
  • 3msk ólífuolía
  • Ólífur (má sleppa)
  • Fetaostur (má sleppa)
Gera:
Látið búlgur í skál, hellið sjóðandi vatninu yfir, hrærið í og lokið. Látið standa í 3-5 mín og hrærið svo aftur, standa í ca 2 mín og hræra aftur. Hellið smá olíu yfir, salti og pipar og hrærið, látið kólna.

Skerið allt grænmetið mjög smátt, en það er sniðugt að taka til hliðar smá til skreytingar. Saxið smátt steinselju og myntu en skiljið eftir heil blöð til skreytingar.

Blöndið öllu saman við búlgurnar nema tómötunum, helst á grunnt og vítt fat.
Látið tómatana ofan á, skreytið með kryddjurtunum og svo er smart að skreyta líka með með allskonar ólífum og fetaosti en það er líka verið sniðugt að hafa það sér þannig að fólk geti bara fengið sér það ef það vill.

Ath! Maður getur alveg borðað þennan rétt einn og sér en ég er oftast með falafel með, hummus og pítubrauð sem ég sker í ferninga, pensla rétt með olíu og skelli í ofn í örskamma stund. Sniðugt að skella á suma ferningana sesam eða kúmen


Falafel

  • 675gr kjúklingabaunir (ég nota 3 dósir án vatnsins)
  • 1 rauður laukur, hakkaður
  • 3 hvítlauksrif
  • 100 gr brauðrasp
  • 2 litlir rauðir chilli (eða þurrkaðir, 1-2 tsk)
  • 1 tsk cumin (einhver með íslenska heitið á því?)
  • 1 tsk kóríanderduft
  • 1/2 tsk turmeric
  • 1 msk ferskur kóríander og einnig smá til skreytingar
  • salt og pipar eftir hentisemi
  • 1 egg til að pensla með
Gera:
Látið baunir, lauk, hvítlauk, rasp, chilli,ferskan kóríander og krydd í matvinnsluvél. Blandið í 30-45 sek, bætið út í salt og pipar. (Ég hef líka látið út í svona 1/4- 1/2 dl af jurtaolíu, svo þetta haldist betur saman)

Myndið bollur úr blöndunni, td á stærð við valhnetu/mozarkúlu. Ég bý til lengju úr blöndunni, þjappa henni og sker og skipti með hníf, svo þær verði svipað stórar. En kannski er það óþarfa smámunasemi. Einnig nota ég einnota hanska þar sem ég er dálítil pjattrófa:)
penslið með egginu.

Í uppskriftinni er manni sagt að hita olíu upp í 180 gráður eða þar til brauðteningur gyllist á 30 sek. Steikið nokkrar bollur í einu, í 2-3 mín.
Ég er svo hrædd við olíu, svo ég læt þetta í ofn, í svona 45-60 mín.

Skreytið gjarnan með kóríanderlaufum, sítrónubátum, tómötum og gúrkum /algengt í miðausturlöndum, gleymdi að segja að ég borðaði falafel í alltof mörg mál í Palestínu:)

Æðisleg frönsk Súkkulaðikaka
  • 200 gr smjör
  • 200gr suðusúkkulaði eða dökkt súkkulaði
  • 4 egg
  • 3 dl sykur
  • 1 dl hveiti
  • 100 fínt malaðir heslihnetukjarnar
Gera:
Smjör og súkkulaði í skál, brætt yfir vatnsbaði, þeyta egg og sykur mjög vel saman, smjörsúkkblanda látin út í egg og sykur og hrært varlega saman, hveiti og hnetum blandað saman og svo bætt varlega útí, blandið öllu varlega saman. Smyrjið og sáldrið hveiti (ég sleppti hveitidæminu) í 23 cm hátt form, bakið við 180 gráðu hita í umþ 35 mín. Skreytið með td. flórsykri, jarðaberjum og kíwi.

Thursday, April 19, 2007

"Móðir, og hvað svo?"

Er að vinna í blogginu, nokkrar uppskriftir sem bíða þess að koma inn. Þarf að bíða eftir að Eldar sendi mér myndir í gegnum sína tölvu á eftir, æ löng saga og fer ekkert lengra út í hana.

En það er annað sem er að brjótast um í heilanum á mér núna og matur kemst ekki að...enda átti þetta blogg svo sem líka að vera um aðra hluti.

Sko, í vikunni byrjaði ég að lesa bók sem heitir Draumaland sem fjallar um svefnvenjur barna 0-2ára, Saga byrjaði í ungbarnasundi, við fórum í kennslu um hreyfiþroska uppi í Kennó hjá sundkennaranum þar sem hún sem voru börn 7 vikna -14 mánaða og hún tók þau sem dæmi með því að sýna hreyfiþroska og þær hröðu breytingar sem verða hjá þeim, ég hitti mæður með börnin sín sem ég var með í foreldrafræðslu en við ákváðum að halda hópinn svona til gamans. Það hefur sem sagt mikið gerst, mörg ráð verið gefin og maður hefur heyrt hvernig aðrir foreldrar eru að hátta sínu uppeldi.

Allt í einu er Saga orðin 4. mánaða og samkvæmt ofangreindri bók er hún núna nógu gömul til að geta "ráðskast" með foreldra sína. Þe hún ætti að hafa meira vit á að td. ef hún grætur nógu mikið hjá pabba sínum, þá gæti verið að mamma taki hana. Og jú, þetta höfum við foreldrarnir orðið vör við. Og ungamamman er allt í einu orðin dálítil gribba og vill helst bara gera allt, klæða barnið í og úr, svæfa, láta í bílstólinn osfrv. Þá er minni grátur sem kemur. . Því það er einfaldara??
Þetta er auðvitað ekki nógu gott og mamman veit það. Svo virðist sem margir í kringum mann láti bara krílin upp í rúmið sitt (við enn að nota vögguna en það stendur til breytinga), bjóða góða nótt og börnin fara að sofa, eiga að venjast að sofna sjálf, einnig samkvæmt bókinni góðu, því þau hafa þann eiginleika að geta sofnað sjálf, og ég trúi því alveg.

Og Saga gerir það reyndar stundum, þegar hið hárrétta augnablik gefst, þegar hún er södd, með nýja bleiju og er sátt. Þá getur maður lagt hana og hún sofnar. En oft er hún kannski pínu þreytt, og þá leggst ég hjá henni, og hún sofnar eins og skot og svo er hún lögð í vögguna. Hún hefur alltaf sofið mjög vel, fer varla út úr herberginu milli 22-10. En er ég of mjúk? Veit ég verð að leyfa viljuga manninum mínum og pabba hennar að gera meira, okkur þremur til góða.
En þetta með svefninn finnst mér pínu ruglandi.


Ég var bara að fatta, svona fyrir alvöru að ég er mamma og ferðin er bara að byrja! Það er allt annað að sjá um hvítvoðung, það er svona basic needs sem gilda þar. Nú þarf ég virkilega að fara að meta hvað er best fyrir hana í lengdina. Ég vil samt líka fylgja mínu innsæi. Úff, mér finnst þetta rosalegt. Saga er mjög sælt og glatt barn, verið fljót til með allt og ekkert að hafa áhyggjur af. Það er augljóst að hún er engin hvítvoðungur ennþá en hún er samt lítil, og mér finnst hörmung að hlusta á hana gráta mikið, þannig er það nú bara. Það er rosalegt hvernig hún getur grátið og svo tekur maður hana og barnið steinþagnar. En vá, hún er 4 mánaða, hún er klár en hún er líka kríli sem þarf ást og umhyggju, úff, þunn línan þar á milli.

Hvert er mitt næsta skref sem móðir? Allt hefur gengið svo vel en nú hef ég fengið minn fyrsta alvöru efa, um hvað sé best og hvernig eigi að fara að því.


Hér var fluttur fyrsti þáttur í röðinni, "Móðir, og hvað svo?"

Wednesday, April 18, 2007

Frábært!

Svona framtak er alveg frábært! Að sýna börnunum okkar að margt sniðugt sé hægt að gera til að hjálpa öðrum og að það þurfi ekki alltaf að kosta eitthvað, þó að það kosti reyndar smá vinnu en hún er örugglega unnin með ánægju.

Gómsætar uppskriftir og skemmtilegar myndir ættu að koma inn í dag eða morgun, búið að vera mikið að gera svo tímar þess á milli hafa verið nýttir í leti:)

Úr fréttinni:
Börn á miðstigi í Snælandsskóla í Kópavogi hafa undanfarin ár gripið í prjónana og prjónað teppi sem í dag voru afhent Rauðakrossi Íslands sem sendir teppin til Afríku. Börnin voru áhugasöm um að gerast með þessum hætti sjálfboðaliðar í hjálparstarfinu.

Wednesday, April 11, 2007

Innbakaður Páskahleifur með púrtvínssósu


Vaknaði snemma á páskadag til að búa til "páskahleifinn" Í "matarbibilínunni" okkar (1000 Vegetarian recipes) heitir þessi hátíðlegi réttur, "Chick pea Roast" Ég prófaði þetta síðastliðið gamlárskvöld og þetta sló alveg í gegn. Er orðin dálítið þreytt á hnetusteik.

Við fórum svo með hleifinn til tengdó þar sem við borðuðum með þeim, en tengdamamma mín er frábær kokkur. Fengum mozarella ost og salat í forrétt, þau gæddu sér á fínum lambahrygg og svo fengum við æðislegan berja/súkkulaði/rjóma rétt í eftirrétt. Þær myndir eru teknar á litlu vélina og urðu bara ekki fínar, hún er ekki alveg að gera sig svo Eldar segir að hér eftir verði ég bara að taka stærri vélina með!
Þetta er smá vinna en alveg þess virði, ótrúlega gott og fallegt.

Innbakaður Páskahleifur með púrtvínssósu
fyrir 6

  • 450gr kjúklingabaunir (ca 2 dósir, án vökvans)
  • 1 tsk þurrger
  • 150 gr saxaðir valhnetukjarnar
  • 150 gr brauðrasp (ég nota bara úr pakka)
  • 1 laukur, smátt skorinn
  • 100 gr sveppir
  • 50 gr gular baunir
  • 2 - 3 msk púrtvín eða sherrí (ég nota púrt)
  • 2 msk grænmetissoð (ég hef reyndar notað um 4msk, annars svo þurrt)
  • 1 msk ferskur koríander
  • salt og pipar
  • 225 smjördeig, í Nóatúni hef ég fengið það í heilu lagi
  • 1 egg
  • 2 msk mjólk
Sósa
  • 2 msk matarolía, td. rapsolía
  • 1 púrra, þunnt sneidd
  • 8 msk púrt (má nota sherri)
  • 3 dl grænmetissoð
Gera: Blandið saman í matvinnsluvél, baunum, geri, valhnetum og brauðraspi, í 30-60 sek. Brúnið lauk og sveppi á stórri pönnu eða í potti, í 3-4 mín. Bætið út í baunablöndunni á pönnuna og svo einnig maís og hvítlauk. Bætið út í víni, soði og kóríander, blandið öllu saman. Takið af hellu og látið kólna. Breiðið út smjördeigið, myndið hleif úr blöndunni og þjappið henni vel saman, leggið hana inni í smjördegið og lokið undir, bleytið gjarnan þar sem þið lokið smjördeginu. Skerið krossmynstur ofan á hleifinn í deigið. Blandið eggi og mjólk, penslið hleifinn og skellið inn í 200 gráðu heitan ofn og bakið í um 30-40 mín eða þar til deigið hefur tekið á sig fallegan lit. Til að gera sósuna, hitið olíuna í potti, brúnið púrru í um 5 mín. Bætið í víni g soði, fáið upp suðu og látið svo "simmer"(hvað er orðið) í 5 mínútur. ég lét gulrætur með olíu, salti,, pipar, sesam og furuhnetum á hliðarnar en því má sleppa. Borðið með hrísgrjónum eða kartöflum. Njótið!!!


Föstudagurinn Langi





Hélt áfram að þrífa í dag, í dag voru það neðri eldhússkáparnir, uss, þeir voru ógeð.
Ætlaði að elda lime risottóið vinsæla fyrir Karlottu systir og Kidda kærasta hennar. Við skulum segja að við systur erum ekki beint með sama matsmekk, hún og pabbi eru mikið fyrir kjötið og grænmeti er eitthvað auka. En svo átti ég ekkert risotto og þá voru góð ráð dýr. Ég var líka orðin þreytt og pirruð eftir þrifin í eldhúsinu og átti erfitt með að ákveða hvað átti að elda.

Ákvað að gera
polentu með strengjabaunum í forrétt, og nota sætu kartöflurnar sem áttu að fara í ofninn í pottrétt. Þetta var tilraunastarfsemi sem bar góða raun og systa vildi uppskriftina, það er sko hrós.

Ég er búin að prófa mig áfram með polentu og ég mæli með að þú/þið prófið þetta, slær alltaf í gegn, mun auðveldara en maður heldur, ótrúlega gott og pínu öðruvísi. Líka gott með ferskum aspas, asísku wok, eða bara eitt og sér....það munu örugglega koma fleiri uppskriftir með þessum smáu gulu grjónum

Polenta með strengjabaunum fyrir 4

  • 1 l grænmetissoð (2 teningar og vatn)
  • 4 dl polentugrjón
  • 1 dl paramesan
  • salt og pipar
  • 1 laukur, smátt skorin
  • 100-200gr strengjabaunir, ofan á
Mýkið laukinn í 2-3 mín, hellið svo polentagrjónunum yfir og þar á eftir soðinu,hrærið og fáið upp suðu. Látið sjóða í ca 2 mín og takið svo af hellunni. Látið blönduna yfir í smurt form með góðum köntum og þrýstið þannig að hún verði þétt, þykktin ætti að vera uþb 2-4 cm, þarf ekki að vera svo nákvæmt og maður prófar sig áfram.
Látið blönduna standa í 10 mín á borði, jafnvel við glugga og svo inn í ísskáp í minnst 30 mín en má vera mun lengur.

Takið út og myndið jafna ferninga 10cm x 10cm(ég gerði hálfa uppskrift í þetta skiptið þar sem þetta var forréttur en annars geri ég heila)
Skellið ferningana á pönnu, ég nota grillpönnu með örlitlu non-stick sprayi eða notið örlitla olíu sem þið dreifið með td. smá eldhúsrúllupappír (má líka grilla á grind í ofni)
Grillið eða steikið bitana í ca. 5-10 mín, fallegt að fá rendur á bitana.

Látið baunirnar í sjóðandi, saltað vatn í ca. 5 mín. Hellið af vatni, látið í skál, hellið yfir skvettu af ólífuolíu, smá sítrónusafa, sjávarsalti og nýmöluðum pipar, namm!

Skellið polentubitanum á disk, raðið baununum ofan á, stráið smá paramesan yfir og gerið jafnvel rönd af balsamic edik í kringum (tókst reyndar ekkert of vel hjá mér, sjá mynd)

Verði ykkur að góðu!!

"Sætar kartöflur" pottréttur fyrir 4

  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 3 sætar kartöflur
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • 1/2 dós eða lítil dós af kókosmjólk
  • 1 grænmetisteningur, leystur upp í örlitlu af sjóðandi vatni
  • Ferskur kóríander til að strá yfir (má sleppa)
Kryddin eru svona ca hjá mér þar sem ég mældi ekkert:
  • 1 msk paprikuduft
  • 1 - 2 tsk cumin
  • 1/2 tsk kanill
  • 1/2 tsk carry
  • 1/2 tsk cayenne pipar
  • 1/2 tsk chilipipar
  • salt og pipar
Berið fram með hrísgrjónum og salati. Gott er að hafa hreina jógúrt með smá hvítlauk, salti, pipar, sítrónusafa og steinselju)




Spaghetti í flýti


Í fyrrdag, skírdag vorum við hjónin hér á fullu við tiltekt. Enda var það löngu orðið tímabært. Við vorum lengi að og svo kom tengdapabbi í heimsókn en við höfðum boðið honum í mat þar sem hann var einn í koti og svo á hann líka svo fína borvél:) Við á Skúló erum ekkert svakalega laghent í svoleiðis málum. Við vorum svo sein, orðin þreytt og pirruð og spurning um að gera eitthvað fljótlegt, þetta varð afraksturinn:

Spaghetti "a la flýti"

  • 100-150 gr spaghetti á mann
  • 1 rauðlaukur, smátt skornir
  • 1 hvítlauksrif
  • 1-2 tómatar, smátt skornir
  • grænar ólífur
  • 1 krukka grænt pestó
  • 1/2 dós 5% sýrður rjómi (má vera meiri % að sjálfsögðu og má líka bara sleppa)
  • slatti af paramesan ost til að strá yfir, gott að hafa hvítlauksbrauð með
Mýkið rauðlauk og hvítlauk, bætið út í tómötum og olífum, svo skellið þið pestóinu yfir
og svo bæta út í sýrða rjómanum. Stráið ostinum yfir og borðið, tilbúið á ca 10 mín.

Tuesday, April 10, 2007

Ég er moldrík!


Ég er svo rík! Ég á besta eiginmann í heimi, yndislega, heilbrigða dóttir, frábæra fjölskyldu og tengdafjölskyldu og svo á ég bestu vini í heimi. Er í einhverju væmniskasti í dag og finnst bara langt síðan að ég hef verið svona hamingjusöm og ánægð með lífið. Bara varð að tjá mig aðeins um þetta.
Seinna í dag bæti ég svo inn nokkrum færslum sem hafa safnast upp, þarf bara að skella inn myndum og svo kemur þetta.

Eigið góðan dag!!!

Wednesday, April 4, 2007

Matarboð í Mosó




Vorum í kvöld boðin til Kristínar og Hóffí í dinner. Maður fer aldrei svikin eða svangur út þaðan.
Alltaf svo gaman að heimsækja þær! Þær buðu upp á dýrindis tómat/grænmetissúpu, gómsætt salat og ostafyllt heimabakað brauð, ljúfengt! Svo ferskir ávextir með rjóma í eftirrétt. Eftirréttinum skolað niður með stjórnmála-, tónlistar-og barnaumræðu:) Takk fyrir okkur!

Búlgörsk linsusúpa



Þessa uppskrift fann ég í uppskriftabók þegar ég var að vinna næturvakt á skammtímaheimili sem ég vann á í Svíþjóð fyrir fötluð börn , tók stundum að mér næturvaktir svona til að fá smá aukapening en ég var ekkert hrifin af því, varð alltaf hálf skrítin eftir nóttina.
Miklu skemmtilegra líka að vinna á daginn, þegar börnin voru vakandi.

Og aðeins meira um þetta, þetta var alveg frábær vinnustaður, í skógarjaðri, vatn í göngufjarlægð til að synda og leika í , allt í kring hægt að týna epli, hindber og kirsuber, alltaf einn starfsmaður á barn og menntuð eldhús/mötuneytis kona sem sá um matinn þannig að hann væri hollur og góður . Nóg um það, þegar ég flutti heim langaði mig gjarnan að vinna að hluta til við eitthvað svipað, svo ótrúlega gefandi starf. Little did I know..

2-3 starfsmenn á 5 einstaklinga, einstaklingarnir á aldrinum 12 til 50ára, með mjög misjafna fötlun, mjög ólíkur hópur með oft lítið sameiginlegt. Þurftum sjálf að elda matinn sem var ekki sá næringaríkasti, helst koma öllum í bað á kvöldin og ná að sinna öllum sem einstaklingum út frá þeirra þörfum, sem á auðvitað að vera markmiðið.
Sum kvöld gekk þetta ágætlega, eftir því hvaða einstaklingar voru hjá okkar en sumir hefðu algjörlega þurft einn starfsmann með sér þannig að sum kvöld þá var maður hreinlega lafmóður og ég meira að segja gleymdi manneskju inni á klósetti, tvisvar, á meðan ég var að reyna að sinna öðrum. Ég tók þetta allt svo nærri mér að ég hætti eftir rúma 2 mánuði.
Ég veit að við búum í fámennu landi og þá sjálfkrafa verða möguleikar vissra samfélagshópa minni, þekki það líka persónulega en ég á einhverfan bróður sem að hefur átt misjafna ferð í gegnum kerfið hérna. Úff, þetta gerir mig yfirleitt bara leiða svo að skemmtilegri hlutum...

Eldaði súpuna í gær og bakaði brauð og svo tókum þetta bara með okkur til hinna nýbökuðu foreldra, Laufeyjar og Bjarka, vitum sjálf að maður er ekkert á fullu í eldhúsinu fyrstu dagana og því gott að fá eitthvað gott í mallakút. Speltbrauðið sem uppskrift er að í annarri færslu var einstaklega gott, var með kúmen í því og graskersfræ ofan á, mjög gott og líka frábært, ristað daginn eftir með smjöri og ost.

Búlgörsk linsusúpa
  • 2 gulir laukar, smátt hakkaðir
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 msk olía
  • 1 l vatn
  • 2 grænmetisteningar
  • 2 dl rauðar linsur
  • 1 msk paprikuduft
  • 1 tsk salt
  • 1 lárviðarlauf
  • 1 tsk timjan
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • 1/2 tsk sykur
  • 1/2 tsk balsamic vinegar (má sleppa)
  • Klípa af sýrðum rjóma út í hverja skál og steinselja rifin yfir (má sleppa)
Gera:
Mýkið lauk og hvítlauk, skellið svo út í linsum og paprikudufti, síðan tómatana
yfir, þar eftir vatn og teningar, svo lárviðarlauf og krydd, látið malla í 30-40 mínútur. Hellið í balsamic edikinu í endann. Því lengur sem þetta fær að malla, því betra, þetta verður svona þykk súpa, sniðugt líka að bara fram hrísgrjón með.

Mæli með að gera tvöfalda og frysta!

Tuesday, April 3, 2007

Barinn og rændur í hjólastól

Þetta er bara ömurlegt. Kannast aðeins við þennan unga mann, sem ráðist var á, í gegnum starf mitt með fötluðum. Hann er mjög duglegur að fara sinna ferða í stólnum og þið örugglega séð hann einhvern tíma á ferðinni.
Hann verður varla mikið á ferðinni eftir þetta, ömurlegt! Hámark siðblindu!

Og í gær eða fyrradag, ráðist á áttræðan mann við Miklubraut að mig minnir, hvað er að gerast!

Monday, April 2, 2007

Sunnudagsmatur

Í gær langaði mig rosalega mikið í það sem lifir í minningunni sem týpískur sunnudagsmatur.
Þetta gerist ekki oft en útkoman varð þessi, brokkólí buff frá Móðir náttúra, brún sósa, grænar baunir, hrásalat í boxi og svo kartöflumús. Þetta væri ekki frásögufærandi nema hvað, húsfreyjan gerði alvöru kartöflumús í fyrsta skipti, mjög fullorðins. Tók enga mynd en þetta var góð tilbreyting og dálítið "old school" fyrir utan buffin.

Brjóstagjöf er góð.....

en allt er gott í hófi. Kíkið á þetta hér.
Læt þetta einnig fylgja með þar sem þetta er tengt.

Rómó limesrisotto með sætum kartöflum



Þessi réttur er vægast sagt einn sá vinsælasti á mínu heimili! Okkur þykir hann alveg rosalega góður og elskum reyndar flesta risotto rétti. Til marks um hversu mikið mér þykir risotto gott þá varð ég td bara hálf miður mín síðastliðið sumar þegar ég var á hinum ágæta veitingastað, Hornið, og fékk mér grænmetis risotto, og það var bara ekkert varið í það! Bara eins og venjuleg hrísgrjón í grænmetissulli. Ég á það einmitt til að verða hálf ósátt þegar ég lendi í svona og hver kannast ekki við að fá of mikið eða lítið soðið pasta á veitingastöðum, mér finnst það alveg glatað, því það er jú svo mikilvægt að hafa þetta just right eða al dente. Ég hljóma eins og hin versti nöldurseggur, haha, vind mér í efnið.

Já, ég elda nú oftast á þessu heimili og þá líka þennan rétt en Eldar ákvað að elda á laugardaginn(þarna voru einhverjir sem hugsuðu eldar að elda, haha) , mér finnst frábært þegar hann sér um þetta, eiginlega mjög rómó og hann stóð sig eins og meistarakokkur, ótrúlega gott, ég bara fæ ekki leið á þessum rétt, jæja, uppskriftin góða kemur hér og mynd sem ég tók.

Lime eða súraldin risotto með sætum kartöflum fyrir 2

  • 2 stórar sætar kartöflur
  • olífuolía
  • 2 dl avorioris (kaupi yfirleitt í Nóatúni eða Hagkaup)
  • 5dl grænmetissoð (soðið vatn og 1 teningur, líka hægt að nota kjúklingakraft)
  • 1 gulur laukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 dl rifinn paramesan ostur
  • 1-2 lime
  • smjör
  • salt og pipar

Gera:
Setjið ofninn á 200, skrælið og skerið kartöflur í teninga. Látið í smurt (smá olíu í botninn) eldfast mót, skvettið smá olíu yfir og inn í ca. 30 mín. Hrærið í, einu sinni eða tvisvar. Kryddið svo með salti og pipar og jafnvel með fersku eða þurrkuðu oregano (geri það sjaldan)

Skerið smátt, lauk og hvítlauk, mýkjið í smjörinu með rísinu án þess að það brúnist, hellið síðan yfir grænmetissoðinu, bara alltaf smá skvettu í einu. Þetta getur verið pínu vandmeðfarið og maður verður eiginlega að standa yfir þessu og láta sjóða og hæra reglulega í áður en næsta skvetta fer í. Gerið þetta í ca.18 mín. Áferðin á að verða mjúk, creamy og svona næstum seigt eða tyggjanlegt. (ekki það léttasta að þýða sum orð finnst mér)

Rífið limebörk, pressið ca 1 msk af limesafa út í risottoið. Bragðbætið með salti og pipar og jafnvel meiri safa. Hrærið að síðustu ostinum út í. Skreytið með limeberkinum og jafnvel meiri ost.