Friday, March 30, 2007

Mömmulunch



Það var hálfgrátt í dag og rigningarlegur föstudagur. Svona dagar eru tilvaldir til að fá til sín góða gesti. Við ákváðum að hittast hérna á Skúló, ég og þrjár aðrar mömmur, Ylfa með hana Heklu sína, Edda með Ívar Óðinn og Kikka frænka með litlu skott(verður skírð á Sumardaginn fyrsta) Þessi kríli eru öll fædd á tímabilinu 17.des´06 - 29.jan´07
Skellti í eina grænmetissúpu og svo var bara brauð og álegg. Eplalengja í ofni í eftirrétt (mæli með henni, fæst í Bónus á 299kr, snilld. Bar fram vanillusósu með henni sem ég kaupi í Sverige og maður vispar hana bara með mjólk, namm.

Mömmusúpan

- 1 gulur laukur
- 1 blaðlaukur (púrra)
- 4 gulrætur
- 1 blómkálshöfuð (getið notað kartöflur í staðin)
- 2-3 hvítlauksrif
- dós kókosmjólk
- dós hakkaðir tómatar
- 2 dósir vatn
- 1 dl tómatpúrré
- 2 grænmetisteningar
-1-2 tsk cumin
- 1-2 tsk paprikuduft
- skvetta af cayenne pipar og tumeric, má sleppa
- smá salt og pipar
-Ferskur kóríander til skreytingar (ég gleymdi því í dag)

Gera:
Laukur og blaðlaukur, skorið smátt og látið mýkjast í olíu ásamt hvítlauk í ca 5 mín. Restin af grænmetinu skorið í smá bita og sett út í. Bætið út í tómötum og svo kókosmjólkinni, bætið svo út í vatni og teningum (ég sýð vatn í hraðsuðukatlinum, læt sitthvorn teningin í dósirnar utan af tóm. og k.mjólkinni, helli svo soðnu vatninu yfir teningana svo þeir leysist upp og helli útí) Kryddið og látið svo malla í 30-40 mín. Klippið kóríander yfir réttinn

Auka: ekki vitlaust að skella í eins og 1-2 dl af rauðum linsum útí, nýrnabaunum eða kjúklingabaunum, svona til að fá í sig góð prótein

Destiny matarboð hjá Söru Nöktu


....bara nípa af salti

Vorum boðin í matarboð á miðvikudaginn. Fyrst skellti ég mér örstutt með Myrru sætu á Kaffibarinn til að hlusta á Volta, nýju plötu Bjarkar og fannst mér hún hljóma mjög vel, svona við fyrstu hlustun. Svo var haldið í Destiny matarboð heima hjá Söru en þar var hún sem sagt búin að bjóða nokkrum velvöldum gestum sem eiga það sameiginlegt að vinna á einhvern hátt fyrir Mr. Destiny eða Hr. Örlyg. Sara rekur einmitt Nakta Apann sem hefur gert frábæra boli og peysur fyrir Airwaves síðustu 2 ár. Einnig hefur hún verið ötul í að prenta boli og peysur fyrir FÍP, sem hafa selst eins og heitar lummur og peningurinn sendur beint í þarfa hluti í Palestínu.

En já, maturinn, hann var algjört sælgæti! Á borðstólnum var ma. einhvers konar spínatblanda vafin í smjördeig, kúrbítssúpa sem var æði, gulrætur og sætar kartöflur í ofni og ofan á það var látin einhver fræ blanda sem var alveg ótrúleg. Og fyrir ykkur hin sem borðið fisk og kjöt, þá var einnig boðið upp á skötusel, innvafinn í parmaskinku og svo humarhalar. Og þessu öllu skolað niður með kældu hvítvíni, ummm!!

Mér finnst reyndar sjávarréttir oft mjög girnilegir, eins og limelaxinn hjá Elínu í Köben, en einhvern langar mér samt ekki í.

Takk fyrir frábært matarboð Sara! Spurning um annað matarboð á Skúlagötunni fljótlega?

P.s. Saga var auðvitað hress að vanda, henni finnst gaman á mannamótum

Kjúklingabaunaréttur og Desperate Housewifes


Eftir að hafa reynt lengi lengi að hittast, þá varð loks að því, Inga Birna og Anna Linda komu í heimsókn. Var stefnt á að borða saman og horfa á DH. Svo var reyndar stjórnarfundur hjá Ísland-Palestína en ég sit í þeirri stjórn. Þá voru góð ráð dýr, átti að hætta við, ónei, ekki einu sinni enn! Svo mamman á Skúló eldaði áður en farið var á fundinn svo allt yrði reddí, fannst það eitthvað svo fullorðins, hehe. En já, náði fundinum sem by the way var mjög skemmtilegur því nú er komin ný og fjölmennari stjórn sem ég hlakka mikið til að starfa með. En já, stelpurnar mættu og við áttum saman góða kvöldstund. Rétturinn sem boðið var uppá er mjög einfaldur og ódýr, var vinsæll á námsárunum góðu.

Kjúklingabauna- og spínat réttur 4 skammtar
(ég geri reyndar yfirleitt tvöfalda, í mörgum sænskum uppskriftum er sagt hversu margir skammtar, sumir myndu túlka það sem fyrir fjóra en ég hef rekið mig á að oft verður það of lítið á mann og enginn vill jú að fólk fái ekki nóg)

-1 gulur laukur, smátt skorinn
-1 hvítlauksrif
-jurtaolía til steikingar
-2 tómatar, skornir í bita
-200 g spínat, ég nota oftast fryst og læta bara einhvern slatta, líklegast um 200 g en ef einhver veit hver hlutföllin eru þá endilega látið mig vita.
-2 tsk tumeric (svona gult krydd sem gefur fína gula litinn)
-2 dl kókosmjólk
-4 dl kjúklingabaunir (ég nota alltaf úr dós)
-salt og pipar

(svo svona auka, ég bæti oft við td smá skvettu af öðrum kryddum, td. cumin, kanel, karrý og chayenne pipar) Svo er smart að nota í eina rauða papriku, gerir þetta fallegt.

Gera:

Mýkið lauk og hvítlauk í olíunni í nokkrar mínútur, bætið út í spínati og mýkið svo að það þiðni, bætið svo við tómötum og síðast paprikunni ef hún er notuð. Bætið við tumericinu og hrærið í. Bætið út í kjúklingabaununum og kókosmjólkinni og látið malla í 10 mín. Bragðbætið
með salt og pipar (og hinum kryddunum).
Ber þetta yfirleitt fram með hrísgrjónum og salati.
Hafði einnig nýbakað speltbrauð með, uppskrift úr grænu Hagkaupabókinni, læt hana fylgja með hérna fyrir þá sem eiga hana ekki.

Speltbrauð
-5 dl speltmjöl
-3 tsk vínsteinslyftiduft
-1/2 - 1 tsk sjávarsalt
-2dl ab mjólk
-2dl sjóðandi vatn

-Bragðbætið brauðið að vild með td. sólblóma-,graskers,- eða sesamfræjum, kókosmjöli, kúmen, hunangi, kanel og rúsínum, ólífum eða sólþurrkuðum tómötum, já, barasta það sem er til í skápnum


Gera:
Blandið saman þurrefnum, bætið svo út í vökvanum (ég læt ab í könnu og helli svo heitu vatninu yfir svo þetta blandist) Hrærið varlega saman, alls ekki mikið því það er galdurinn við þetta frábæra og auðvelda brauð. Látið í smurt form og bakið á 200 gráðum (finn ekki merkið) í 25-30 mín. (ég er með eldgamlan ofn og þarf yfirleitt að hafa þetta í 40 mín)

Sítrónu- og basilíku pasta


Við á Skúlagötunni erum mikið pastafólk. Við erum sammála um að hið einfalda er oft lang best. Og ferskar kryddjurtir gera hvaða mat sem er að kóngamat. Og já, paramesan ostur, það er bara ekki hægt að borða pasta án þess að hafa með paramesan....Þar sem við borðum hvorki kjöt né fiskafurðir(bara þoli ekki orðið grænmetisæta), þá splæsum við alltaf í kryddjurtir og ostinn, en þetta finnst okkur algjör lúxus, það var bara einstaka sinnum að maður leyfði sér slíkt á námsárunum í Gautaborg.
Hérna kemur uppskriftin:

Sítrónu- og basilíku pasta
fyrir 2

-safi úr 2-3 sítrónum
-1 dl ólífuolía
-100-125 g rifinn parmesanostur
-smá hunang
-1 knippi basilika
-250-300 g soðið pasta (ég nota yfirleitt spaghetti, veit ekkert hvað mikið)

Gera:
Sjóðið pastað, látið renna vel af því og látið aftur í pottinn.
Á meðan pastað sýður, vispið þá sítrónusafann kröftugt með olíunni og hrærið svo út í ostinum þar til sósan er orðin pínu þykk og "creamy" Bragðbætið með smá hunangi og jafnvel meiri sítrónusafa ef þér finnst það betra.

Hellið sósunni yfir pastað og hristið pottinn þannig að pastað sé þakið sósunni. Blandið að síðustu rifinni basilikunni yfir. Gott að bæta smá svörtum pipar og jafnvel smá sjávarsalti yfir.
Skreytið gjarnan með basilikublaði og smá sítrónu berki.

(á myndinni sem fylgir þá átti ég bara einhverja risa basiliku þannig að ég varð bara að klippa hana yfir réttinn ef hefði nú þótt fallegara að vera með heil, falleg blöð)

Verði þér/ykkur að góðu

Wednesday, March 21, 2007

jæja, þá er maður orðin bloggari!

Yndið mitt hún Saga

Eftir mikla umhugsun þar sem ég hef hugsað, já, ef ég væri bloggari, þá myndi ég tjá mig um þetta eða hitt, hef ég ákveðið að hella mér í þetta. Fínt að geta dundað mér við þetta þar sem ég er mikið heima núna. Er í fæðingarorlofi en ég á yndislega dóttir sem heitir Saga.

Þetta blogg mun að mestu tengjast mat og uppskriftum því ég hef mikinn áhuga að skoða uppskriftir, leita að uppskriftum, breyta þeim og svo laga mat eftir þeim. Það sem hefur haldið aftur að mér er hræðslan við stafsetningar- og orðarugl. Þessi fjögur ár okkar í Svíþjóð virðast hafa skilið eftir sig dýpri spor en ég hefði trúað. Eins og ég hafði fyrir því að mynda rétta orðaröð á sænsku, þá virðist þurfa að afrugla mig aftur í þeim málum. Eins og, ef ég ætla að senda afmæliskveðju, þá hef ég tilhneigingu til að vilja segja, Til hamingju með afmælið, óska Eva, Eldar og Saga. (Grattis på födelsedagen, önska Eva, Eldar og Saga). En þetta eru nú engar rosa vitleysur hjá mér, held ég.

En já, nú hef ég ákveðið að þörfin fyrir að tjá mig er sterkari en áhyggjurnar yfir að ég skrifi vitlaust. So here I go. Þetta verða sem sagt að mestu uppskriftir en þegar þörfin um að tjá sig um eitthvað annað gerir vart við sig, þá fær það að fljóta með. Og svo hvet ég auðvitað fólk til að tjá sig, senda eða benda á sniðugar uppskriftir og koma með athugasemdir. Og kannski til ykkar sem þekkið mig ekki, þá borða ég ekki kjöt og fiskafurðir (þoli ekki að kalla mig grænmetisætu) þannig að það verður lítið um slíka rétti hér.