Afi Einar, húsfreyjan og Saga sterkaKeypti lítið grasker um daginn. Vissi ekki alveg hvað ég ætti að búa til en þetta varð útkoman, mér fannst þetta bara mjög gott, enda mikil súpukelling. Ég vil taka það fram að ég fer oftast eftir uppskriftum eða alla vega að hluta til. Þessi er að hluta til byggð á sænskri uppskrift sem ég fann á netinu og svo bara bull frá mér.
Leyfði nokkrum öðrum myndum að fljóta með, m.a. myndir frá matarboði síðustu helgi þar sem Helga, Laufey, Bjarki, Hrafnkell Númi ofl kíktu við, svaka huggó og góður indverskur matur en lélegar myndir og leti í gangi (ömmurnar hefðu ekki verið sáttar að sjá mann bera þetta svona fram (allt á síðustu stundu á skúló og ekki í fyrsta skipti)
Graskerssúpan
- 800gr Graskers"kjöt" (sætar kartöflur gætu alveg gengið)
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 l grænmetissoð (vatn+2 teningar)
- 1 dl mjólk (ég hefði örugglega notað aðeins meiri mjólk í stað vatns en átti hana ekki)
- Safi úr hálfu eða heilu lime (ég notaði hálft)
- 2-3 tsk sambal olek (chili krydd jukk sem ég kaupi í Nóatúni, örugglega hægt að nota ferskan eða þurrkaðan chili í staðinn.)
- Salt og pipar af vild
- Sýrður rjómi, ein sletta í hverja skál
- Graskersfræ til að strá yfir(helst rista þau)
- Ferskur kóríander
Hellið í skálar og sáldrið ferskum kóríander yfir og graskersfræunum



